Í ljós hefur komið að bæði franskur bókaútgefandi og kvikmyndaframleiðandi létu gabbast af upploginni sjálfsævisögu um afdrif ungrar gyðingastúlku sem þvældist um Mið- og Austur-Evrópu með hópi villtra úlfa sem höfðu tekið hana í fóstur eftir að foreldrar hennar voru teknir höndum af Nasistum í Belgíu í seinni heimstyrjöldinni.
Gerð var leikin kvikmynd eftir bókinni sem heitir á ensku Surviving With Wolves og var frumsýnd í Frakklandi í janúar síðast liðnum.
Það var belgíska dagblaðið Le Soir, sem komst að því að Misha Defonseca, hin 70 kona sem ritaði bókina er ekki af gyðingaættum og laug því að útgefandanum að þetta væri sjálfsævisaga.
Nú þarf að færa bókina yfir í skáldsagnadeildir bókabúða og fjarlægja „byggt á sannsögulegum atburðum" úr titlum kvikmyndarinnar.
Ég dett inní þessa umræðu aftur, vegna innleggsins hér að ofan og veit eiginlega ekkert hvernig hún hefur þróast.
Í minningu minni er bók sem var til heima hjá mér þegar ég var barn. Þessi bók heitir "´Fósturdóttir úlfanna". Seinna lærði ég eitt og annað um sálfræði, mannfræði og tengd fræði og las meira um þessa hluti.
Þetta er ekkert smá-forvitnilegt.
Eiginlega er þetta svo mikilvæg breita í því að skoða eðli greindar og aðlögunar mannsins. Ég verð að fara til mömmu og grafa upp þessa bók.