Jump to content


Mér var gefin bók


5 replies to this topic

#1 Hildigunnur

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7306 posts

Posted 01 March 2008 - 12:22

einsog leikurinn okkar þegar ég var barn.
Þá opnar maður bók einhversstaðar og forsjónin á að benda manni á að textinn sem blasir við sé manni mikilvægur.

Ég opnaði bókina og við mér blasti ástarljóð sem mér finnst eitt það fallegasta sem ég hef séð.

"Ég strika yfir þetta ljóð sem ég hef skrifað á þessa hvítu örk. Ég strika yfir þetta ljóð sem er af orðum gert, orðum sem áttu að vera um þig eins og þetta ljóð.
En hefði svo verið mundi þessi hvíta örk hafa breytzt í gullinn söng"



Stefán Hörður Grímsson á þetta ljóð og ég get einhvernvegin ekki sagt mikið þó hjartað í mér gargi á að fá að tjá eitthvað.


Ég á sem sagt enga aðra útgönguleið en að sýna ykkur þetta. Sjálf er ég stúmm.




það er magnað hvað orð geta haft mikil áhrif á mann.
Glatt mann og hryggt í senn. Það er eiginlega ekki minnsti sjens að skilgreina ljóð.
Við erum öll á þeirri skoðun að heimurinn mætti vera öðruvísi, meðan enginn leiðir hugann að því hvernig megi breyta sjálfum sér.

Almenn skynsemi er takmörkuð auðlind, þeir sem hafa hana hljóta því að spara hana.



Hildigunnur, heimsins bezta norn.
Hjarta þitt er fullt af ást og hlýju.
Í þér býr öll mannkyns fræði forn.
Þú finnur lausn á vanda og táli nýju
.


(þetta er eftir Grandvaran og ég er afskaplega hróðug :) )

#2 Rafael Serrano

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 654 posts

Posted 01 March 2008 - 22:08

Fátt finnst mér toppa Pablo Neruda og Tuttugu ljóð um ást og einn örvæntingarsöngur.

Inclinado en las tardes tiro mis tristes redes
a tus ojos oceánicos.

Allí se estira y arde en la más alta hoguera
mi soledad, que da vueltas los brazos como un náufrago.

Hago ojas señales sobre tus ojos ausentes
que olean como el mar a la orilla de un faro.

Sólo guardas tinieblas, hembra distante y mía,
de tu mirada emerge a veces la costa del espanto.

Inclinado en las tardes echo mis tristes redes
a ese mar que sacude tus ojos oceánicos.

Los pájaros nocturnos picotean los primeras estrellas
que centellean como mi alma cuando te amo.

Galopa la noche en su yegua sombría
desparramando espigas azules sobre el campo.

Þú getur ekki neitað því Hildigunnur að þetta er snilld

#3 Hildigunnur

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7306 posts

Posted 01 March 2008 - 23:00

QUOTE (Rafael Serrano @ Mar 1 2008, 22:08) <{POST_SNAPBACK}>
Fátt finnst mér toppa Pablo Neruda og Tuttugu ljóð um ást og einn örvæntingarsöngur.

Inclinado en las tardes tiro mis tristes redes
a tus ojos oceánicos.

Allí se estira y arde en la más alta hoguera
mi soledad, que da vueltas los brazos como un náufrago.

Hago ojas señales sobre tus ojos ausentes
que olean como el mar a la orilla de un faro.

Sólo guardas tinieblas, hembra distante y mía,
de tu mirada emerge a veces la costa del espanto.

Inclinado en las tardes echo mis tristes redes
a ese mar que sacude tus ojos oceánicos.

Los pájaros nocturnos picotean los primeras estrellas
que centellean como mi alma cuando te amo.

Galopa la noche en su yegua sombría
desparramando espigas azules sobre el campo.

Þú getur ekki neitað því Hildigunnur að þetta er snilld



rolleyes.gif Það er rétt að ég get ekki neitað því að svo stöddu.

Ég skil nefnilega ekki orð af því sem stendur þarna.

Komdu með þýðingu ef þú getur smile.gif
Við erum öll á þeirri skoðun að heimurinn mætti vera öðruvísi, meðan enginn leiðir hugann að því hvernig megi breyta sjálfum sér.

Almenn skynsemi er takmörkuð auðlind, þeir sem hafa hana hljóta því að spara hana.



Hildigunnur, heimsins bezta norn.
Hjarta þitt er fullt af ást og hlýju.
Í þér býr öll mannkyns fræði forn.
Þú finnur lausn á vanda og táli nýju
.


(þetta er eftir Grandvaran og ég er afskaplega hróðug :) )

#4 Rafael Serrano

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 654 posts

Posted 01 March 2008 - 23:12

QUOTE (Hildigunnur @ Mar 1 2008, 23:00) <{POST_SNAPBACK}>
rolleyes.gif Það er rétt að ég get ekki neitað því að svo stöddu.

Ég skil nefnilega ekki orð af því sem stendur þarna.

Komdu með þýðingu ef þú getur smile.gif


Hér er þýðingin, ekki eftir mig reyndar. rolleyes.gif

Lotinn er líður að kveldi, legg ég döpur net mín
Í útsæ augna þinna.

Þar brennur á hæstu báli og björtu minn einmannaleiki
Og fálmar um sig örmum eins og maður af strandi

Ég sendi rauð boð ljósa út yfir augun þín fjörru
Sem bylgjast eins og öldur upp að vitaströndu.

Einungis hýsir þú drunga, kvenveran fjarlæga, kæra;
Úr augnlitinu lyftast á stundum voðans strendur

Lotinn er líður að kveldi, varpa ég döprum netum
Í þennan sjó sem ólgar í útsævaaugunum þínum.

Næturfuglarnir gogga fyrstu stjörnur af blundi
Sem tindra líkt og sál mín á tíð er ég þig elska

Nóttin fer á stökki á skuggahryssu sinni
Og þeytir bláum kornöxum vítt um velli



#5 Spaði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2685 posts

Posted 01 March 2008 - 23:14

Frábært ljóð um draumlandið.

#6 Hildigunnur

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7306 posts

Posted 01 March 2008 - 23:20

QUOTE (Rafael Serrano @ Mar 1 2008, 23:12) <{POST_SNAPBACK}>
Hér er þýðingin, ekki eftir mig reyndar. rolleyes.gif

Lotinn er líður að kveldi, legg ég döpur net mín
Í útsæ augna þinna.

Þar brennur á hæstu báli og björtu minn einmannaleiki
Og fálmar um sig örmum eins og maður af strandi

Ég sendi rauð boð ljósa út yfir augun þín fjörru
Sem bylgjast eins og öldur upp að vitaströndu.

Einungis hýsir þú drunga, kvenveran fjarlæga, kæra;
Úr augnlitinu lyftast á stundum voðans strendur

Lotinn er líður að kveldi, varpa ég döprum netum
Í þennan sjó sem ólgar í útsævaaugunum þínum.

Næturfuglarnir gogga fyrstu stjörnur af blundi
Sem tindra líkt og sál mín á tíð er ég þig elska

Nóttin fer á stökki á skuggahryssu sinni
Og þeytir bláum kornöxum vítt um velli



Jú þetta er flott.

Ég sé fyrir mér málverk í sterkum litum.
Ástsjúkur vondaufur maður, von og angist takast á og það er spenna í gangi.
Þetta er flott. Dapurt en einhvernvegin virðist hann efast um að draumurinn verði að veruleika.
Ég elska ljóð. rolleyes.gif
Við erum öll á þeirri skoðun að heimurinn mætti vera öðruvísi, meðan enginn leiðir hugann að því hvernig megi breyta sjálfum sér.

Almenn skynsemi er takmörkuð auðlind, þeir sem hafa hana hljóta því að spara hana.



Hildigunnur, heimsins bezta norn.
Hjarta þitt er fullt af ást og hlýju.
Í þér býr öll mannkyns fræði forn.
Þú finnur lausn á vanda og táli nýju
.


(þetta er eftir Grandvaran og ég er afskaplega hróðug :) )





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users