23. October, 2009, 10:26
Post
#1
|
|
|
Talandi ![]() Group: Notendur Posts: 451 Joined: 1. April 2008 Member No.: 10171 |
Fram kom í fjölmiðlum um daginn að Seðlabankinn hafi gefið út svokölluð innistæðubréf til að gefa krónu og jöklabréfaeigendum kost á því að komast í skjól hjá ríkinu.
Nú væri gaman að fá upplýsingar um ef einhver er svo klár að vita það, hvers vegna Seðlabankinn fór út í þessa aðgerð. 1. Hvað var Seðlabanki að fjármagna með þessari útgáfu. 2. Hvaða heimild hafði bankinn til að gefa út þessi bréf. 3. Ef bankinn vissi að um væri að ræða krónu og jöklabréfa eigendur, af hverju var hann að koma þeim í skjól. 4. Er hægt að lögsækja bankastjóra seðlabanka og bankaráð vegna gáleysis við fjármál ríkisins. 5. Hve miklar skuldir ætli séu í Seðlabanka vegna þessara bréfa. Talað var um a sínum tíma að heildarfjárhæð krónu og jöklabréfa væri vart undir 500 milljörðum. Þetta mál er eitt stærsta einstaka málið sem við eigum við að glíma hlítur að vekja upp margar spurningar blaðamanna um af hverju Seðlabankinn hleypti þessum spákaupmönnum inn í öruggt skjól hjá ríkistjóði. Ef þeir hefðu verið með kröfur sínar á gömlu bankanna þá hefðu þeir tapað þessum kröfum og við stæðum ekki uppi með milljarða vandamál í Seðlabankanum sem hefur orsakað gjaldeyrirhöft og mikinn þrýsting á gengi krónar sem ekki er séð fyrir endann á. Nú vantar góðann blaðamann til að kafa ofaní þessi mál og draga upp á yfirborðið. |
|
|
|
![]() |
23. October, 2009, 12:57
Post
#2
|
|
![]() Talblaðra ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Group: Notendur Posts: 22546 Joined: 30. June 2003 From: Iceland Member No.: 21 |
Það sem ég segi..
Hér er þetta á máli fyrir fimm ára: Krónubréf eru rétt eins og aðrar erlendar skuldir. Við fáum gjaldeyri og gefum út pappír í staðinn. Þessi gjaldeyrir sem við fáum er ekki ókeypis, hann kostar. Við greiðum þennan kostnað með vöxtum. Krónubréf báru mjög háa vexti. Fram kom í fjölmiðlum um daginn að Seðlabankinn hafi gefið út svokölluð innistæðubréf til að gefa krónu og jöklabréfaeigendum kost á því að komast í skjól hjá ríkinu. Nú væri gaman að fá upplýsingar um ef einhver er svo klár að vita það, hvers vegna Seðlabankinn fór út í þessa aðgerð. 1. Hvað var Seðlabanki að fjármagna með þessari útgáfu. 2. Hvaða heimild hafði bankinn til að gefa út þessi bréf. 3. Ef bankinn vissi að um væri að ræða krónu og jöklabréfa eigendur, af hverju var hann að koma þeim í skjól. 4. Er hægt að lögsækja bankastjóra seðlabanka og bankaráð vegna gáleysis við fjármál ríkisins. 5. Hve miklar skuldir ætli séu í Seðlabanka vegna þessara bréfa. Talað var um a sínum tíma að heildarfjárhæð krónu og jöklabréfa væri vart undir 500 milljörðum. Þetta mál er eitt stærsta einstaka málið sem við eigum við að glíma hlítur að vekja upp margar spurningar blaðamanna um af hverju Seðlabankinn hleypti þessum spákaupmönnum inn í öruggt skjól hjá ríkistjóði. Ef þeir hefðu verið með kröfur sínar á gömlu bankanna þá hefðu þeir tapað þessum kröfum og við stæðum ekki uppi með milljarða vandamál í Seðlabankanum sem hefur orsakað gjaldeyrirhöft og mikinn þrýsting á gengi krónar sem ekki er séð fyrir endann á. Nú vantar góðann blaðamann til að kafa ofaní þessi mál og draga upp á yfirborðið. Til að skilja þetta trix, þá þurfa menn að vinda til baka. Þegar krónan var sett á flot þá var þetta gulrótin, að útlendingar mundu láta okkur hafa gjaldeyri í einhvern tíma og þiggja í staðinn krónur eða ígildi þeirra. Nú, næstu ár á eftir flot, þá byrjar svona útgáfa. Í raun virkar þetta eins og lán. Stór vogunasjóður hefði þess vegna getað látið okkur hafa 1 miljón Evra, hann síðan kaupir bréfið sjálfur af sér, það er gefur það út og kaupir það (til einföldunar). Hann borgar 10% vexti í fimm ár sem þýðir að eftir 5 ár, þá á hann með vaxtavöxtum um 2 miljónir Evra. Hann kemur með bréfið og leysir það út. Þá þurfum við að reiða fram Evrurnar. Ljóst mál að þetta var eitt af trixunum sem í raun gerðu ekkert annað en að skuldsetja landið. Trix sem meira að segja hefur þann kost að við þurfum ekki einu sinni að búa sjálf til veð. En skuld er þetta. Og já, tek undir öll atriðin í innlegginu þínu. Þetta horfir nákvæmlega svona gagnvart mér. -------------------- Kveðja Feu
Funheitur að vanda og munið.. "brenndur málverji forðast Feu" |
|
|
|
26. October, 2009, 11:32
Post
#3
|
|
|
Rithæfur ![]() ![]() ![]() Group: Notendur Posts: 3465 Joined: 11. December 2003 Member No.: 1479 |
Það sem ég segi.. Hér er þetta á máli fyrir fimm ára: Krónubréf eru rétt eins og aðrar erlendar skuldir. Við fáum gjaldeyri og gefum út pappír í staðinn. Þessi gjaldeyrir sem við fáum er ekki ókeypis, hann kostar. Við greiðum þennan kostnað með vöxtum. Krónubréf báru mjög háa vexti. Skilurðu það ekki að krónubréf eru ekki í erlendri mynt? Þær eru í krónum. Þetta er ekki gjaldeyrisskuld. Af hverju tönglastu á sömu hlutunum aftur og aftur þrátt fyrir að þér sé bent á vitleysurnar? Hef ekki aðlagað eitt né neitt. Það að þú hafir ekki skilið umræðuna og ekki skilið áhyggjur manna af ásókn í gjaldeyri er bara eftir öðru hjá þér. Öll umræða um krónubréfin hefur kristallað þann undirliggjandi ótta að gjaldeyrissjóðurinn munu þurkast upp þegar krónubréfin mundu falla. Það að þessar skuldir séu enn ekki greiddar er aðalatriðið, ekki hvort skuldin heiti krónubréf eða jöklabréf. Nema, staða okkar er í raun enn verri en ef viðskiptabankanir hefðu ekki greitt krónubréfin á gjalddaga, því Seðlabanki Íslands reddaði nýjum bréfum fyrir krónubréfseigendur, svo nú eru þeir með bréf í höndunum með ríkisábyrgð. Í hinu tilfellinu væru þeir aðeins með kröfur á gömlu bankana. Þessi frammíköll og bull innlegg þín eru aðeins með einu markmiði, að þagga og eyðileggja umræðuna hérna. Magnað .... Þessi söguskýring á því af hverju Seðlabankinn gaf út innistæðubréf (þ.e. tilgátan um að það hafi verið til að taka áhættuna af krónubréfseigendum) er komin frá ....engum öðrum en ..... Ármanni Þorvaldssyni, fyrrverandi bankastjóra Kaupþing Singer og Friedlander! En útgáfa innistæðubréfanna kom bönkunum í töluverð vandræða þar sem þau soguðu laust fé úr bankakerfinu og jók á fjármagnskostnað bankanna. Ármann var því skiljanlega mjög ósáttur við þessa útgáfu innistæðubréfa. En það er magnað að þú Feu, sem kallar slíka menn landráðsmenn, lygara og glæpamenn, skulir taka þá trúanlega .... þegar það hentar. Ég gef ekki mikið fyrir þessa söguskýringu þó mér finnist fróðlegt að hlusta á alla. Þá ét ég það ekki allt upp gagnrýnislaust. En það er kannski af því að ég er "góðærisgutti sem bíð með startkaplanna á hliðarlínunni" ? Vissulega. En þegar Jöklabréfin voru innleyst fyrir aðra pappíra meðal annars fyrir Innistæðubréf Seðlabankans, þá er augljóst að í dag er þetta skuld Seðlabankans (sem er meir en næsti bær við ríkið) gagnvart þessum aðilum. Og eðlilega bíða þessi bréf aðeins þess að það sé til gjaldeyrir í landinu til að umbreytast úr krónum í erlenda mynt eigenda sinna. Þetta að tala um að jöklabréf séu innleyst fyrir innistæðubréf er villandi, vægast sagt. Erlend fyrirtæki skulduðu krónubréfin, þ.e. skulduðu krónur. Til þess að krónubréfueigendurnir hefðu fengið innistæðubréf greitt þá hefði erlenda fyrirtækið þurft að kaupa innistæðubréfin fyrst og afhenda þau svo til krónubréfaeigandanna á gjalddaga krónubréfanna. Af hverju krónubréfaútgefandinn og eigandi þeirra hefðu átt að fara þá leið er ótrúleg vægast sagt. Auðvitað gætu einhverjir krónubréfa eigendur hafa keypt innistæðubréf fyrir sínar krónur. En það er bara allt annað mál. Einhverjir aðrir krónubréfa eigendur fóru eflaust úr landi, aðrir keyptu ríkisbréf eða íbúðabréf. Aðrir eitthvað allt annað. Það að segja að krónubréfueigendur hefðu fengið afhent innistæðubréf er því villandi í meira lagi. Það er eins og að segja að laun íslenskra launþega hafi verið innleyst með húsnæði ! Þeir hafi aldrei fengið sín laun greitt í krónum heldur hafi þeim verið afhent steypa af vinnuveitanda sínum! This post has been edited by 7kr: 26. October, 2009, 11:36 |
|
|
|
5sinnum Seðlabankinn bjargaði krónu/jöklabréfa eigendum 23. October, 2009, 10:26
7kr Ef þetta hefði ekki verið gert þá hefðu krónurnar ... 23. October, 2009, 10:29
5sinnum QUOTE(7kr @ 23. October, 2009, 10:29) Ef ... 23. October, 2009, 10:50

7kr QUOTE(5sinnum @ 23. October, 2009, 10:50)... 23. October, 2009, 10:58
robin QUOTE(7kr @ 23. October, 2009, 10:29) Ef ... 26. October, 2009, 7:47
thokri Mestu afglöp Seðlabankans fólust í þeirri stefnu s... 23. October, 2009, 10:37
7kr QUOTE(thokri @ 23. October, 2009, 10:37) ... 23. October, 2009, 10:49
feu LOL!!!
Ég var búinn að minnast á þett... 23. October, 2009, 11:21
7kr QUOTE(feu @ 23. October, 2009, 11:21) LOL... 23. October, 2009, 11:24
feu Ertu á þungum lyfjum????
Veit að þú ert vitlaus e... 23. October, 2009, 11:42
7kr QUOTE(feu @ 23. October, 2009, 11:42) Ert... 23. October, 2009, 11:50
Ahasour Othravel Gott að menn standa klárir á aðalatriðum málsins.
... 23. October, 2009, 11:48
feu QUOTE(Ahasour Othravel @ 23. October, 2009, 1... 23. October, 2009, 11:53
7kr QUOTE(feu @ 23. October, 2009, 11:53) Það... 23. October, 2009, 11:54
feu Hér er frétt frá því fyrir ári:
Viðskipti | mbl.i... 23. October, 2009, 11:59
7kr QUOTE(feu @ 23. October, 2009, 11:59) Hér... 23. October, 2009, 12:02
feu QUOTE(7kr @ 23. October, 2009, 12:02) Dug... 23. October, 2009, 12:10
7kr QUOTE(feu @ 23. October, 2009, 12:10) LOL... 23. October, 2009, 12:21
feu QUOTE(7kr @ 23. October, 2009, 12:21) Ver... 23. October, 2009, 12:26
7kr QUOTE(feu @ 23. October, 2009, 12:26) Hef... 23. October, 2009, 12:29
7kr QUOTE(feu @ 23. October, 2009, 12:57) Það... 23. October, 2009, 13:01
thokri QUOTE(7kr @ 26. October, 2009, 11:17) Ski... 26. October, 2009, 11:33
7kr QUOTE(thokri @ 26. October, 2009, 11:33) ... 26. October, 2009, 12:11
Kjosandi Spurning til feu og 7kr.
Snýst málið ekki um að m... 23. October, 2009, 13:03
feu QUOTE(Kjosandi @ 23. October, 2009, 13:03... 23. October, 2009, 13:07
Þorrinn Svo ég vitni í mætann mann: Voru (eru?) tómir papp... 23. October, 2009, 15:09
5sinnum Ég fagna að FEU er kominn aftur. Hann hefur alltaf... 23. October, 2009, 19:58
Ari góði QUOTE(5sinnum @ 23. October, 2009, 19:58)... 26. October, 2009, 1:19
feu QUOTE(Ari góði @ 26. October, 2009, 1:19)... 26. October, 2009, 1:28
5sinnum QUOTE(Ari góði @ 26. October, 2009, 1:19)... 26. October, 2009, 20:19
feu QUOTE(5sinnum @ 26. October, 2009, 20:19)... 26. October, 2009, 20:28
7kr QUOTE(feu @ 26. October, 2009, 20:28) Þet... 26. October, 2009, 22:05
feu Árið 1998 voru reikningsskil ríkis og sveitarfélag... 24. October, 2009, 15:03
Ahasour Othravel Veit einhver hvað við getum haldið þessum gjaldeyr... 26. October, 2009, 11:40
feu Held að 99.99% þjóðarinnar hafi fattað að krónubré... 26. October, 2009, 15:29
7kr QUOTE(feu @ 26. October, 2009, 15:29) Hel... 26. October, 2009, 16:57
Pro.Farnsworth QUOTE(5sinnum @ 23. October, 2009, 10:26)... 26. October, 2009, 19:53![]() ![]() |
| Lo-Fi Version | Time is now: 30. July, 2010, 6:10 |