Vitið þið um gott MS Word spjallborð? Ég veit að það er til excel spjallborð.
Kannski hafið þið lausnina.
Það sem ég er að kljást við er að ég myndi vilja hafa eitt word skjal, master skjal.
Inn í þessu skjali væri ég með texta og excel töflur ásamt öðru.
Ég myndi eiginlega vilja hanna Word skjalið þannig að það væri heildarskjal yfir allt.
Ég er með word skjal sem heitir kafli 1, annað word skjal kafli 2. Síðan gæti ég verið með excelskjal sem heitir skjal kafli 1.
Ég myndi vilja að heildarskjalið uppfærist sjálfkrafa þegar ég uppfæri hvert og eitt skjal.
Sem sagt ég vil losna við að gera sama hlutinn aftur og aftur.
Af hverju þarf ég mörg skjöl? Og af hverju vil ég masterskjal?.
Jú ég vil hafa stutt skjöl sem ég get sent frá mér, en ég þarf líka að vera með heildarskjal sem hentar öðrum.
Microsoft Word
Started by Kjosandi, 23 May 2013 22:34
2 replies to this topic
#1
Posted 23 May 2013 - 22:34
Kveđja frá hinum týpíska íslenska kjósenda!
#2
Posted 24 May 2013 - 06:50
Ég reyni nú að forðast Word eins og ég get. En veistu, ég kann þetta.
Opnaðu nýtt skjal og nefndu það bara það sem þú vilt. Farðu svo í 'View' og veldu 'Outline'.
Í 'Outline' þá smellir þú á 'Show Document' í 'Outlining' fánablaðinu. Þá opnast fleiri valmöguleikar. Nú getur þú gert smá trix, veldu 'Create' ef þú vilt búa til nýtt skjal eða 'Insert' ef þú vilt setja inn skjal sem þú ert nú þegar tilbúinn með. Nú getur þú skrifað í skjalið sem þú varst að setja inn úr aðalskjalinu, eða valið bara 'Collapse Subdocuments' og þá kemur einfaldlega hlekkur á skjalið. Þegar þú skrifar í undirskjalið og vistar, þá vistast bæði skjölin. Þú getur líka valið að læsa undirskjali þannig að þú getur ekki breytt því óvart.
Þetta er nokkuð einfalt.
En ég mæli samt með LaTeX

Kommúnistar, kommúnistar allstaðar!!!
#3
Posted 24 May 2013 - 10:12
Takk fyrir þetta. Þetta svínvirkar.
Kíkti á þetta latex, læt word duga.
Kíkti á þetta latex, læt word duga.
Kveđja frá hinum týpíska íslenska kjósenda!
1 user(s) are reading this topic
0 members, 1 guests, 0 anonymous users