Jump to content


Góður pistill um þetta hitamál


3 replies to this topic

#1 Íslendingur

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2998 posts
  • Gender:Male
  • Location:Þingholt 101 Rvk Ísland
  • Interests:Gaman að vera til :)

Posted 31 March 2009 - 09:10

25.3.2009 | 17:38
Hafið þið virkilega ekkert betra að gera?

Stríðið gegn kannabisframleiðendum er fullkomin sóun á tíma og fé. Æpandi misræmi er í hvaða fíkniefni eru lögleg og hver ekki (góð og vond). Hver er þess umkominn að ákveða fyrir mig hvort ég reyki gras eða drekki vodka? Bann við kannabis er lítilsvirðing á frelsi mínu. Ég er fyllilega dómbær um það hvort og hvaða fíkniefni ég ákveð að láta ofan í mig.

„Stríðið“ er sóun á tíma og fé vegna þess að það er dæmt til að tapast. Það var umfjöllun um „stríðið“ gegn kannabis í Kaliforníu í sjónvarpinu um daginn. Farið í flugferð með þyrluflugmanni sem hefur það að atvinnu að koma auga á staði þar sem kannabis er ræktað (en það vex allstaðar utandyra í „sunny California“). Hann sagði að fyrir nokkrum árum hafi hann þurft að fljúga í hálftíma áður en hann fann akur. En nú þurfi hann bara að fljúga í fimm mínútur. Hann lýsti þeirri skoðun sinni að hann teldi þetta stríð tapað. Milljarðakostnaður til einskis í ríki sem er gjaldþrota.

Í stað þess að lögleiða kannabis og skattleggja og hafa af því tekjur, velur ríkið (stjórnmálamenn), að halda vitleysunni áfram. Afleiðingar stríðsins eru skelfilegar. Sundraðar fjölskyldur, yfirfull fangelsi (með tilheyrandi kostnaði), rán og aðrir glæpir og það sem etv. verst er: Sumir upplifa sig sem glæpamenn vegna þessara heimskulegu laga; eru með vonda sjálfsmynd og eiga sér erfitt uppdráttar. Enginn sem fær sér bjór fær á samviskuna: Ég er glæpamaður! Hann bara drekkur sinn bjór og slappar af, alveg eins og það ætti að vera með gras. Þeir sem vilja eiga að geta reykt það í friði og spekt án glæpastimpils frá yfirvöldum. Það er nú kapítuli út af fyrir sig munurinn á þeim sem drekka og þeim sem reykja gras: Drukknir menn eru ósjaldan ofbeldishneigðir, skakkir menn eru rólegir og friðsamir. Væri það ekki skárri kostur af tveimur vondum?

Lögregluyfirvöld ættu heldur að rannsaka t.d. þátt stjórnmálamanna í bankahruninu, en að eltast við þá sem skapa verðmæti innanlands með ræktun á kannabis. Meðan grasið vex á Íslandi, þarf ekki að greiða fyrir það með dýrmætum gjaldeyri. Þetta „stríð“ er tap tap tap.

Hvenær munu stjórnmálamenn horfast í augu við staðreyndirnar og hætta að láta ímyndun um „fyrirmyndarsamfélag“ villa sér sýn? Átta sig á að boð og bönn í þessu efni er engin lausn? Átta sig á að hver og einn hefur rétt, og líka skyldu, til að bera ábyrgð á sjálfum sér?

http://sigurgeirorri.blog.is/blog/sigurgeirorri/

En nú vill svo til að þetta er rennileg skonsa og rennilegar skonsur eiga að nota það sem guð gaf þeim, og hvað er það besta sem guð gaf almennilegum konum? Jú, fegurð og kynþokka. Vitnað í Stormskerið.

Ást&Virðing
Íslendingur.

#2 ofvirkur

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 931 posts
  • Gender:Male
  • Location:Spain
  • Interests:Flest tengt tilfinningum.

Posted 23 April 2009 - 13:30

QUOTE (Íslendingur @ Mar 31 2009, 10:10) <{POST_SNAPBACK}>
25.3.2009 | 17:38
Hafið þið virkilega ekkert betra að gera?

Stríðið gegn kannabisframleiðendum er fullkomin sóun á tíma og fé. Æpandi misræmi er í hvaða fíkniefni eru lögleg og hver ekki (góð og vond). Hver er þess umkominn að ákveða fyrir mig hvort ég reyki gras eða drekki vodka? Bann við kannabis er lítilsvirðing á frelsi mínu. Ég er fyllilega dómbær um það hvort og hvaða fíkniefni ég ákveð að láta ofan í mig.

„Stríðið" er sóun á tíma og fé vegna þess að það er dæmt til að tapast. Það var umfjöllun um „stríðið" gegn kannabis í Kaliforníu í sjónvarpinu um daginn. Farið í flugferð með þyrluflugmanni sem hefur það að atvinnu að koma auga á staði þar sem kannabis er ræktað (en það vex allstaðar utandyra í „sunny California"). Hann sagði að fyrir nokkrum árum hafi hann þurft að fljúga í hálftíma áður en hann fann akur. En nú þurfi hann bara að fljúga í fimm mínútur. Hann lýsti þeirri skoðun sinni að hann teldi þetta stríð tapað. Milljarðakostnaður til einskis í ríki sem er gjaldþrota.

Í stað þess að lögleiða kannabis og skattleggja og hafa af því tekjur, velur ríkið (stjórnmálamenn), að halda vitleysunni áfram. Afleiðingar stríðsins eru skelfilegar. Sundraðar fjölskyldur, yfirfull fangelsi (með tilheyrandi kostnaði), rán og aðrir glæpir og það sem etv. verst er: Sumir upplifa sig sem glæpamenn vegna þessara heimskulegu laga; eru með vonda sjálfsmynd og eiga sér erfitt uppdráttar. Enginn sem fær sér bjór fær á samviskuna: Ég er glæpamaður! Hann bara drekkur sinn bjór og slappar af, alveg eins og það ætti að vera með gras. Þeir sem vilja eiga að geta reykt það í friði og spekt án glæpastimpils frá yfirvöldum. Það er nú kapítuli út af fyrir sig munurinn á þeim sem drekka og þeim sem reykja gras: Drukknir menn eru ósjaldan ofbeldishneigðir, skakkir menn eru rólegir og friðsamir. Væri það ekki skárri kostur af tveimur vondum?

Lögregluyfirvöld ættu heldur að rannsaka t.d. þátt stjórnmálamanna í bankahruninu, en að eltast við þá sem skapa verðmæti innanlands með ræktun á kannabis. Meðan grasið vex á Íslandi, þarf ekki að greiða fyrir það með dýrmætum gjaldeyri. Þetta „stríð" er tap tap tap.

Hvenær munu stjórnmálamenn horfast í augu við staðreyndirnar og hætta að láta ímyndun um „fyrirmyndarsamfélag" villa sér sýn? Átta sig á að boð og bönn í þessu efni er engin lausn? Átta sig á að hver og einn hefur rétt, og líka skyldu, til að bera ábyrgð á sjálfum sér?

http://sigurgeirorri.blog.is/blog/sigurgeirorri/



Flott skrif, þetta og svo margt annað er rétt í þessum málum.
Kær kveðja,
Ofvirkur.


#3 Tinna Aldermann

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 414 posts
  • Location:hættum að kjenna dönsku í opinbera skólakjervinu

Posted 21 July 2009 - 20:13

QUOTE(ofvirkur @ 23. April, 2009, 13:30) <{POST_SNAPBACK}>
Flott skrif, þetta og svo margt annað er rétt í þessum málum.

þettta heitir qróvleg ivirkvótun


avnemum ufsilon

#4 Erlendur

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3039 posts
  • Gender:Male
  • Location:Sívætlu
  • Interests:hitt og þetta, en þó aðallega hitt

Posted 28 August 2009 - 23:43

Breytt

Edited by Erlendur, 28 August 2009 - 23:48.

I used to be a pert, now I´m an expert.

Striker: Surely you can't be serious.
Rumack: I am serious…and don't call me Shirley.

Those people who think they know everything are a great annoyance to those of us who do.

- Isaac Asimov





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users