Mikið hefur verið rætt og ritað um nafnleysi stjórnenda hér á þessu spjallsvæði og sitt sýnst hverjum. Hér eru langflestir undir dulnefni, ekki endilega af því að þeir hafi eitthvað að fela heldur er fólk berskjaldaðri gagnvart klikkuðu fólki á internetinu sem gæti tekið upp á því að færa samskiptin yfir í raunheima. Slíkt er ekkert grín enda mörg dæmi um afar "óvinsamlegt" fólk hér, fólk sem vílar ekki fyrir sér ofbeldi eða ofsóknir án þess að ég nefni nein nöfn. Hinn venjulegi notandi hér sér ekki helminginn af því sem hér er gert og því finnst notendum við oft vera dálítið ósýnileg og ekki til staðar. Við reynum yfirleitt að svara einkaskilaboðum um leið og við getum og fara yfir það sem notendur hafa reportað nokkrum sinnum á dag.
Við sem stjórnum hér reynum ávalt að gera okkar besta og gera ekki upp á milli fólks. Stundum verða mistök og ég vona að við séum öll nógu dugleg við að biðjast afsökunar og leiðrétta vitleysurnar sem við gerum þó það gerist í einkaskilaboðum.
Því vil ég biðja notendur um að taka tillit til þeirra aðstæðna sem við búum við, við viljum vernda fjölskyldur okkar og okkur sjálf fyrir Málefnalífinu alveg eins og þið hin.
Skýringar á nafnleysi stjórnenda Málefnanna
Started by Assa1, 21 Jun 2007 20:32
No replies to this topic
#1
Posted 21 June 2007 - 20:32
Virðingarfyllst,
Assa1
Haförninn (Haliaeetus albicilla) er einn þriggja ránfugla sem verpir hér á landi, hinar tveir eru smyrillinn (Falco columbarius) og fálkinn (Falco rusticolus). Haförninn er í senn sjaldgæfasti og langstærsti ránfuglinn í íslensku fuglafánunni, vænghaf hans getur orðið rúmir tveir metrar og fuglarnir vega allt frá 4 til 7 kg. Haförninn var í mikilli útrýmingarhættu alla síðustu öld en 1913 ákvað Alþingi að vernda hann með lögum og hefur hann verið verndaður allar götur síðan. Heimild: Vísindavefurinn

1 user(s) are reading this topic
0 members, 1 guests, 0 anonymous users

This topic is locked