Jump to content


Kristinfræðikennsla í grunnskóla:


55 replies to this topic

#51 poleddu

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2998 posts
  • Gender:Male
  • Location:Kópavogur

Posted 07 January 2008 - 23:56

QUOTE(logos @ Jan 7 2008, 23:00) [snapback]1240075[/snapback]
Við skulum umorða hugsunina sem liggur að baki.
Ef við brjótum umferðarreglunar þá eigum við hættu á að verða fyrir alvarlegu slysi.
Umferðarreglur eru settar af umhyggju en ekki til þess að hegna fólki.

Guð hefur ekki þóknun á dauð nokkurs manns. Í Biblíunni er oft notað líkingarmál og dæmisögur. Sumt er hægt að skilja bókstaflega og annað nálgast maður eins og ljóð eða málverk. Að baki öllu þessu liggur sama grunnhugsunin það er kærleikur Guðs.

“þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig”

Bestu kveðjur
Logos
logos, ég skil ekki hvernig þetta á að svara því sem ég benti á, á maður ekki að taka: "Eigi skalt þú láta galdrakonu lífi halda." bókstaflega? Er grunnhugsunin þarna "kærleikur Guðs"?

Setningin sem þú vitnaðir í (þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig) er alveg afskaplega óskýr og það er hægt að samræma hana við alls konar illvirki, þmt galdrabrennur.

Vantrú - Vantrúarspjallið

En það er líka trúariðkun að taka upp veskið sitt frammi fyrir Guðs augliti og leggja gjöf sína á altarið. Það er hluti þess að helga lífið og alla hluti.
--- Karl biskup Sigurbjörnsson í ávarpi

Oft hlýtur presturinn að spyrja sig: "Til hvers? Hér er ég að semja prédikun, velja sálma, standa í ströngu að koma á messu, og svo mæta aðeins nokkrar manneskjur. Til hvers er ég að leggja þetta á mig?
---Karl biskup Sigurbjörnsson í prédikun

#52 logos

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 277 posts

Posted 08 January 2008 - 00:24

QUOTE(Hildigunnur @ Jan 7 2008, 23:14) [snapback]1240081[/snapback]
Gallinn við túlkunina logos er að fólk túlkar sumt bókstaflega og annað eins og "ljóð eða málverk" einsog þú segir en svo er bara spurningin hvað á að túlka hvernig. Um það snýst nefnilega grimmdin og óhugnaðurinn að trúað fólk er ekkert á einu máli um hvað á að túlka hvernig enda gefur GUÐ enga forskrift að því hvað er bara í plati og hvað er ekki í plati.



Það er ýmislegt hægt að segja og gera í skjóli fáfræðinnar. Í upplýstu þjóðfélagi eins og við lifum í horfir málið allt öðruvísi við.
Ef slíkt gerist þá er það fordæmt svo til um leið og það fréttist bæði af kristnum sem ókristnum.

Eru framin grimdarverk í nafni kristni og kirkju á Íslandi í dag?
Þá er ég ekki að tala um einstaka ógæfufólk sem er að finna í svo til öllum þjóðfélagshópum.
Ég er að tala um kirkjulegarstofnanir í heild.

það að kenna kristinfræði telst varla til grimdarverka.

Í dag ætti engum að dyljast kærleiksboðskapur Jesú Krists sem vill sem vill við hann kannast.


Dæmi:

Matteusarguðspjall 5:38-48

Þér hafið heyrt, að sagt var: ,Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn.' En ég segi yður: Rísið ekki gegn þeim, sem gerir yður mein. Nei, slái einhver þig á hægri kinn, þá bjóð honum einnig hina. Og vilji einhver þreyta lög við þig og hafa af þér kyrtil þinn, gef honum eftir yfirhöfnina líka. Og neyði einhver þig með sér eina mílu, þá far með honum tvær. Gef þeim, sem biður þig, og snú ekki baki við þeim, sem vill fá lán hjá þér.

Þér hafið heyrt, að sagt var: ,Þú skalt elska náunga þinn og hata óvin þinn.' En ég segi yður: Elskið óvini yðar, og biðjið fyrir þeim, sem ofsækja yður, svo að þér reynist börn föður yðar á himnum, er lætur sól sína renna upp yfir vonda sem góða og rigna yfir réttláta sem rangláta. Þótt þér elskið þá, sem yður elska, hver laun eigið þér fyrir það? Gjöra ekki tollheimtumenn hið sama? Og hvað er það, þótt þér heilsið bræðrum yðar einum. Gjöra heiðnir menn ekki hið sama? Verið þér því fullkomnir, eins og faðir yðar himneskur er fullkominn.

Fyrra bréf Jóhannesar 3:19-24

Af þessu munum vér þekkja, að vér erum sannleikans megin og munum geta friðað hjörtu vor frammi fyrir honum, hvað sem hjarta vort kann að dæma oss fyrir. Því að Guð er meiri en hjarta vort og þekkir alla hluti. Þér elskaðir, ef hjartað dæmir oss ekki, þá höfum vér djörfung til Guðs. Og hvað sem vér biðjum um fáum vér hjá honum, af því að vér höldum boðorð hans og gjörum það, sem honum er þóknanlegt. Og þetta er hans boðorð, að vér skulum trúa á nafn sonar hans Jesú Krists og elska hver annan, samkvæmt því sem hann hefur gefið oss boðorð um. Sá sem heldur boðorð Guðs er stöðugur í Guði og Guð í honum. Að hann er stöðugur í oss þekkjum vér af andanum, sem hann hefur gefið oss.


Kveðja
Logos

#53 jonr

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 5866 posts
  • Gender:Male
  • Location:sér numinn

Posted 09 January 2008 - 11:07


Í alvöru? "Guð"? Fólk trúir enn á þetta? Hvaða ár er eiginlega núna?




#54 Butcer

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9336 posts

Posted 09 January 2008 - 12:06

QUOTE(jonr @ Jan 9 2008, 11:07) [snapback]1240715[/snapback]
Í alvöru? "Guð"? Fólk trúir enn á þetta? Hvaða ár er eiginlega núna?

Það sem er ótrulegt er að Kristni virðist vera koma aftur af fullu höggi mér til mikilar óánægju.
Þú mátt trúa því fyrir mér að alheimurinn var skapaður úr niðurgangi svíns, en þegar þessum lygum er troðið á börn sem vita ekki betur er of langt gengið, og þetta á við öll trúarbrögð.

þótt þú trúir því að allah bjó til kameldýr úr fjalli eða að draugur naugaði konu og eignaðist barn guðs þótt þú trúir því að þú sért sérvalinn einstaklingur guðs áttu engan rétt á því að heilaþvo börn.
Fyrrverandi tröll

#55 Butcer

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9336 posts

Posted 10 January 2008 - 23:41

.... eytt
Fyrrverandi tröll

#56 Besti vinur Aðal

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3837 posts
  • Gender:Male

Posted 16 January 2008 - 19:57

QUOTE(logos @ Jan 8 2008, 0:24) [snapback]1240145[/snapback]
Það er ýmislegt hægt að segja og gera í skjóli fáfræðinnar. Í upplýstu þjóðfélagi eins og við lifum í horfir málið allt öðruvísi við.
Ef slíkt gerist þá er það fordæmt svo til um leið og það fréttist bæði af kristnum sem ókristnum.

Eru framin grimdarverk í nafni kristni og kirkju á Íslandi í dag?

Grimmdarverkunum fækkaði eftir því sem vald og áhrif kirkjunnar minnkaði, þ.e. mannúð hefur aukist í öfugu hlutfalli við vald og áhrif kirkjunnar, - því má með miklum rökum halda því fram að við búum við nútíma siðferði þrátt fyrir kirkjuna en ekki vegna hennar. (ATH! Kristur er ekki sama og kirkjan.) Siðferði sem við búum við á sér stoð víða en fyrst og fremst í mannúðarhugsun Aþenu-Grikkja og því framlagi Grikkja að hver sál bæri ábyrgð á sínum verkum gagnvart Guðunum í stað sjónarhorns gyðingatrúar um að Guð hefni sín á börnum og barnabörnum í marga liði og ef því er að skipta ættinni allri - eða borginni þar sem maður bjó eins og reyndar Ísraelsríki tjáir með því að refsa fjölskyldum sjálfsmorðsmanna með því að jafna heimili þeirra við jörðu með risa-jarðýtum (þó þeir séu horfnir og dauðir) eða senda nokkrar edlflaugar á hverfið þeirra.
„Sá er vinur sem til vamms segir.“






1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users