Posted 02 February 2008 - 17:41
QUOTE(mikki-refur @ Feb 2 2008, 17:02) [snapback]1253165[/snapback]
takk fyrir að upplýsa um það, annars eru 40 mín kennskustundir hálfgert vandræðamál, einkanlega þar sem verkleg kennsla er, krakkarnir eru rétt búin að taka fram dótið og koma sér fyrir og þá er hringt út. Reyndar eru nokkrir framhaldsskólar farnir að nota 55 eða 60 mín kennslutíma og held að það sé bara til hins betra.
Já og ég veit að margir hafa tvær samliggjandi kennslustundir án frímínútna. Þetta á við í sumum fögum og hjá sumum nemendum. Ég geri reyndar ekki ráð fyrir að yngri nemendur þoli mjög langar tarnir í einbeitingu en það er eflaust mismunandi eftir námsgreinum. Það er líka börnum afar óhollt að sitja á rassinum langan tíma í einu. Drengir eru sérlega viðkvæmir fyrir slíku og þurfa að fá að hreyfa sig reglulega.
Við erum öll á þeirri skoðun að heimurinn mætti vera öðruvísi, meðan enginn leiðir hugann að því hvernig megi breyta sjálfum sér.
Almenn skynsemi er takmörkuð auðlind, þeir sem hafa hana hljóta því að spara hana.
Hildigunnur, heimsins bezta norn.
Hjarta þitt er fullt af ást og hlýju.
Í þér býr öll mannkyns fræði forn.
Þú finnur lausn á vanda og táli nýju.
(þetta er eftir Grandvaran og ég er afskaplega hróðug :) )