Jump to content


Veðurspá lesin í metrum og sekúndum...


43 replies to this topic

#1 Allhvass

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4874 posts
  • Gender:Male

Posted 11 February 2008 - 13:06

Eru málverjar orðnir sáttir við lestur veðurfregna í m/sek? Það er kominn um áratugur síðan þetta hófst, ég hef ekki getað vanist þessu ennþá.
Það ætti að vera hægt að fara einhvern milliveg, nota hvassviðri, storm og rok á skiljanlegu máli. Golu og kalda má hafa áfram í metrum.
Metrarnir og sekúndurnar eiga bara heima á skýrslum, ekki í mæltu máli.

#2 Gabbler

    Orðugur

  • Óvirkir notendur
  • PipPipPipPip
  • 9777 posts
  • Gender:Male

Posted 11 February 2008 - 13:09

Já, alveg orðinn vanur þessu.

#3 Toffi

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4571 posts
  • Location:Reykjavík
  • Interests:Fjölskyldan, Mótorhjól, Bílar, Ljósmyndun, Græjur ofl

Posted 11 February 2008 - 13:17

Verra er þegar veðurmenn útvarps taka sig til og tala um "sekúndu metra". Það er á mannamáli að því hærri sem talan er því meira logn. 1 sek/m er þá tími sem það tekur vind að fara 1 metra og 30 sek/m er annsi mikið logn. Aftur á móti væri hægt að tala um vind í KM/klst og það skilja allir. því að 27m/sek eru u.þ.b. 100km/klst
Með kveðju Toffi
Því er ekki enn farið að selja færeyingum rafmagn í gegnum sæstreng. Ekki þarf nýja virkjun til þess að sinna þeirra orkuþörf. Við fáum gjaldeyri og færeyingar fá hreina raforku.
Mín lausn er í geingdarlausri fjárfestingu í nýjum útflutningsgreinum. Allt annað á að sitja á hakanum.
Ennig þarf að skipta út bílaflotanum í áföngum í bíla sem nota innlenda orku. T.d. þessa
Ariel Atom

#4 skortur

    Málóður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPip
  • 15145 posts
  • Gender:Male
  • Location:Bankastræti 0
  • Interests:Í ræsinu<br />Vínsmökkun án þess að spýta.<br />Rand og ráp

Posted 11 February 2008 - 14:14

Kunni mun betur við gömlu vindstigin og vildi gjarnan að
þau væru notuð meira í stað þessarra steingeltu metra.
wipe your ass before you talk to me.

#5 Hawk12

    Málóður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPip
  • 18338 posts

Posted 11 February 2008 - 16:02

QUOTE (Allhvass @ Feb 11 2008, 13:06) <{POST_SNAPBACK}>
Eru málverjar orðnir sáttir við lestur veðurfregna í m/sek? Það er kominn um áratugur síðan þetta hófst, ég hef ekki getað vanist þessu ennþá.
Það ætti að vera hægt að fara einhvern milliveg, nota hvassviðri, storm og rok á skiljanlegu máli. Golu og kalda má hafa áfram í metrum.
Metrarnir og sekúndurnar eiga bara heima á skýrslum, ekki í mæltu máli.


Hvernig væri að tala um það sem allir geta áttað sig á, km á klst.

#6 Allhvass

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4874 posts
  • Gender:Male

Posted 11 February 2008 - 16:28

QUOTE (Hawk12 @ Feb 11 2008, 16:02) <{POST_SNAPBACK}>
Hvernig væri að tala um það sem allir geta áttað sig á, km á klst.


Logn, gola kaldi, hvass, stormur og rok... þetta er einfaldast og best. Í stað 0 m/sek er sagt "logn", því ekki sama reglan yfir allt?


#7 Aroz

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2088 posts

Posted 11 February 2008 - 19:58

QUOTE (Allhvass @ Feb 11 2008, 13:06) <{POST_SNAPBACK}>
Eru málverjar orðnir sáttir við lestur veðurfregna í m/sek? Það er kominn um áratugur síðan þetta hófst, ég hef ekki getað vanist þessu ennþá.
Það ætti að vera hægt að fara einhvern milliveg, nota hvassviðri, storm og rok á skiljanlegu máli. Golu og kalda má hafa áfram í metrum.
Metrarnir og sekúndurnar eiga bara heima á skýrslum, ekki í mæltu máli.


nei, hef ekki vanist því, en þetta er samt nokkurn veginn bara vindstig = metrar á sek/2 við hóflegan vind, en sá munur eykst svo í miklum vindi.

http://www.vedur.is/vedur/frodleikur/greinar/nr/349
"The greatest shortcoming of the human race is our inability to understand the exponential function." - Albert Bartlett

#8 feu

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 27458 posts
  • Gender:Male
  • Location:Iceland

Posted 11 February 2008 - 19:59

Ég margfalda einfaldega með 3.6 og fæ út km/klst. Tala sem segir mér miklu meira en vindstigin gömlu sem voru lógariþmísk eins og Richter kvarðinn ef ég man rétt.

En km/klst þekki ég t.d. af akstri á götu mótorhjóli. Allt í kringum og yfir 100km/klst eru gríðarátök.

Eitt sinn var ég að fara fram úr bíl, kannski verið svona á 140km/klst. Krakki er í afturglugganum og veifar. Ég lyfti hendinni og ætla mér að veifa í því er ég fer fram úr. Umhendis var eins og einhver hefði hrifið í hendina á mér og þeytti henni aftur fyrir mig.. mér brá nokkuð!

#9 El Puerco

    Málfær

  • Óvirkir notendur
  • PipPip
  • 763 posts

Posted 11 February 2008 - 20:11

Ég er farinn að venjast sekúndumetrunum.

Ágætis viðmiðun er vindur undir átta m/sek er þolanlegur, yfir 20m/sek er vont veður.

#10 krókur annar

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 445 posts

Posted 11 February 2008 - 20:15

12 m/sek samsvara nákvæmlega 6 gömlum vindstigum.
Það er einhver breytingarmunur á öllum öðrum tölum.
----------------------------------------------------------------------
Ég hef aldrei heyrt um neinn sem hefur dáið úr leti.
Það var ekki fyrr en hann stóð upp úr sófanum
og fór að hreyfa sig að hjartað gaf sig.
-----------------------------------------------------------------------
Hann kvaddi þennan heim í djúpum og værum svefni,
ekki æpandi og veinandi eins og sá sem sat í farþegasætinu.
------------------------------------------------------------------------
Það síðasta sem hann heyrði var: Treystu mér.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users