Jump to content


Veðurspá lesin í metrum og sekúndum...


43 replies to this topic

#41 Charles Darwin

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3926 posts
  • Gender:Male
  • Location:Þar sem sést ekki til álvers
  • Interests:Ekkert er mér óviðkomandi.

Posted 24 February 2008 - 08:58

QUOTE (Allhvass @ Feb 21 2008, 15:15) <{POST_SNAPBACK}>
"Nú er hann að gera tuttugu metra á sekúndu!"

"Nú er hann að hvessa!"


Æi veistu ekki að íslenskan er fjölbreytt og skemmtilegt mál.
,,Nú er hann að hvessa. Já alveg rétt, hvað ætli hann sé hvass? Hmmmmm, öruggleg tíu metrar á sekúndu eða meira. Orðinn allhvass."
wink.gif


p.s. allhvass vindur (karlkyn); sterk beyging. vindur; í veðurfræði: vindstig: 7 (13,9 − <17,2 m/s).
Ekkert að því að blanda þessu saman í mæltu máli. Veðurfræðingarnir bönnuðu ekki notkun á góðu og gildu talmáli, gera einungis mælingar byggðar á metrakerfinu.
Darwin: Ekki bara loðinn rass!

#42 drCronex

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 26411 posts
  • Gender:Male
  • Location:hér er ég.
  • Interests:Dagurinn og vegurinn. Heimreiðar og hestamennska. Svona má lengi telja!

Posted 25 February 2008 - 01:51

QUOTE (Gesturinn @ Feb 11 2008, 21:52) <{POST_SNAPBACK}>
Ég sá í einhverju blaði um daginn, að vindhraði í Veiðivatnahrauni hefði mælst 137 m/sek. um daginn Ég hef aldrei séð svona tölu áður.

Vindmælir undir undir Hafnarfjalli fauk um koll í 61m/sek. að því sagt er. Ef þessi vindhraðamæling í Veiðivatnahrauni er sönn, hvað merkir hún þá vindfræðilegu tilliti ? Hvaða öfl eru í gangi í alvarlegum fellibyljum ?

Er ekki einhver málverjinn með kunnáttu til að uppfræða forvitinn "gestinn"?

137 x 3,6 = 500 km / h

Eins og farþegaþota!

Það er eitt stöðugur vindur á ákveðnum hraða. Annað er sviptivindur eða vindkviða ein sér.

QUOTE (Besti vinur Aðal @ Feb 13 2008, 3:00) <{POST_SNAPBACK}>
Hefðurði heyrt um „notendavænt“ umhverfi? Menn fyrirlitu Apple Machintosh fyrir að ekki þyrfti að skrifa allar skipanir heldur bara smella með mús á skjá til að komast áfram. - Rökin voru „ef við einföldum umhverfið eins og hægt er getur þú eitt púðrinu í aðrar lausnir og nærð því lengra“ að hafa staðlaðar og samræmdar einingar og sömu grunnstærðir er hluti þeirrar hugsunar. Þessvegna ættum við að nota km/h á hraða vinds eins og annan hraða þó þú getir alveg fattað m/s. - Það gerir skilninginn nærtækari fyrst menn voru á annað borð að breyta úr vindstigunum.

Góð rök.
Skilekkineitt: "Sjónhverfingar byggjast á því að dreifa athyglinni frá aðalatriðinu."
Ingimundur Kjarval: "Þegar þú setur lyftu í hús, sleppir þú ekki eftstu hæðina vegna þess að svo fáir eiga heima þar."
Apple: "...hvað sem útveggjunum líður en þeir eru hannaðir til að taka á sig lárétt álag en ekki lóðrétt."

Plasma Rarity: "Ég myndi skilgreina kjána sem einhvern sem skortir þekkingu á eitthvað málefni, en getur jafnvel verið greindur. Það er munur á kjána og vitleysing og hann er sá að vitleysingur getur haft þekkingu en skortir greind."

#43 Tembe

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7881 posts
  • Gender:Male

Posted 01 March 2008 - 16:13

QUOTE (Besti vinur Aðal @ Feb 13 2008, 3:00) <{POST_SNAPBACK}>
Hefðurði heyrt um „notendavænt“ umhverfi? Menn fyrirlitu Apple Machintosh fyrir að ekki þyrfti að skrifa allar skipanir heldur bara smella með mús á skjá til að komast áfram. - Rökin voru „ef við einföldum umhverfið eins og hægt er getur þú eitt púðrinu í aðrar lausnir og nærð því lengra“ að hafa staðlaðar og samræmdar einingar og sömu grunnstærðir er hluti þeirrar hugsunar. Þessvegna ættum við að nota km/h á hraða vinds eins og annan hraða þó þú getir alveg fattað m/s. - Það gerir skilninginn nærtækari fyrst menn voru á annað borð að breyta úr vindstigunum.

Apple Machintosh var nú ekkert venjulegur maður.
Annars er ég á því að við eigum að nota mælieininguna desimetrar (dm) pr 10 sek. og ekkert múður.


Kveðja,
Tembe

----------------
Áhugaverðar síður, ekki ætlaðar börnum eða viðkvæmum.
http://www.litlaisland.net/
http://tidarandinn.is/


#44 Charles Darwin

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3926 posts
  • Gender:Male
  • Location:Þar sem sést ekki til álvers
  • Interests:Ekkert er mér óviðkomandi.

Posted 06 March 2008 - 09:07

Því ekki að nota eininguna 3,28 fet á 2/120 úr mínútu? Einfaldar málið.
Darwin: Ekki bara loðinn rass!





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users