Jump to content


Vísindakirkjan á Íslandi


22 replies to this topic

#21 callahan

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9191 posts

Posted 17 February 2008 - 12:15

QUOTE (Gorgon @ Feb 15 2008, 20:05) <{POST_SNAPBACK}>
Því miður já. blink.gif

Stuttu eftir að ég sá það myndband, sá ég heimildarefni um Vísindakirkjuna með nokkrum áhugamönnum um heimildarmyndir. Þar var byrjað á því að horfa á Scientology Orientation video sem potential meðlimum er sýnt og er vægast sagt hörmung og virkaði eins og sjonvarpsmarkaðurinn.

Svo var horft á Beginner's guide to Scientology þar sem breskur grínisti fer í smárannsóknarferð og kynnir sér Scientology með meðlimi í þeim hluta sem stendur fyrir utan kirkjuna. Maður hugsaði svo sem með sér að maður skildi hvers vegna liðið húkkaðist á þessu, það finnur fyrir samkennd og það er komið fram við þig eins og manneskju en þetta á það sama við um alla sértrúarsöfnuði. Þeir húkka einstaklingana með því að láta þeim líða vel og líkt og einn sagði þarna:"Where there's Sceintology, there is fun!"

Gott og vel, en svo kom að úttekt Panorama, bresks fréttaþáttar, á Scientology. Þar komu dökku hliðarnar í ljós og líkt og önnur CULT(nota þetta orð sem Vísindakirkjunni er meinilla við) þá er fólk bannfært fyrir minnstu sakir, útskúfað og hatað af meðlimum kirkjunnar. Það sem gerir Vísindakirkjuna þó ólíka er þetta batterí sem þeir hafa í gangi gegn gagnrýnendum kirkjunnar. Þar hafa þeir heilan her af lögfræðingum, einkaspæjurum og smear campaigners sem McCarthy hefði öfundað þá af. Þar er markið að ráðast alltaf á gagnrýnandann persónulega og reyna að gera hann tortryggilegan í augum fólks.

Menn ættu svo að fletta upp L.Ron Hubbard á wikipedia(og fleiri stöðum) og gagnrýni á Vísindakirkjuna. Þar má sjá ýmislegt vafasamt.

#22 Butcer

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9336 posts

Posted 17 February 2008 - 15:56

Vísindakirkjan er ekki hvað ný trú sem er,wicca er ekki hættuleg træu,bahismi er ekki hættuleg trú en scientology er hættuleg trú.
Fyrrverandi tröll

#23 Spaði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2685 posts

Posted 17 February 2008 - 17:26

Það er rangnefni að kalla Scientology Vísindakirkju. Fyrirbærið er kennt við Science Fiction. Stofnandi hennar L. Ron Hubbard skrifaði þesskonar bækur og bjó svo til þessa kenningu eftir að hann veiktist á geði.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users