
Spennandi leikir í allt sumar! Ég var duglegur að fata á völlinn síðasta sumar og ætla að vera duglegri nú í ár! Fjölmargir
spennandi leikir framundan sem verður þetta allt saman væntanlega hin mesta skemmtun. Skagamenn verða gríðarlega
sterkir enda Besta knattspyrnulið Íslandssögunar og það ástælasta á meðal landsmanna. Hefðin er sterk á Akranesi og
titlarnir margir. Verða að teljast sigurstranglegastir með Meistara Guðjón í hásætinu ásamt ótrúlega sterkum hóp af ungum
strákum sem fengu góða reynslu með liðinu síðasta sumar. Valsmenn verða ekki langt undan með Helga Sig. í fararbroddi
ásamt góðri liðsheild. Fimleikafélag Hafnafjarðar vill væntanlega endurheimta titilinn og svo er alltaf spurningin með Vestur-
bæjarveldið KR. Blikar & HK vígja nýjan og glæsilegan völl í Kópavogi og eru til alls líkleg á komandi sumri. Ætli Keflvíkingar
séu enþá brotnir? Hver veit,,. Þróttararnir komnir aftur á meðal þeirra bestu með frábæra stuðningsmenn sér við hlið. Búast
má við miðri deild eða falli fyrir Framarar & Fylkismenn. Grindavík gæti komið á óvart með sterkan heimavöll. Síðast en ekki
síst er það Fjölnir í fyrsta sinn í sögu félagsins í efstu deild. Glæsilegur árangur það hjá jafn ungu félagi.
Semsagt,, spennandi sumar framundan! Mikil gleði & Mikið fjör!!
Svona lítur sumarið annars út,
Landsbankadeild karla, leikir sumarið 2008.









