Varð bara um að lesa þetta yfir.
Pósta þessu hérna inn.
Hef aldrei haft álit á manninum hvort sem er! Núna gufaði það litla upp.
-----------------------------------------
http://www.visir.is/article/20080214/LIFID01/80214096
„Dóri DNA er útþynnt gen af Nóbelskáldi. Hvað hefur hann eiginlega unnið sér til frægðar?," segir Bubbi Morthens í samtali við Vísi. Bubbi er síður en svo sáttur með Dóra sem gagnrýndi þáttinn hans, Bandið hans Bubba, í DV fyrir skömmu.
Á glænýrri heimasíðu sinni tekur Bubbi þátt í umræðum um þáttinn og talar um gagnrýni DV og Fréttablaðsins.
Hann segir Dóra ekki hafa náð lengra en að skrifa um kvikmyndir og bandið hans Bubba.
Dóri sem heitir réttu nafni Halldór Halldórsson er barnabarn Halldórs Laxness. Hann var nokkuð hissa á þessum ummælum Bubba Morthens þegar Vísir náði af honum tali.
„Útþynnt gen frá afa mínum er meira en Bubbi Morthens getur nokkurntíma státað sig af. Mér finnst ótrúlegt að stærsti tónlistarmaður okkar íslendinga skuli leggjast svona lágt," segir Dóri.
Aðspurður segist Bubbi hinsvegar gríðarlega ánægður með þáttinn sinn. „Þetta er frábær þáttur, og hann á bara eftir að batna."
http://www.dv.is/skrafadogskrifad/lesa/5230
Bubbi Morthens er dáður af stórum hluta þjóðarinnar vegna tónlistar og sumpart persónutöfra. Vandi hans liggur hins vegar í því að innst inni er hann eitt skjálfandi lítið blóm sem tekur gagnrýni af lítilmennsku.
Halldór Halldórsson, Dóri DNA, skrifaði gagnrýni á þátt hans, Bandið hans Bubba, í DV og var ekki hrifinn af þættinum. Meistari Bubbi brást við með því að hrakyrða Dóra af slíku offorsi að sjaldan hefur annað eins sést á prenti. Hann gerir því skóna að genasamsetning Halldórs séu útþynnt útgáfa af genum afa hans, Halldórs Kiljans Laxness. Þetta eru viðbrögð rökþrota manns sem glímir við eitthvert afbrigði af minnimáttarkennd.
Viðbrögð Bubba, sem sjálfur er einstaklega viðkvæmur fyrir umfjöllun, eru í senn grátleg og hlægileg. Hann ætti að skammast sín til að biðja Dóra afsökunar á bullinu og óhróðrinum. Dóri DNA hefur engin þau einkenni að ástæða sé til þess að halda því fram að í honum felist hnignun ættbogans. Og hann hefur fullt leyfi til að setja fram, í eigin nafni, sína skoðun á verkum Bubba á meðan hann heldur því ekki fram að hann sé fallinn.
Bubbi búinn að opinbera lítilmennsku sína
Started by Ekard, 21 Feb 2008 21:49
14 replies to this topic
#1
Posted 21 February 2008 - 21:49
#2
Posted 21 February 2008 - 22:09
Það virðist vera í tísku hjá fræga fólkinu þessa dagana að drulla yfir samlanda sína og aðra í gegn um spjall/blogg & vefsíður,,. Og já,, enn og
aftur sýnir Bubbi hvað hann er dapur og meyr. Hreint út sagt magnað að hann geti ekki tekið gagnrýni, almennt eftir öll þessi ár í bransanum,,.

En nú vill svo til að þetta er rennileg skonsa og rennilegar skonsur eiga að nota það sem guð gaf þeim, og hvað er það besta sem guð gaf almennilegum konum? Jú, fegurð og kynþokka. Vitnað í Stormskerið.
Ást&Virðing
Íslendingur.
Ást&Virðing
Íslendingur.

#3
Posted 21 February 2008 - 22:13
Dóri "DNA" er nú ósköp leiðinlegur og ómerkilegur penni, alveg burtséð frá þessum skrifum á síðu Bubba.
Ekki skil ég af hverju DV er með Dóra þennan í vinnu.

#4
Posted 21 February 2008 - 23:06
Er ekki Bubbi bara orðinn heilaskemmdur af langvarandi neyslu alls kyns efna og uppstoppaður af sjálfhverfu? Bubbinn sem var í upphafi og var vinsæll er löngu horfinn og í staðinn er komin auglýsingamaskína.
#5
Posted 21 February 2008 - 23:25
QUOTE (Spaði @ Feb 21 2008, 23:06) <{POST_SNAPBACK}>
Bubbinn sem var í upphafi og var vinsæll er löngu horfinn og í staðinn er komin auglýsingamaskína.
Seldi kvölin ekki einhverjum bankanum höfundarréttinn (sálina) af lögunum sínum hér um daginn?
En nú vill svo til að þetta er rennileg skonsa og rennilegar skonsur eiga að nota það sem guð gaf þeim, og hvað er það besta sem guð gaf almennilegum konum? Jú, fegurð og kynþokka. Vitnað í Stormskerið.
Ást&Virðing
Íslendingur.
Ást&Virðing
Íslendingur.

#6
Posted 21 February 2008 - 23:27
Bubbi frændi ( skv. upplýsingum bókinni um Lækjarbotnaættina ) hefur verið mjög áberandi í íslensku þjóðfélagi um áratugaskeið. Ef einhver eða einhverjir hafa verið lengur eða oftar á vinsældalista tónlistarmanna á Íslandi, þá kann ég ekki að nefna þá. Hann virðist kunna það öðrum betur, að halda sér í sviðsljósinu. Ef það er ekki tónlistin, þá er það bara eitthvað annað s.s. hnefaleikaumfjöllun, laxveiðar, bókaskrif, bankaviðskipti, fíkniefnaumfjöllun og hvað eina. Bubbi hefur oft deilt hart á ýmsa einstaklinga og ýmis málefni í gegnum tíðina og hefur oft og einatt uppskorið hörð viðbrögð fyrir. Skoðanir hans á mönnum og málefnum eru sjálfsagt umdeilanlegar, en hann hefur ávallt skrifað undir sínar skoðanir, sem sínar.
Umfjöllun fólks og fjölmiðla og þá ekki síst hans sjálfs í eigin garð, hefur iðulega verið verið mjög óvægin. Hann hefur staðið þetta allt af sér í áratugi og virðist alltaf jafn áhugaverður og alltaf tilbúinn til að skorast á hólm við nýjar áskoranir. Hann er einyrki, sem á allt undir sjálfum sér komið til að komast af. Þetta hefur honum tekist að gera allan þennan tíma og fyrir því ber ég mikla virðingu.
Bubbi er einn af áhugaverðustu og minnisverðustu Íslendingum síðustu áratuga að mínu mati og "maður fyrir sinn hatt". Ég er ekki að mæla því bót, að hann hnjóði í menn og málefni, en það er bara partur af opinberri persónu Bubba og þannig verður það líklega áfram.
Í upphafsorðum mínum kalla ég hann Bubba frænda, en það er bara til að upphefja sjálfan mig, að eiga svona merkilegan einstakling í ættarbókinni minni. Hann þekkir mig ekki neitt, en ég er stoltur af honum, sem frónbúa.
Dóri DNA er áreiðanlega fær um að svara fyrir sig, ef hann nennir því. Hann hefur áreiðanlega lítið skrámast við athugasemdir Bubba og nær sér því fljótt.
Með alúðarkveðju

#7
Posted 21 February 2008 - 23:52
QUOTE (Íslendingur @ Feb 21 2008, 23:25) <{POST_SNAPBACK}>
Seldi kvölin ekki einhverjum bankanum höfundarréttinn (sálina) af lögunum sínum hér um daginn?
Hann seldi Sjóvá allt heila klabbið.
Dóri DNA er bara eins og hver annar áhorfandi, og hlýtur að getað sagt hvað honum finnst um
þessa þáttagerð, sama hvort kónginum líkar betur eða verr.
Bubbi held ég hafi gert sjálfum sér meira ógagn en Dóra með þessum kjánalegu viðbrögðum.
Hann er löngu búinn með kvótann af ósmekklegheitum í sölumennskunni á sjálfum sér að mínu mati.
" Eitt sinn skáti - ávallt skáti ! "
#8
Posted 22 February 2008 - 05:48
Ættfræði er áhugaverð.
Er hægt að rísa hærra en vera af "Lækjabotnaætt"?
- ég tek hér orðrétt eftir og sé viss margfeldisáhrif í fleirtölunni.
#9
Posted 22 February 2008 - 08:29
QUOTE (Ekard @ Feb 21 2008, 21:49) <{POST_SNAPBACK}>
Varð bara um að lesa þetta yfir.
Pósta þessu hérna inn.
Hef aldrei haft álit á manninum hvort sem er! Núna gufaði það litla upp.
-----------------------------------------
http://www.visir.is/article/20080214/LIFID01/80214096
„Dóri DNA er útþynnt gen af Nóbelskáldi. Hvað hefur hann eiginlega unnið sér til frægðar?," segir Bubbi Morthens í samtali við Vísi. Bubbi er síður en svo sáttur með Dóra sem gagnrýndi þáttinn hans, Bandið hans Bubba, í DV fyrir skömmu.
Á glænýrri heimasíðu sinni tekur Bubbi þátt í umræðum um þáttinn og talar um gagnrýni DV og Fréttablaðsins.
Hann segir Dóra ekki hafa náð lengra en að skrifa um kvikmyndir og bandið hans Bubba.
Dóri sem heitir réttu nafni Halldór Halldórsson er barnabarn Halldórs Laxness. Hann var nokkuð hissa á þessum ummælum Bubba Morthens þegar Vísir náði af honum tali.
„Útþynnt gen frá afa mínum er meira en Bubbi Morthens getur nokkurntíma státað sig af. Mér finnst ótrúlegt að stærsti tónlistarmaður okkar íslendinga skuli leggjast svona lágt," segir Dóri.
Aðspurður segist Bubbi hinsvegar gríðarlega ánægður með þáttinn sinn. „Þetta er frábær þáttur, og hann á bara eftir að batna."
http://www.dv.is/skrafadogskrifad/lesa/5230
Bubbi Morthens er dáður af stórum hluta þjóðarinnar vegna tónlistar og sumpart persónutöfra. Vandi hans liggur hins vegar í því að innst inni er hann eitt skjálfandi lítið blóm sem tekur gagnrýni af lítilmennsku.
Halldór Halldórsson, Dóri DNA, skrifaði gagnrýni á þátt hans, Bandið hans Bubba, í DV og var ekki hrifinn af þættinum. Meistari Bubbi brást við með því að hrakyrða Dóra af slíku offorsi að sjaldan hefur annað eins sést á prenti. Hann gerir því skóna að genasamsetning Halldórs séu útþynnt útgáfa af genum afa hans, Halldórs Kiljans Laxness. Þetta eru viðbrögð rökþrota manns sem glímir við eitthvert afbrigði af minnimáttarkennd.
Viðbrögð Bubba, sem sjálfur er einstaklega viðkvæmur fyrir umfjöllun, eru í senn grátleg og hlægileg. Hann ætti að skammast sín til að biðja Dóra afsökunar á bullinu og óhróðrinum. Dóri DNA hefur engin þau einkenni að ástæða sé til þess að halda því fram að í honum felist hnignun ættbogans. Og hann hefur fullt leyfi til að setja fram, í eigin nafni, sína skoðun á verkum Bubba á meðan hann heldur því ekki fram að hann sé fallinn.
Pósta þessu hérna inn.
Hef aldrei haft álit á manninum hvort sem er! Núna gufaði það litla upp.
-----------------------------------------
http://www.visir.is/article/20080214/LIFID01/80214096
„Dóri DNA er útþynnt gen af Nóbelskáldi. Hvað hefur hann eiginlega unnið sér til frægðar?," segir Bubbi Morthens í samtali við Vísi. Bubbi er síður en svo sáttur með Dóra sem gagnrýndi þáttinn hans, Bandið hans Bubba, í DV fyrir skömmu.
Á glænýrri heimasíðu sinni tekur Bubbi þátt í umræðum um þáttinn og talar um gagnrýni DV og Fréttablaðsins.
Hann segir Dóra ekki hafa náð lengra en að skrifa um kvikmyndir og bandið hans Bubba.
Dóri sem heitir réttu nafni Halldór Halldórsson er barnabarn Halldórs Laxness. Hann var nokkuð hissa á þessum ummælum Bubba Morthens þegar Vísir náði af honum tali.
„Útþynnt gen frá afa mínum er meira en Bubbi Morthens getur nokkurntíma státað sig af. Mér finnst ótrúlegt að stærsti tónlistarmaður okkar íslendinga skuli leggjast svona lágt," segir Dóri.
Aðspurður segist Bubbi hinsvegar gríðarlega ánægður með þáttinn sinn. „Þetta er frábær þáttur, og hann á bara eftir að batna."
http://www.dv.is/skrafadogskrifad/lesa/5230
Bubbi Morthens er dáður af stórum hluta þjóðarinnar vegna tónlistar og sumpart persónutöfra. Vandi hans liggur hins vegar í því að innst inni er hann eitt skjálfandi lítið blóm sem tekur gagnrýni af lítilmennsku.
Halldór Halldórsson, Dóri DNA, skrifaði gagnrýni á þátt hans, Bandið hans Bubba, í DV og var ekki hrifinn af þættinum. Meistari Bubbi brást við með því að hrakyrða Dóra af slíku offorsi að sjaldan hefur annað eins sést á prenti. Hann gerir því skóna að genasamsetning Halldórs séu útþynnt útgáfa af genum afa hans, Halldórs Kiljans Laxness. Þetta eru viðbrögð rökþrota manns sem glímir við eitthvert afbrigði af minnimáttarkennd.
Viðbrögð Bubba, sem sjálfur er einstaklega viðkvæmur fyrir umfjöllun, eru í senn grátleg og hlægileg. Hann ætti að skammast sín til að biðja Dóra afsökunar á bullinu og óhróðrinum. Dóri DNA hefur engin þau einkenni að ástæða sé til þess að halda því fram að í honum felist hnignun ættbogans. Og hann hefur fullt leyfi til að setja fram, í eigin nafni, sína skoðun á verkum Bubba á meðan hann heldur því ekki fram að hann sé fallinn.
Hvers vegna Dóri DNA í stað Halldór Halldórsson. Veit það einhver ?
Ekki eru nú stórmannlegri skrifin hjá Reyni Traustasyni.
#10
Posted 24 February 2008 - 04:16
Ég ætti kannski að blanda mér í þessa umræðu, annar DNA útþynningurinn af einum mesta listamanni þjóðarinnar. Ágætt hjá Bubba, segir upphátt eitthvað sem margir hugsa á Íslandi og við afkomendur þessa fólks verðum svo að lýða fyrir. Kannski þess vegna að svo mörg okkar búa erlendis.
Við sem stundum ræktun vitum að það er engin trygging fyrir því að afkomendur kynbótahesta verði gæðingar. En þú ræktar ekki undan truntu í von um kappreiðahest. Svo er líka að miklir listamenn ná stundum árangri vegna þess að það vantar í þá á öðrum sviðum, við afkomendurnir erfum stundum þessa vöntun án hæfileikana.
Ég ætla ekkert að dæma um hvort Bubbi hefði átt að láta þetta út úr sér, upphefur hann svo sannarlega ekki né niðurlægir Halldór. Ég ánægður með Bubba segir það sem sum ykkar hugsa. Eða með öðrum orðum Bubbi getur étið það sem úti frýs, og þið líka sem hugsið eins og hann. Breytir því ekki að Bubbi er mikill listamaður. Eða eins og ég sagði, listamenn ná oft árangri vegna þess að að vantar í þá stór stykki, stykkið sem er ekki í Bubba á stærð við hæfileika hans.

1 user(s) are reading this topic
0 members, 1 guests, 0 anonymous users