Jump to content


Bubbi búinn að opinbera lítilmennsku sína


14 replies to this topic

#11 Charles Darwin

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3926 posts
  • Gender:Male
  • Location:Þar sem sést ekki til álvers
  • Interests:Ekkert er mér óviðkomandi.

Posted 24 February 2008 - 08:51

QUOTE (jóhann jóhannsson @ Feb 22 2008, 8:29) <{POST_SNAPBACK}>
Hvers vegna Dóri DNA í stað Halldór Halldórsson. Veit það einhver ?


Spyr af því sama? Er þessi drengur (sem fáir virðast þekkja, s.k. Séð & Heyrt kynslóð) ekki að bjóða uppá svona ummæli?
Hallærislegt að uppnefna sjálfan sig. Tala nú ekki um þegar fjölmiðlafíflin éta þetta upp eins og óðs manns skít.
Darwin: Ekki bara loðinn rass!

#12 Harakiri

    Mæltur

  • Notendur
  • 97 posts

Posted 24 February 2008 - 18:59

Halldór Halldórsson byrjaði að rappa fyrir nokkrum árum undir nafninu Dóri DNA og því hefur það festst við hann.

En þessi skrif Bubba finnst mér afar niðurlægjandi fyrir hann sjálfan. Bubbi æpir þarna og emjar eins og frekur fimm ára krakki. Ég missti mikið álit á honum eftir þessi skrif.

#13 Ekard

    Mæltur

  • Óvirkir notendur
  • 79 posts

Posted 24 February 2008 - 19:54

QUOTE (Ingimundur Kjarval @ Feb 24 2008, 4:16) <{POST_SNAPBACK}>
Ég ætti kannski að blanda mér í þessa umræðu, annar DNA útþynningurinn af einum mesta listamanni þjóðarinnar. Ágætt hjá Bubba, segir upphátt eitthvað sem margir hugsa á Íslandi og við afkomendur þessa fólks verðum svo að lýða fyrir. Kannski þess vegna að svo mörg okkar búa erlendis.

Við sem stundum ræktun vitum að það er engin trygging fyrir því að afkomendur kynbótahesta verði gæðingar. En þú ræktar ekki undan truntu í von um kappreiðahest. Svo er líka að miklir listamenn ná stundum árangri vegna þess að það vantar í þá á öðrum sviðum, við afkomendurnir erfum stundum þessa vöntun án hæfileikana.

Ég ætla ekkert að dæma um hvort Bubbi hefði átt að láta þetta út úr sér, upphefur hann svo sannarlega ekki né niðurlægir Halldór. Ég ánægður með Bubba segir það sem sum ykkar hugsa. Eða með öðrum orðum Bubbi getur étið það sem úti frýs, og þið líka sem hugsið eins og hann. Breytir því ekki að Bubbi er mikill listamaður. Eða eins og ég sagði, listamenn ná oft árangri vegna þess að að vantar í þá stór stykki, stykkið sem er ekki í Bubba á stærð við hæfileika hans.


Ég verð nú bara að segja það að þú hlýtur að vera með þónokkuð af ´"góðu" genunum og átt aðeins eftir að þroska hæfileika þína og fínpússa. Vertu bara grobbinn af þínum genum. Eins er með Dóra barnabarn Laxness, mér skilst að hann sé fullur af hæfileikum í allar áttir en mjög ungur og ómótaður. Er einfaldlega á "tilraunatímabilinu" að prófa hitt og þetta, eins og við flestir gerum sem ungir menn. En þetta viðhorf Bubba og í hvaða samhengi það er sett fram er með því ósmekklegasta sem nokkur persónuleiki getur búið yfir. Og það er Bubbi. Ósmekklegur, frekur og sjálfsmiðaður og rúllar svo yfir aðra á drullugum skóm. En af því hann gerði þetta opinberlega þá er ekkert mál fyrir Dóra að fara í mál við hann fyrir illvilja og illt umtal en það er samkvæmt Íslenskum lögum saknæmt að bera menn óhróðri og háði.

Bubbi aftur á móti er algerlega sá hæfileikalausasti maður sem ég veit um og alltaf jafn furðulegt hvað hann hefur náð langt í tónlistinni. Allir hans textar bera þess merki að hann kann ekki að setja saman skammlausa vísu og ber fyrir sig lesblindu, en sendir samt frá sér hvílíkt hnoð og rembing - um leið og hann sendir frá sér nýja plötu hlaupa allir sem eru falskir og hljóðvilltir út í búð og kaupa plötuna og svo "föstu aðdáendurnir" . Eins er að hlusta á aumingja manninn tala - hann er bæði flámæltur, með litla orðfærni og beygir bæði rangt en enginn minnist á það. Var að skoða heimasíðuna hans og ég tel manninn með stórmennskubrjálæði og er það helsta ástæða þess að hann ber ekki virðingu fyrir öðrum eins og sést berlega í viðhorfi hans til Dóra.

Ég segi nú bara við greyið hann Bubba að reyna að læra af þessu og verða betri maður við samferða fólk sitt í lífinu.

Menn sem búa í glerhúsi ættu ekki að vera að henda steinum.

http://www.bubbi.is/



#14 Árvakur Lýðsson

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2421 posts
  • Gender:Male
  • Location:Reykjavík

Posted 24 February 2008 - 20:19

Ég er orðinn hrikalega þreyttur á öllu þessu andskotans Bubbakjaftæði.
Hann virðist koma sér í fjölmiðlana ef ekki með góðu þá með illu.
HVAÐA LÆTI ERU ÞETTA ?

#15 Phreek

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 1561 posts
  • Gender:Female
  • Location:Hinn hýri Hafnarfjörður

Posted 25 February 2008 - 02:14

Ekki vantar tvískinnunginn hjá Bubba. Tónleikar gegn rasisma út um annað kjaftvikið, en rakkar niður samlanda sinn út um hitt. Bræður og systur? MY ASS smileydisgust.gif

I see no evil
I hear no evil
and I shut the fuck up!!





I´M A PHREEK
i´M A WEIRDO
WHAT THE HELL AM I DOING HERE?????????

I DONT BELONG HERE,

I DONT BELONG HERE!!!!!!!!!!!





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users