Jump to content


Eurovison - This is my life


40 replies to this topic

#1 7kr

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4523 posts

Posted 23 February 2008 - 22:21

Til hamingju með sigurinn!

Treystir einhver sér til þess að túlka orð Ómars?
"Glymur hæst í tómri tunnu".

Ég hef dregið mínar ályktanir, hverjar eru ykkar?
Ég hef líka mínar skoðanir á slíkum athugasemdum, en vil fá að heyra ykkar skoðun.

p.s. Hinn rétti málsháttur hljóðar svo: "Bylur hæst í tómri tunnu" (ekki glymur).

#2 Hildigunnur

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7306 posts

Posted 23 February 2008 - 22:49

QUOTE (7kr @ Feb 23 2008, 22:21) <{POST_SNAPBACK}>
Til hamingju með sigurinn!

Treystir einhver sér til þess að túlka orð Ómars?
"Glymur hæst í tómri tunnu".

Ég hef dregið mínar ályktanir, hverjar eru ykkar?
Ég hef líka mínar skoðanir á slíkum athugasemdum, en vil fá að heyra ykkar skoðun.

p.s. Hinn rétti málsháttur hljóðar svo: "Bylur hæst í tómri tunnu" (ekki glymur).



Ég hef minn skilning á því wink.gif en hef ekki hugmynd um hvort hann er réttur. Það skiptir heldur engu máli. Best að hver og einn skilji það bara á sinn eigin prívat hátt cool.gif


Glymur og bylur hefur sömu merkingu í þessu samhengi svo það skiptir ekki heldur máli

Edited by Hildigunnur, 23 February 2008 - 22:50.

Við erum öll á þeirri skoðun að heimurinn mætti vera öðruvísi, meðan enginn leiðir hugann að því hvernig megi breyta sjálfum sér.

Almenn skynsemi er takmörkuð auðlind, þeir sem hafa hana hljóta því að spara hana.



Hildigunnur, heimsins bezta norn.
Hjarta þitt er fullt af ást og hlýju.
Í þér býr öll mannkyns fræði forn.
Þú finnur lausn á vanda og táli nýju
.


(þetta er eftir Grandvaran og ég er afskaplega hróðug :) )

#3 7kr

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4523 posts

Posted 23 February 2008 - 23:34

QUOTE (Hildigunnur @ Feb 23 2008, 22:49) <{POST_SNAPBACK}>
Ég hef minn skilning á því wink.gif en hef ekki hugmynd um hvort hann er réttur. Það skiptir heldur engu máli. Best að hver og einn skilji það bara á sinn eigin prívat hátt cool.gif


Glymur og bylur hefur sömu merkingu í þessu samhengi svo það skiptir ekki heldur máli


Auðvitað skiptir það í raun engu máli.
Ekki frekar en það skiptir máli þótt sagt sé: "brennt ungviði forðast eldinn". Það skilst þótt rangt sé farið með.
En það er, já, annað mál.

Hinsvegar er fátt jafn sorglegt og að kunna ekki að sigra.

#4 Lisbon

    Talandi

  • Óvirkir notendur
  • Pip
  • 209 posts

Posted 23 February 2008 - 23:43


Pilturinn veit náttúrlega að hann er tónlistarlegur dvergur miðað við ýmsa aðra sem þarna voru að taka þátt.

Minnimáttarkenndin lak af þessu ömurlega hallærislega kommenti hans.

Það verður sorglegt að þetta tónlistarlega smámenni skuli eiga að vera fulltrúi Íslands í Eurovision.

Hann vann náttúrlega bara af því það tókst að telja nógu mörgum trú um að svona ömurlegt formúlujukk myndi smellhitta í Evrópu.

Við hefðum getað sent eitthvað skemmtilegt.

En völdum þetta.

Það er okkur sjálfum að kenna.

En þetta komment tónlistarlega dvergsins veldur því að ég að minnsta kosti get ekki einu sinni þóst halda með honum í Eurovision.

Skammarlegt!



#5 human

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 11699 posts
  • Gender:Female
  • Location:Hafnarfjörður
  • Interests:Still just Human.....

Posted 23 February 2008 - 23:46

QUOTE (Lisbon @ Feb 23 2008, 23:43) <{POST_SNAPBACK}>
Pilturinn veit náttúrlega að hann er tónlistarlegur dvergur miðað við ýmsa aðra sem þarna voru að taka þátt.

Minnimáttarkenndin lak af þessu ömurlega hallærislega kommenti hans.

Það verður sorglegt að þetta tónlistarlega smámenni skuli eiga að vera fulltrúi Íslands í Eurovision.

Hann vann náttúrlega bara af því það tókst að telja nógu mörgum trú um að svona ömurlegt formúlujukk myndi smellhitta í Evrópu.

Við hefðum getað sent eitthvað skemmtilegt.

En völdum þetta.

Það er okkur sjálfum að kenna.

En þetta komment tónlistarlega dvergsins veldur því að ég að minnsta kosti get ekki einu sinni þóst halda með honum í Eurovision.

Skammarlegt!

stressed.gif Er þetta persónulegt?

Vinarkveðjur Human...

#6 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10765 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góður matur.

Posted 23 February 2008 - 23:49

Einhver skilgreindi geðveiki sem "endurtekningu á sama ferlinu, í von um aðra niðurstöðu". Enn eina ferðina erum við að senda lamað froðupopp, haldandi það að gæði lagsins hafi nokkuð með froðukeppni sem Eurovision að gera. Og enn eina ferðina komumst við ekkert áfram. En partíið verður gott smile.gif

Dr. Spock átti að vinna. Það hefði örugglega komist áfram í aðalkeppnina, í það minnsta. Sama og EuroVisa hér um árið.

"Hæst glymur" ruglið var augljóst skot á Gilsneigger eða hvað sem hann heitir sá ágæti maður. Friðrik missti þetta ekkert út úr sér, hann hugsaði sig um. F***ing lame.
"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#7 Gorgon

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3389 posts
  • Gender:Male

Posted 24 February 2008 - 00:07

QUOTE (fleebah @ Feb 23 2008, 23:49) <{POST_SNAPBACK}>
En partíið verður gott smile.gif


Er það ekki það sem þetta snýst í raun og veru um? Afsökun fyrir fylleríi og partíum?

Mér finnst alla vega bjánalegt að henda tugmilljónum (eins og þetta hlýtur að hafa kostað) af skattfé í þessa vitleysu. Sérstaklega þegar inn í hana er troðið auglýsingum í bak og fyrir. Það heitir að eiga kökuna og borða hana líka.

Ef virkilegur áhugi er fyrir þessu efni mega einkaaðilar vel sjá um það. Ég sé engin rök fyrir því að halda þessu uppi með almannafé.


#8 Gesturinn

    Talandi

  • Óvirkir notendur
  • Pip
  • 180 posts

Posted 24 February 2008 - 00:14

Ansi gaman að þessu sjói. Mörg fín lög í lokakeppninni. Hvort besta lagið hafi unnið veit ég ekki, en sjóið var skemmtilegt.

#9 Pallas Aþena

    Rithæfur

  • Óvirkir notendur
  • PipPipPip
  • 4039 posts

Posted 24 February 2008 - 00:21

QUOTE (Gesturinn @ Feb 24 2008, 0:14) <{POST_SNAPBACK}>
Ansi gaman að þessu sjói. Mörg fín lög í lokakeppninni. Hvort besta lagið hafi unnið veit ég ekki, en sjóið var skemmtilegt.


Sammála þessu.


user posted image

#10 Reilly

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 8418 posts
  • Gender:Not Telling

Posted 24 February 2008 - 01:25

Heimska, flata, hallærislega þjóð.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users