Jump to content

Bankaumræðan í Silfrinu

59 replies to this topic

#51 rimryts

    Málóður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPip
  • 18579 posts

Posted 26 February 2008 - 15:54

QUOTE (Nuff @ Feb 25 2008, 12:49) <{POST_SNAPBACK}>
Er eitthvað eitt frekar en annað sem gerir Andrés lækni trúverðugri en aðra?
Er hann kannski að lýsa þínum eigin prívat skoðunum?

Fjármálaráðherrann er líka læknir...nokkuð sem mörgum hefur þótt mikill dragbítur fyrir hann. Menntun hans gerir hann óhæfan til að vera fjármálaráðherra að ykkar sögn.

Andrés var aðallega að lýsa staðreyndum. Hann vísaði í skýrslur Seðlabankans og þar kemur fram að nettóskuldir Íslendinga (eignir-skuldir) erlendis hafa vaxið með hverju ári útrásarinnar. Einnig benti hann á að skuldir íslenska þjóðarbúsins séu þær mestu í heimi og td hlutfallslega miklu hærri en skuldir bandarísla þjóðarbúsins sem er mörgum mikið áhyggjuefni. Það er því ljóst að í velmegun siðustu ára höfum við verið að lifa um efni fram og það kemur að skuldadögunum.

Stærsti liðurinn í skuldum þjóðarbúsins eru skuldir bankanna. Ég varð hins vegar ekki var við að Andrés hefði sagt að íslensku bankarnir væru þeir skuldugustu í heimi enda held ég að það sé alls ekki rétt. Ég hef verið að skoða ársreikninga íslensku bankanna og borið þá saman við erlenda banka. Það kom verulega á óvart að þeir evrópsku bankar sem ég skoðaði voru mun skuldugri en allir íslensku bankarnir sem hlutfall af bæði eigið fé og markaðsverðmæti. Handbært fé íslensku bankanna er hins vegar hlutfallslega miklu lægra en þessara erlendu banka. Það er þó samtals um ca 870 milljarða.

#52 feu

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 27458 posts
  • Gender:Male
  • Location:Iceland

Posted 26 February 2008 - 16:29

QUOTE (rimryts @ Feb 26 2008, 15:54) <{POST_SNAPBACK}>

Þið eruð að misskilja þetta mál allt saman..

Andrés var að tala um línurit sem ég setti inn hérna fyrir nokkrum dögum, á viðskiptaþræðinum. Línurit um hreina skuldastöðu við útlönd. Þ.e. erlendar skuldir umfram erlendar eignir, ekki heildar skuldastöðu bankanna.

Og Íslendingar skulduðu 2x VLF 2006. Mig grunar fastlega að þessi tala sé nálægt 3.5xVLF í dag. Bandaríkin skulda 0.35xVLF.

#53 Gangleri

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3416 posts
  • Gender:Male

Posted 26 February 2008 - 16:43

QUOTE (feu @ Feb 26 2008, 16:29) <{POST_SNAPBACK}>
Íslendingar skulduðu 2x VLF 2006. Mig grunar fastlega að þessi tala sé nálægt 3.5xVLF í dag. Bandaríkin skulda 0.35xVLF.

Staðan var 2.26xVLF í lok þriðja ársfjórðungs 2007.

#54 feu

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 27458 posts
  • Gender:Male
  • Location:Iceland

Posted 26 February 2008 - 16:45

QUOTE (Gangleri @ Feb 26 2008, 16:43) <{POST_SNAPBACK}>
Staðan var 2.26xVLF í lok þriðja ársfjórðungs 2007.

Síðan þá hefur þrennt gerst.

1) Gengið hefur fallið um rúm 10%

2) Erlendar eignir, þ.e. erlend hlutabréf hafa hríðfallið.

3) Bankarnir hafa aukið lántökur sínar, luku við að "endurfjármagna" sig í lok ársins 2007.

#55 Gangleri

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3416 posts
  • Gender:Male

Posted 26 February 2008 - 17:50

QUOTE (feu @ Feb 26 2008, 17:45) <{POST_SNAPBACK}>
Síðan þá hefur þrennt gerst.

1) Gengið hefur fallið um rúm 10%

2) Erlendar eignir, þ.e. erlend hlutabréf hafa hríðfallið.

3) Bankarnir hafa aukið lántökur sínar, luku við að "endurfjármagna" sig í lok ársins 2007.

Punktur # 2 vekur þá spuningu hvernig bankarnir bókfæra erlendar pappírseignir sínar - á kaupverði eða markaðsverði?

#56 rimryts

    Málóður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPip
  • 18579 posts

Posted 26 February 2008 - 17:52

QUOTE (feu @ Feb 26 2008, 16:29) <{POST_SNAPBACK}>
Þið eruð að misskilja þetta mál allt saman..

Andrés var að tala um línurit sem ég setti inn hérna fyrir nokkrum dögum, á viðskiptaþræðinum. Línurit um hreina skuldastöðu við útlönd. Þ.e. erlendar skuldir umfram erlendar eignir, ekki heildar skuldastöðu bankanna.

Og Íslendingar skulduðu 2x VLF 2006. Mig grunar fastlega að þessi tala sé nálægt 3.5xVLF í dag. Bandaríkin skulda 0.35xVLF.

Mér sýnist þú vera að misskilja innleggið ef þú hefur þá lesið það.

Ég tók einmitt fram að Andrés hefði talað um nettóskuldir (eignir-skuldir) þjóðarbúsins þó að hann hefði tekið fram að bankarnir ættu stærstan þátt í þessum skuldum.

Ég tók einmitt fram að hann hefði ekki sagt að íslensku bankarnir væru skuldugustu bankar í heiminum eins og kemur fram í upphafsinnlegginu.

#57 thokri

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3248 posts
  • Gender:Male

Posted 26 February 2008 - 23:22

Hér er skýrslan frá Seðlabankanum sem sýnir þetta í árslok 2006. Línuritið sem sýnir skuldir sem hlutfall af vergri landsframleiðslu er neðst á bls 74

http://www.sedlabanki.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=5251

Í þessari skýrslu segir meðal annars

"Alls námu erlendar skuldir 5.916 ma.kr. í árslok 2006, en erlendar eignir
alls 4.518 ma.kr. Hrein staða var því neikvæð um 1.397 ma.kr. eða
um 122% af vergri landsframleiðslu (sjá mynd 1). Sé einungis litið til
hreinnar erlendrar skuldastöðu, þ.e.a.s. hreinnar stöðu án áhættufjármagns,
er staðan neikvæð um 2.371 ma.kr. eða sem nemur rúmlega
tvöfaldri landsframleiðslu ársins 2006.
"

Það sem ég hef verið að spá í er þáttur bankanna í húsnæðislánum íslendinga. Það segir í skýrslunni að hér se verið að taka mismunin á erlendum skuldum á móti erlendum eignum. Það er ljóst að sæmilegur hluti af skuldum bankanna hefur farið í að fjármagna íslenskan húsnæðismarkað. Ég veit ekki hversu stórar tölur liggja í húsnæðislánum bankanna en gæti giskað á að það væru kannski um 800-1000 milljarðar. Þarf ekki að taka tillit til þessara stærða þegar verið er að bera saman eignir og skuldir.

Það hefur verið mikil uppbygging á Íslandi undanfarin ár og ný hverfi spretta hratt upp svo einhver séu nefni Grafarholt Kórahverfi Salahverfi Berjahverfi og hvað þetta allt heitir. Það er mikil eignarmyndun sem hefur átt sér stað á Íslandi sem þarf líka að taka tillit til.

Vil samt taka það fram að ég tel að bankarnir hafi farið algeru offari í lánastarfsemi og gróðahyggju undanfarin ár.
Þórhallur Kristjánsson

#58 Gangleri

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3416 posts
  • Gender:Male

Posted 26 February 2008 - 23:51

QUOTE (thokri @ Feb 26 2008, 23:22) <{POST_SNAPBACK}>
Það sem ég hef verið að spá í er þáttur bankanna í húsnæðislánum íslendinga. Það segir í skýrslunni að hér se verið að taka mismunin á erlendum skuldum á móti erlendum eignum. Það er ljóst að sæmilegur hluti af skuldum bankanna hefur farið í að fjármagna íslenskan húsnæðismarkað. Ég veit ekki hversu stórar tölur liggja í húsnæðislánum bankanna en gæti giskað á að það væru kannski um 800-1000 milljarðar. Þarf ekki að taka tillit til þessara stærða þegar verið er að bera saman eignir og skuldir.

Það hefur verið mikil uppbygging á Íslandi undanfarin ár og ný herfi spretta hratt upp svo einhver séu nefni Grafarholt Kórahverfi Salahverfi Berjahverfi og hvað þetta allt heitir. Það er mikil eignarmyndun sem hefur átt sér stað á Íslandi sem þarf líka að taka tillit til.

Íbúðabyggingar eru langtímafjárfesting sem skilar engum gjaldeyristekjum fyrir þjóðarbúið.

Erlend skammtíma fjármögnun á slíkum fjárfestingum er glapræði sem nálgast fjárglæfra.

#59 Kikyou

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2257 posts
  • Gender:Male
  • Location:Garðabæ

Posted 27 February 2008 - 00:07

QUOTE (Skrolli @ Feb 25 2008, 11:40) <{POST_SNAPBACK}>
Fróðlegt að hlusta á Andrés Magnússon lækni lýsa ,,íslenska efnahagsundrinu" í Silfrinu í gær. Eins og flestir vita, kostar það íslenska lántakendur þrefalt meira að taka lán í íslenskum bönkum en nágrannar þeirra á Norðurlöndunum! Þessi munur sé ,,réttlættur" með háum stýrivöxtum Seðlabankans. Fram kom einnig að íslenska útrásin sé stórlega ofmetin, þar sem bankarnir skulda sem nemur meira en 200% af landsframleiðslu, og eru langskuldsettastir a.m.k. í hinum vestræna heimi.

Eiga íbúar þessa lands að sætta sig við svona rugl?
Á það ekki að vera skýlaus krafa fólksins að sótt verði um aðild að Evrópusambandinum...helst í gær?!

Munntóbak er bannað í EU, ekki sjens fyrr skal ég dauður liggja.
LLF - Give Me Liberty ... Or Eat Lead!

#60 Brodd-Helgi

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9657 posts

Posted 27 February 2008 - 00:32

Já, Það er bara svo margt furðulegt í þessum peningamálum, að maður fattar það ekki alveg.

Td. segir í skýrslunni að ofan:

"Erlendar skuldir
...
Erlendar skuldir innlánsstofnana voru 82% af erlendum
skuldum Íslendinga....

Skuldaaukningin er að verulegu leyti spegilmynd erlendu eignaaukningarinnar.
Íslensku bankarnir hafa að stórum hluta haft milligöngu
um útvegun erlends fjármagns til innlendra fjárfesta en bankarnir hafa
einnig sjálfir verið umsvifamiklir í fjárfestingu erlendis. Auk þess hefur
talsverður hluti af erlendri skuldaaukningu bankanna fjármagnað innlend
útlán sem að hluta til hafa verið nýtt af innlendum fjárfestum
til fjárfestingar erlendis.
...
Hafa tekjur af erlendum eignum hækkað í samræmi
við aukningu þeirra?

Athygli vekur að um 41% af erlendum eignum þjóðarbúsins er það
sem flokka má sem áhættufjárfestingu, þ.e. bein fjárfesting og hlutafé
í verðbréfafjárfestingu."

Ég veit ekki, en mér persónulega finnst þetta ekkert voðalega traustvekjandi. En etv er þetta í rauninni voðalega kúl.

Ég er farinn að hallast að því, að það sé eitthvað bogið við þetta allt. (þó er ég ennþá open minded. Kanski íslendingar séu bara snillingar í fjárfestingum ýmiskonar af Guðs náð)

I grew up in Europe, where the history comes from (Eddie Izzard)

1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users