Jump to content


Goodfellas


2 replies to this topic

#1 Herkúles

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12763 posts

Posted 25 February 2008 - 17:34

Er við hæfi að fréttamaður flaðri svona upp um ráðandi stjórnmálamann stressed.gif



Vísir.is

Beint í meginmál síðu.

Vísir, 25. feb. 2008 11:20
Sólbrenndur heim

Ég hef ýmislegt reynt í sjónvarpsmennskunni en aldrei fyrr hefur þurft að hvíta mig fyrir útsendingu.

Það gerðist í gær.

Ég kom svo sólbrenndur af skíðum frá ítölsku ölpunum um helgina að fyrst þurfti að setja sérstakt lag af hvítu sminki á fésið á mér áður en hefðbundna förðunin tók við.

Þar með var ég tilbúinn í Mannamál gærkvöldsins.

Félagi Geir H. Haarde, aðalgestur minn í gær, horfði forviða á þessar aðfarir Rakelar Ottesen sminku í förðunarstólnum uppi á Lynghálsi - og báðir vorum við þakklátir fyrir að vera karlmenn; þurfa ekki að standa í þessu óláns sminkveseni á hverjum morgni ...

... en erum þó líkast til báðir með sminkuðustu mönnum landsins, starfa okkar vegna.

Það er önnur Ella.

Geir virkaði vel á mig í gær. Yfirvegaður þrátt fyrir furðulega framvindu í borginni. Ég saumaði náttúrlega að honum en hann svaraði alltaf ærlega.

Mér finnst hann afskaplega heill stjórnmálamaður - og það er engin tilviljun að hann mælist með himinskautum í könnun Fréttablaðsins um traust landsmanna á pólitíkusum.

Hann er einfaldlega traustur. Enginn fígúrustjórnmálamaður. En umfram allt traustur.

Gaman svo að sjá að Ingibjörg Sólrún er hætt að vera umdeildi stjórnmálamaðurinn; sjallarnir greinilega búnir að taka hana í sátt ...

Svona er pólitíkin skrykkjótt ...

-SER. (Sigmundur Ernir R.)

#2 Locke

    Rithæfur

  • Bannaðir
  • PipPipPip
  • 2715 posts
  • Gender:Male

Posted 25 February 2008 - 22:35

Fallið verður bara þeim mun hærra þegar fréttamennirnir fella hann.

#3 Herkúles

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12763 posts

Posted 26 February 2008 - 11:06

....hvað varð um hið sjálfstæða, óháða 4. vald stressed.gif





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users