![]() ![]() |
28. February, 2008, 13:58
Post
#21
|
|
|
Talandi ![]() Group: Notendur Posts: 218 Joined: 15. February 2008 Member No.: 10079 |
Þetta er ómögulegt í framkvæmd og skilningur þinn á mannréttindum er ekki sá sami og tíðkast hefur í alþjóðalögum og samningum. Það er ekki hægt að meta það huglægt hvernig refsing virkar mismunandi vel á menn og dæma eftir því. Grundvallar atriði í dómskerfinu er að eitt skuli yfir alla ganga. Þess vegna er litið til fordæmisgefandi dóma. Á ég t.d. að fá styttri dóm en einhver annar, af því að ég er mikill útivistarmaður og félagsvera, þannig að innilokun yrði verri fyrir mig en hann? Klárlega ekki. jú er það ekki |
|
|
|
28. February, 2008, 13:59
Post
#22
|
|
![]() Rithæfur ![]() ![]() ![]() Group: Bannaðir Posts: 3209 Joined: 13. September 2007 From: Ytri Klúku - Melrakkasléttu Member No.: 8660 |
Þetta er hreint mannréttindabrot og ótrúlegt ef einhverjir illa tjónaðir málverjar ætla að tala fyrir svona óréttlæti í réttarfarinu. Auðvitað er það grundvallaratriði í réttarkerfinu að allir sitji við sama borð og fái sömu dóma fyrir sama athæfi. Menn vilja kannski að svartir fái þyngri dóma en hvítir, og karlar þyngri dóma en konur, fyrir sömu glæpi? Ég held að sumir hérna ættu að láta skoða alvarlega innihaldið í hausnum á sér! Ef eitthvað innihald er þar yfirleitt? -------------------- " Eitt sinn skáti - ávallt skáti ! "
|
|
|
|
28. February, 2008, 14:31
Post
#23
|
|
![]() Mælskur ![]() ![]() ![]() Group: Notendur Posts: 1073 Joined: 18. January 2004 Member No.: 1850 |
Danir geta verið solldið klik.
-------------------- Komdu fram við aðra eins og þú villt aðrir komi fram við þig
-------------------------------------------------------------------------------------------------------- 'De som fornærmer Allahs budbringer, skal møde smertefulde pinsler'. ................................................................................ .................................................. infelám er haldinn óradísar heilkennum. |
|
|
|
28. February, 2008, 14:52
Post
#24
|
|
|
Rithæfur ![]() ![]() ![]() Group: Notendur Posts: 4618 Joined: 27. May 2005 Member No.: 5714 |
|
|
|
|
28. February, 2008, 15:09
Post
#25
|
|
![]() Málfær ![]() ![]() Group: Notendur Posts: 648 Joined: 14. April 2006 Member No.: 6865 |
Sko Bíbí, nú er ég ánægður með kallinn!
http://m5.is/?gluggi=frett&id=44742 Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hitti Petras Baguska, dómsmálaráðherra Litháens, og Egle Radusyte, aðstoðardómsmálaráðherra Litháens, í sendiráði Íslands í Brussel að morgni 28. febrúar 2008. Í tilkynningu vegna fundarins segir að hann hafi verið haldinn að ósk Björns Bjarnasonar til að ræða flutning Litháa, sem íslenskir dómstólar hafa dæmt til fangavistar, til afplánunar í ættlandi sínu. Petras Baguska samþykkti, að þessi tilhögun yrði höfð vegna þeirra fanga sem falla undir ákvæði samnings Evrópuráðsins um flutning dæmdra manna frá 1983 og viðauka við hann frá 1997, enda yrði farið að ákvæðum hans. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur nú þegar hafið undirbúning flutnings tveggja Litháa sem eru í afplánun á Litla-Hrauni. |
|
|
|
28. February, 2008, 16:01
Post
#26
|
|
|
Málóður ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Group: Notendur Posts: 18579 Joined: 16. May 2004 Member No.: 3449 |
Þetta er hreint mannréttindabrot og ótrúlegt ef einhverjir illa tjónaðir málverjar ætla að tala fyrir svona óréttlæti í réttarfarinu. Auðvitað er það grundvallaratriði í réttarkerfinu að allir sitji við sama borð og fái sömu dóma fyrir sama athæfi. Menn vilja kannski að svartir fái þyngri dóma en hvítir, og karlar þyngri dóma en konur, fyrir sömu glæpi? Ég held að sumir hérna ættu að láta skoða alvarlega innihaldið í hausnum á sér! Láttu ekki eins og kjáni. Það er vel þekkt að dómar taka mið af aðstæðum. Ef einhver er dæmdur til refsingar verður með einhverjum hætti að sjá til þess að hann taki út refsingu. Til þess er leikurinn gerður. Það er ekki markmiðið með fangaelsisdómi að halda uppi erlendum föngum á kostnað skattborgara. Þetta er eflaust vel hægt ef það er gert innan ramma laganna. Og svo væri hægt að breyta lögum ef nauðsyn bæri til. Annars eru þessi viðbrögð þín stórfurðuleg. Þú hleypur upp á nef þér bara vegna þess að ég lýsi því yfir að menn eigi að hugleiða hvað sé hægt að gera til að bregðast við þeim vanda að fangeslisvist fanga frá Austur-Evrópu er í reynd ekki nein refsing fyrir þá. Og þess vegna ekki fælandi frá frekari afbrotum, hvorki þeirra sjálfra né annarra. Er þetta útlendingadekrið alræmda? Annars sýnist mér vera komin lausn á þessum vanda ef erlendir fangar verða látnar afplána sína refsingu í heimalandinu. |
|
|
|
28. February, 2008, 17:05
Post
#27
|
|
|
Rithæfur ![]() ![]() ![]() Group: Notendur Posts: 4618 Joined: 27. May 2005 Member No.: 5714 |
Annars eru þessi viðbrögð þín stórfurðuleg. Þú hleypur upp á nef þér bara vegna þess að ég lýsi því yfir að menn eigi að hugleiða hvað sé hægt að gera til að bregðast við þeim vanda að fangeslisvist fanga frá Austur-Evrópu er í reynd ekki nein refsing fyrir þá. Og þess vegna ekki fælandi frá frekari afbrotum, hvorki þeirra sjálfra né annarra. Er þetta útlendingadekrið alræmda? Er það útlendingadekur að vilja standa vörð um grundvallar mannréttindi og um undirstöður réttarríkisins? Er það útlendingadekur að telja það vera hornstein lýðræðisins að allir séu jafnir fyrir lögunum? Nei. Þú, rimryts, ert úti að aka í þessu máli. |
|
|
|
28. February, 2008, 17:58
Post
#28
|
|
![]() Rithæfur ![]() ![]() ![]() Group: Bannaðir Posts: 3209 Joined: 13. September 2007 From: Ytri Klúku - Melrakkasléttu Member No.: 8660 |
Satt að segja er þessi andúð gegn erlendu fólki hér orði vægast sagt afar óhugnalegt. Vona að fólk geri sig grein fyrir því að ferðamenn hljóta einnig að verða fyrir barðinu af ofbeldisöflum sem vilja sýna " yfirburði hreinræktaðs kynstofn Íslendinga." -------------------- " Eitt sinn skáti - ávallt skáti ! "
|
|
|
|
28. February, 2008, 18:02
Post
#29
|
|
![]() Málfær ![]() ![]() Group: Notendur Posts: 648 Joined: 14. April 2006 Member No.: 6865 |
Er eitthvað athugavert við andúð gegn glæpahyski?
Hér hefur verið rætt um að koma útlendum glæpamönnum heim til sín til afplánunar,geturðu bent á eitthvað hér sem bendir til andúðar gegn erlendum ferðamönnum. Hver hefur verið að tala um yfirburði Íslenska kynstofnsins hér? |
|
|
|
28. February, 2008, 18:08
Post
#30
|
|
![]() Rithæfur ![]() ![]() ![]() Group: Bannaðir Posts: 3209 Joined: 13. September 2007 From: Ytri Klúku - Melrakkasléttu Member No.: 8660 |
Þetta á nú við um umræðuna almennt um útlendinga og nýbúa í landinu. Að koma glæpamönnum úr landi þykir mér vera sjálfsagt mál, sem og að hindra dæmda glæpamenn í að koma inn í landið. -------------------- " Eitt sinn skáti - ávallt skáti ! "
|
|
|
|
![]() ![]() |
| Lo-Fi Version | Time is now: 7. September, 2010, 23:18 |