Það gerir ekki nokkurt dýr. Maðurinn hefur búið til tvöfalt siðferði. Siðferði þess sem á allt og siðferði þess sem á ekkert. Siðferðið felst í því að sá sem á allt eignast meira og sá sem á ekkert eignast helst ekkert um ævina nema vonina um að eignast eitthvað meira. Ríki maðurinn borgar helst ekki skatta til samfélagsins því það er eiginlega bara hinna að gera það…vont að skerða auðinn. Fátæki maðurinn heldur uppi samfélaginu með skattgreiðslum sínum. Ríki maðurinn aðhyllist ekki trúarbrögð fátæka mannsins um að gefa skikkjulausum aðra skikkju sína. Þannig yrði hann bara fátækur sjálfur, atriði sem hann óttast meira en allt annað. Hann hikar ekki við að hirða einu skikkju fátæka mannsins því hann á hana svo skilið. Svona er hægt að telja lengi áfram.
Við eigum samt eftir að fá svar frá þér varðandi það að bjóða hinn vangann og að stela ekki, þú verandi á eyðieyju með 100 manns, er þetta siðferði rétt og gott að þínu mati? Og er það eðlislægt eða óeðlislægt að þínu mati?
Áhugaverð pæling hjá þér Bosshogg.
Það eina sem ég get sagt í þessu sambandi og ég vona að ég sé ekki að fara mikið út fyrir þessa hugleiðingu þína, er það að mörg lög í dag er fólk sammála að fylgja, það er sammála mörgum lögum sem því finnst halda uppi og verja hin ýmsu samvisku mál. Það eru kosnir fulltrúar þjóðarinnar er það ekki annars sem skapa lögin og fólk hópar sér saman í kringum þessa fulltrúa.
Getur ekki verið að svo hafi verið fyrir Egyptum á sínum tíma að lögin sem ákveðinn stétt samdi eða þau lög sem höfðu fylgt þeim lengi hafi flest fólk verið sammála um að fylgja eftir, mætti kannski spyrja. Þetta hlýtur að snúast um að koma sér saman um það sem sé samfélaginu til góða.
Hinsvegar eru líka samin ólög og slíkt hefur alltaf tíðkast og menn ekki verið á eitt sáttir við slíkt. Egypsk og eins trúarlegar stofnanir annarra lýða í gegnum tíðina hafa í sumum tilfellum gengið of langt í því að stjórna almenningi og valdið þjóðfélagslegu umróti á sumum tímum.
En sum lög eiga samt enn við í dag og jafnvel sem engin raun getur uppfyllt. Meðan kristindómur reyndar kemur með fyrirmæli sem kannski ekki ógilda hin 10 boðorð heldur uppfylla þau og gera þau ekki lengur að lagalegum fyrirmælum vegna þess. Hisvegar eru margir kristnir sem hafa tilhneigingu til að fylgja boðorðunum tíu eftir þegar það er ekki lengur krafist þess eins lengi og kristið fólk hllýði fyrirmmælum Jésú.
Þegar ég hef talað um lög á þessum þræði, þá er ég eingöngu að tala um siðferðislög, það sem fólki þykir til siðs, ég hef aldrei verið að tala um dómskerfi valina ríkja hvorki dagsins í dag né 2000 fyrir krist.
Ég verð að spyrja þig því sama og kkhg, þú verandi á eyðieyju með 100 manns, er það rétt að þínu mati að bjóða hinn vangann og að stela ekki? Og einnig, er það eðlislægt eða óeðlislægt?