Welcome Guest ( Log In | Register )

2 Pages V  < 1 2   Senda þráð á Fésbók
Reply to this topicStart new topic
> Fara skattarnir manns í þetta?, Er fólk svona samviskulaust að stela frá sjúkum?
Hildigunnur
post 6. March, 2008, 18:41
Post #11


Taldrjúgur
****

Group: Notendur
Posts: 7304
Joined: 3. August 2007
Member No.: 8434



QUOTE (Tembe @ Mar 6 2008, 17:42) *
Hún gerði þetta í nafni ótal bótaþega sem væntanlega hafa greitt skatt af þessu og kannski tapað einhverjum réttindum.
Við vitum bara ekkert um það.



Ef við ræðum um ásetning um að skaða einhvern tiltekinn einsog talað er um í haus þessa þráðar þá verðum við að hafa fyrirvara á dómum okkar á þessa konu.
Ef ásetningur um að skaða er eða er ekki, partur af siðleika brots kallar það þá ekki á samanburð um önnur svik gagnvart ríkissjóði ?

--------------------
Við erum öll á þeirri skoðun að heimurinn mætti vera öðruvísi, meðan enginn leiðir hugann að því hvernig megi breyta sjálfum sér.

Almenn skynsemi er takmörkuð auðlind, þeir sem hafa hana hljóta því að spara hana.



Hildigunnur, heimsins bezta norn.
Hjarta þitt er fullt af ást og hlýju.
Í þér býr öll mannkyns fræði forn.
Þú finnur lausn á vanda og táli nýju
.


(þetta er eftir Grandvaran og ég er afskaplega hróðug :) )
Go to the top of the page
 
+Quote Post
Hawk12
post 6. March, 2008, 19:07
Post #12


Málóður
******

Group: Notendur
Posts: 18096
Joined: 2. July 2003
Member No.: 71



QUOTE (Fowl @ Mar 6 2008, 16:26) *
Án þess að ég ætla að gera lítið úr þessu fjársvikamáli, þá hefur fjárdráttur nú átt sér stað í hinum ýmsu fyrirtækjum, og það þó að þar séu allir reikningar endurskoðaðir eins og lög gera ráð fyrir.

Svo er fullmikil hystería að segja að konan hafi "stolið frá sjúkum", þar sem ég veit ekki annað en að öryrkjar og aldraðir hafi fengið sínar bætur samt sem áður.

Konan stal frá ríkinu, þ.e. skattgreiðendum.



Ekki ertu að halda fram vona ég að sjúkir, aldraðir og öryrkjar séu ekki skattgreiðendur, sé svo vil ég hér með leiðrétta þessa meinvillu þína.

--------------------
Go to the top of the page
 
+Quote Post
Fowl
post 7. March, 2008, 9:39
Post #13


Rithæfur
***

Group: Notendur
Posts: 4618
Joined: 27. May 2005
Member No.: 5714



QUOTE (Hildigunnur @ Mar 6 2008, 16:12) *
Þetta er mikilvægur flötur sem þú varpar á málið Fowl. Erum við að stela frá einhverjum öðrum en þessi kona gerði þegar við vinnum svart eða svíkjum undan skatti á einhvern hátt. Auðvitað tengist stofnunin sem hún vann hjá ekkert ásetningi um frá hverjum var stolið. Það hefði eins getað verið eftirlaunasjóður ráðherra.

Hugsum þetta aðeins krakkar. Var hennar glæpur í sjálfu sér alvarlegri eða ósiðlegri en þegar við biðjum um, bjóðum eða samþykkjum viðskipti án reiknings. Það er sami sjóður sem blæðir.

Það er talsverður munur á því að draga beinlínis að sér fé annars vegar og hins vegar að svíkjast um að telja fram til skatts.

En í sjálfu sér er verið að stela frá sama aðila. Okkur öllum.
Go to the top of the page
 
+Quote Post
Sesselman
post 7. March, 2008, 12:17
Post #14


Mælskur
***

Group: Notendur
Posts: 1778
Joined: 5. August 2007
Member No.: 8443



Þegar svona fjársvikamál koma upp seint og um síðir og að því er virðist fyrir tilviljun eftir að allt hefur farið í gegnum endurskoðun, þá spyr maður sjálfan sig hvort ekki renni fjöldi svona tilfella í gegn án þess að uppgötvast. Enginn virðist taka eftir þó miklir peningar hverfi út úr fyrirtækjum með mikil umsvif, ef þeir hverfa á réttum stað í ferlinu.
Erum við að tala um að annað hvert mál uppgötvist eða eitt af hverjum tíu ?
Gerast svona hlutir í bönkunum í dag ??
Mér finnst hins vegar mjög varasamt að fara að spyrja spurninga eins og: Er þetta nokkuð verra en......................... Þá er mjög stutt í einhvers konar réttlætingu.
Go to the top of the page
 
+Quote Post
Hawk12
post 7. March, 2008, 12:28
Post #15


Málóður
******

Group: Notendur
Posts: 18096
Joined: 2. July 2003
Member No.: 71



QUOTE (Sesselman @ Mar 7 2008, 13:17) *
Þegar svona fjársvikamál koma upp seint og um síðir og að því er virðist fyrir tilviljun eftir að allt hefur farið í gegnum endurskoðun, þá spyr maður sjálfan sig hvort ekki renni fjöldi svona tilfella í gegn án þess að uppgötvast. Enginn virðist taka eftir þó miklir peningar hverfi út úr fyrirtækjum með mikil umsvif, ef þeir hverfa á réttum stað í ferlinu.
Erum við að tala um að annað hvert mál uppgötvist eða eitt af hverjum tíu ?
Gerast svona hlutir í bönkunum í dag ??
Mér finnst hins vegar mjög varasamt að fara að spyrja spurninga eins og: Er þetta nokkuð verra en......................... Þá er mjög stutt í einhvers konar réttlætingu.



Sesselman, þú kemur einmitt inn á það sem ég var að benda á, hvar er eftirlitið með þessum stofnunum jú þetta eru kallar og kellingar kosnar af alþingi okkar íslendinga og þetta hefur verið kallað að fá bitling, þetta fólk hefur ekki vit á því sem það á að sinna fyrir fimmaura.

Reindar til ég að svona lagað sé eingöngu bundið við ríkisstofnanir, þar sem svona lagað geti gengið ár eftir ár, enda eins og ég hef bent á þá er eftirlitið í höndum fólks sem ekkert veit hvert hlutverk þess raunverulega er, enda er þetta bitlingur sem því var skaffað af starfs og flokksfélgum sínum í greiða skyni.

--------------------
Go to the top of the page
 
+Quote Post
Sesselman
post 7. March, 2008, 12:42
Post #16


Mælskur
***

Group: Notendur
Posts: 1778
Joined: 5. August 2007
Member No.: 8443



Því miður sé ég enga ástæðu til að halda að svona hlutir séu frekar bundnir við ríkisstofnanir en önnur fyrirtæki. Stjórnir fyrirtækjanna eru ekki líklegastar til að uppgötva svona mál. Heldur stjórna þær því í hvaða farveg málið fer eftir að það uppgötvast. Svona mál verða að uppgötvast inni í fyrirtækjunum, með innri og ytri endurskoðun. Stjórnir fyrirtækjanna geta hugsanlega stjórnað því líka hvort málið verður gert opinbert.
Go to the top of the page
 
+Quote Post
Hildigunnur
post 7. March, 2008, 12:52
Post #17


Taldrjúgur
****

Group: Notendur
Posts: 7304
Joined: 3. August 2007
Member No.: 8434



QUOTE (Fowl @ Mar 7 2008, 9:39) *
Það er talsverður munur á því að draga beinlínis að sér fé annars vegar og hins vegar að svíkjast um að telja fram til skatts.

En í sjálfu sér er verið að stela frá sama aðila. Okkur öllum.



Þegar á allt er litið er svosem ekki stór munur þar á Fowl.
Þegar þú svíkur undan skatti ertu auðvitað að draga þér fé úr ríkissjóði og ekkert annað. Það eru bara dálítið ólíkar aðferðir notaðar til þess. Eða hver er þessi talsverði munur í raun???

--------------------
Við erum öll á þeirri skoðun að heimurinn mætti vera öðruvísi, meðan enginn leiðir hugann að því hvernig megi breyta sjálfum sér.

Almenn skynsemi er takmörkuð auðlind, þeir sem hafa hana hljóta því að spara hana.



Hildigunnur, heimsins bezta norn.
Hjarta þitt er fullt af ást og hlýju.
Í þér býr öll mannkyns fræði forn.
Þú finnur lausn á vanda og táli nýju
.


(þetta er eftir Grandvaran og ég er afskaplega hróðug :) )
Go to the top of the page
 
+Quote Post

2 Pages V  < 1 2
Reply to this topicStart new topic
1 User(s) are reading this topic (1 Guests and 0 Anonymous Users)
0 Members:

 



Lo-Fi Version Time is now: 7. September, 2010, 23:24
Design by: Free Skins & Business Forum