QUOTE (Hawk12 @ Mar 7 2008, 12:01) <{POST_SNAPBACK}>
...má vera að tíkall hjá þér sé 18.290, en það er gjaldið sem gaurinn ætlar að borga fyrir sendinguna á "fæðubótarefninu", svo kvarta aðrir yfir að þurfa að greiða þúsund kall fyrir lífsnauðsynleg lyf, en svona er lífið.
En eitt vil ég segja þér jú það er hægt að fljúga til útlanda fyrir minna en 18.290, en að gista í fleiri daga á hóteli voru ekki mín orð, svona strákar mínir slappið af, kannski "fæðubótarefnið" fari svona í ykkur, en lærið að lesa.
En eitt vil ég segja þér jú það er hægt að fljúga til útlanda fyrir minna en 18.290, en að gista í fleiri daga á hóteli voru ekki mín orð, svona strákar mínir slappið af, kannski "fæðubótarefnið" fari svona í ykkur, en lærið að lesa.
Ég hef aldrei látið fæðubótarefni inn fyrir mínar varir og er ekkert æstur. Langaði bara að benda á að ferðatöskuinnflutningur getur sjaldnast verið hagstæður. Þó mönnum svíði að borga vaskinn og tollmeðferðargjaldið, þá er það samt hagstæðara en að gera sér ferð á staðinn, svona oftast. Helsta undantekningin sem mér dettur í hug er ef varningurinn er bannaður. Nú ef maður á leið til útlanda , er oft hægt að gera góð kaup, en ekki alltaf. Ég vann á sínum tíma í ljósmyndabúð, skömmu eftir að semnæst allir tollar og vörugjöld voru felld niður á Íslandi. Þangað var stöðugur straumur af fólki með glott á vör að kynna sér hvað það hefði grætt mikið. Margir urðu fyrir vonbrigðum, því oftast var verðmunurinn óverulegur og stundum okkur í hag. Síðan voru dæmi um að fólk hefði látið plata sig og keypt eitthvað úrelt á uppsprengdu verði. Það er dálítið erfitt að leita réttar síns undir svoleiðis kringumstæðum. Annars er nafnið á þessum þræði villandi því engir tollar voru innheimtir bara vaskur og tollmeðferðargjald. Ef ég kynni ekki að lesa myndi ég ekki biðja þig að kenna mér. Ég myndi frekar leita til þín ef mig langaði að læra að kasta grjóti úr glerhúsi.








