QUOTE (dabbi2000 @ Mar 12 2008, 9:19) <{POST_SNAPBACK}>
Ég keypti erlend bréf seinasta sumar fyrir talsverða upphæð. Hugmyndin var m.a. að hafa alla vega gjaldeyrishagnað jafnvel þó fyrirtækin myndu ekki standa sig, þ.e. ég veðjaði á að ÍKR væri búin að ná toppnum. Sem og rættist. Nema hvað að núna í byrjun mars setti Etrade reglur sem leyfa mér ekki að selja bréfin og leggja andvirðið á gjaldeyrisreikning, ég er neyddur til að taka peninginn til baka í ÍKR. ÍKR hefur fallið um næstum 30% síðan seinasta sumar. NOK og SEK hafa vissulega hækkað en ÍKR hefur lækkað mun meira hlutfallslega. Gjaldeyristapið er því talsvert og ég get ekki ímyndað mér annað en að margur hér inni hafi lent í því sama án þess að hafa tekið eftir því. Það er það sem ég er að reyna að benda mönnum á og spyrja hvort menn ætli að kyngja þegjandi og hljóðlaust?
Skil þetta ekki, krónan hefur veikst undanfarna mánuði gagnvart öllum helstu erlendu myntum þannig að þú bara hlýtur að vera með gjaldeyrishagnað. Ok þú tekur peninginn út í ÍKR, þú getur þá sjálfur lagt hann jafnharðan inn á gjaldeyrisreikning ef þú kýst svo, svo ég átta mig ekki á vandamálinu ?!








