Jump to content

Er Bubbi Mortens ekki lesblindur, ja svo mikið get

16 replies to this topic

#1 Hawk12

    Málóður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPip
  • 18338 posts

Posted 10 March 2008 - 16:40

Nú er ég lítið sem ekkert inni í hvað lesblinda er, en það litla sem ég veit er að einn frændi minn fullyrti að hann hefði aldrei getað lesið bók þar sem hann væri lesblindur, samkv. því þá er þetta á einhver annan veg farið hjá Kónginu. Er Ásbjörn Mortens ekki lisblindur, þið sem þekkið þetta, útskýrið þá ef það má vera að lesblinda Bubba hafi engin áhrif við að skrifa níðgreinar og lesa svargreinarnar, hver er, eða hvað er lesblinda?

Ps. Ég fagna því að sjá að DV er komið í hausinn á málefnum.

"Vísir, 10. mar. 2008 15:36

Biggi í Maus og Bubbi í hár saman

Bubbi í góðum fíling. Bubbi Morthens heldur áfram að skrifa um menn og málefni á vefnum bubbi.is. Í síðasti innleggi sínu skýtur hann föstum skotum að Birgi Erni Steinarssyni, sem kenndur er við Maus en ritstýrir nú tónlistartímaritinu Mónitor.

Í síðasta tölublaði Mónitor skrifaði Birgir nefnilega pistil um Bubba og sagði meðal annars: "Bubbi hefur alltaf fylgt eftir því sem er í gangi í samfélaginu, en hefur aldrei verið leiðandi afl. Hann er eins og svampur sem sýgur umhverfi sitt inn og mótar sig og skoðanir sínar eftir því hvað er í gangi hverju sinni. Hann er símtalið sem þú færð eftir að þú ert búinn að meika það á þínum eigin forsendum.

Bubbi skrifar á síðu sína að Birgir sé að reyna að breyta íslenskri tónlistarsögu: Frábið ég mér fleiri tilraunir til þess að falsa söguna frá manni sem hefur aldrei geta haldið lagi og hefur unnið sér það til frægðar að syngja falskast allra íslenskra tónlistarmanna á seinni tímum. Sá falski tónn hrakti hann frá míkrafóninum í það að gerast ritstjóri Monitors þar sem sami falski tónninn hljómar í skrifum hans.

Birgir brást svo við skrifum Bubba á heimsíðu Moitor í dag og sagði:

"Hvað árásir á söngrödd mína varðar, þá er honum Guðs blessunarlega leyfilegt að hafa sína skoðun á henni. Það ónáðar mig ekki neitt, og ég mun halda áfram að syngja þrátt fyrir hvað honum finnst. Enda sótti ég ekki um aðild að Bandinu hans Bubba."

#2 La di da

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 5144 posts
  • Gender:Female

Posted 10 March 2008 - 16:59

QUOTE (Hawk12 @ Mar 10 2008, 16:40) <{POST_SNAPBACK}>

Skil reyndar ekki hvaða máli það skiptir í þessu máli hvort Bubbi er lesblindur eða ekki en ég get sagt þér að hann er ekki lesblindur. Hann hefur aldrei sagst vera það. Hefur einmitt montað sig af því hversu mikið hann las sem barn. En hann er aftur á móti skrifblindur.

Hefur sagt frá því í viðtölum.
QUOTE
Snorri Óskarsson: "Risaeðlur eru í þeim flokki að geta vaxið meðan þær lifa eins og skjaldbökur. Stærð þeirra sannar langan líftíma lifandi vera. Biblían segir að Adam hafi dáið 930 ára. Risaeðlurnar sanna t.d langa ævi."

#3 Fidel Castro.

    Rithæfur

  • Bannaðir
  • PipPipPip
  • 3209 posts
  • Gender:Male
  • Location:Ytri Klúku - Melrakkasléttu
  • Interests:Krullu (curling), búktal, veðurrannsóknir, dróttskátastörf og spelt-bakstur. Síðast en ekki síst að vera gleðigjafi meðal búaliðs og aldraðra sjómanna.

Posted 10 March 2008 - 17:25

QUOTE (La di da @ Mar 10 2008, 16:59) <{POST_SNAPBACK}>
Skil reyndar ekki hvaða máli það skiptir í þessu máli hvort Bubbi er lesblindur eða ekki en ég get sagt þér að hann er ekki lesblindur. Hann hefur aldrei sagst vera það. Hefur einmitt montað sig af því hversu mikið hann las sem barn. En hann er aftur á móti skrifblindur.

Hefur sagt frá því í viðtölum.

Því þá heldur, nema að um ósjálfráða skrift er að ræða? rolleyes.gif

" Eitt sinn skáti - ávallt skáti ! "

#4 Hildigunnur

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7306 posts

Posted 10 March 2008 - 17:39

Það er nú þannig að fólk sem er lesblint eða skrifblint getur lært bæði að lesa og skrifa. Þannig að þetta orð "blinda" er ekki alveg réttnefni.
Við erum öll á þeirri skoðun að heimurinn mætti vera öðruvísi, meðan enginn leiðir hugann að því hvernig megi breyta sjálfum sér.

Almenn skynsemi er takmörkuð auðlind, þeir sem hafa hana hljóta því að spara hana.

Hildigunnur, heimsins bezta norn.
Hjarta þitt er fullt af ást og hlýju.
Í þér býr öll mannkyns fræði forn.
Þú finnur lausn á vanda og táli nýju
.

(þetta er eftir Grandvaran og ég er afskaplega hróðug :) )

#5 Hawk12

    Málóður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPip
  • 18338 posts

Posted 10 March 2008 - 19:10

Einhver sem getur útskýrt hvernig/hvað, lesblinda og skrifblinda er, hvernig þetta lýsir sér og í hverju felst lærdómurinn eða að ná tökum á lesblindu og skrifblindu?

....og þetta getur skrifblindur maðurinn!

"Vísir, 10. mar. 2008 13:45

Bubbi líkir Össuri við Napóleon
„Ég bara skil ekki að fólk skuli láta svona út úr sér. " segir Bubbi Morthens. Hann skrifaði um helgina færslu á Bubbi.is, þar sem hann lýsir frati á þær sögusagnir að Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sitji að sumbli yfir bloggskrifum sínum um nætur. „Þetta er bara illgirni.

Bubbi segir Össuri svipa nokkuð til Napóleons Bonaparte sem, líkt og Össur, var ritglaður mjög og þurfti lítinn svefn. „Napóleon átti það til að kalla á ritara í miðri orrustu og skrifa Jósefínu bréf." Hann segir Napóleón hafa skrifað hvað ákafast frá 8 á kvöldin til eins og þrjú á nóttunni. „Svo svaf hann til fimm-sex og fór svo að berja á austurríkismönnum. Það eru bara heljarmenni eins og Napóleon og Össur sem leika sér að þessu."

Hann segir samanburðinn á mikilmennunum tveimur þó ekki enda þarna. Í færslunni segir hann ekki skemma fyrir að Össuri svipi nokkuð til keisarans franska: „Lítill og þéttur, herskár orðhákur sem elskar að skrifa stundum illa um náungan. Þó oftast skemmtilega. Það vill svo til að hann kýs að gera það um nætur. Það þýðir þó ekki að hann sé sauðdrukkinn úti í hrauni. Maður þarf ekki endilega að vera honum sammála í einu og öllu. En skemmtilegur er hann og fáa veit ég um sem elskar sína eigin nærveru og rödd jafn mikið og hann gerir, nema þá kannski undritaðan."

#6 Hildigunnur

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7306 posts

Posted 10 March 2008 - 19:14

http://www2.fa.is/~sveinbjorg/setur1/kynning.html
http://www2.fa.is/~sveinbjorg/setur1/tilnemanda.html
http://en.wikipedia.org/wiki/Dyslexia
Við erum öll á þeirri skoðun að heimurinn mætti vera öðruvísi, meðan enginn leiðir hugann að því hvernig megi breyta sjálfum sér.

Almenn skynsemi er takmörkuð auðlind, þeir sem hafa hana hljóta því að spara hana.

Hildigunnur, heimsins bezta norn.
Hjarta þitt er fullt af ást og hlýju.
Í þér býr öll mannkyns fræði forn.
Þú finnur lausn á vanda og táli nýju
.

(þetta er eftir Grandvaran og ég er afskaplega hróðug :) )

#7 Hawk12

    Málóður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPip
  • 18338 posts

Posted 10 March 2008 - 19:24

QUOTE (Hildigunnur @ Mar 10 2008, 19:14) <{POST_SNAPBACK}>

Ekkert um skrifblindu í þessu nema þá að skrifblinda og lesblinda sé eitt og það sama.

Og eiginlega er ég engu nær, ef vandinn felst í að breita leturgerð, þá er ekki um neinn vanda að ræða.

#8 Hildigunnur

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7306 posts

Posted 10 March 2008 - 19:30

QUOTE (Hawk12 @ Mar 10 2008, 19:24) <{POST_SNAPBACK}>
Ekkert um skrifblindu í þessu nema þá að skrifblinda og lesblinda sé eitt og það sama.

Og eiginlega er ég engu nær, ef vandinn felst í að breita leturgerð, þá er ekki um neinn vanda að ræða.

Jú það getur verið vandi að kljást við þetta ef fólk hefur ekki þau tæki sem til þarf. T.d. leturgerð, leturstærð, lit á bakgrunni og fleira.
Það er líka vandi þegar fólk með lesblindu missir kjarkinn ungt og telur sjálft sig vera tossa af því þau geta ekki lesið á sama hátt og hinir.
Ég held að skrifblinda sé af sama meiði og lesblinda. Fólk ruglar saman og víxlar stöfum bæði í lestri og skrift
Við erum öll á þeirri skoðun að heimurinn mætti vera öðruvísi, meðan enginn leiðir hugann að því hvernig megi breyta sjálfum sér.

Almenn skynsemi er takmörkuð auðlind, þeir sem hafa hana hljóta því að spara hana.

Hildigunnur, heimsins bezta norn.
Hjarta þitt er fullt af ást og hlýju.
Í þér býr öll mannkyns fræði forn.
Þú finnur lausn á vanda og táli nýju
.

(þetta er eftir Grandvaran og ég er afskaplega hróðug :) )

#9 Hrafnkell Daníels

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2638 posts
  • Gender:Male

Posted 10 March 2008 - 19:36

Hefur enginn heyrt minnst á Púka?

#10 La di da

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 5144 posts
  • Gender:Female

Posted 10 March 2008 - 19:43

QUOTE (Hawk12 @ Mar 10 2008, 19:24) <{POST_SNAPBACK}>
Ekkert um skrifblindu í þessu nema þá að skrifblinda og lesblinda sé eitt og það sama.

Og eiginlega er ég engu nær, ef vandinn felst í að breita leturgerð, þá er ekki um neinn vanda að ræða.

Nei skrifblinda er ekki það sama og lesblinda þótt þetta geti tengst.

Upplýsingar um skrifblindu
QUOTE
Snorri Óskarsson: "Risaeðlur eru í þeim flokki að geta vaxið meðan þær lifa eins og skjaldbökur. Stærð þeirra sannar langan líftíma lifandi vera. Biblían segir að Adam hafi dáið 930 ára. Risaeðlurnar sanna t.d langa ævi."

1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users