Horfðu á seinna viðtalið. Þar er fjallað um hvaða augum lögreglan og vændiskonur í Svíþjóð líta á afleiðingarnar af lögunum sem Íslenskir Femínistar vilja taka upp á Íslandi.
Já. Ég vil reyndar endilega hvetja alla til að horfa á það viðtal. Og taka eftir svari Drífu Snædal við þessari fullyrðingu. Það sem við höfum fengið að sjá frá Svíþjóð er að það er grundvallarmunur á því hvort löggjöfin er sett fram án annarra úrræða eða hvort unnið er með félagsleg úrræði samhliða.
Þetta snýst nefnilega ekki um spurninguna um lögfræðilega úrræði annars vegar og félagsleg úrræði hins vegar. Þetta snýst í grundvallaratriðum um afstöðu okkar til þess hvert hlutverk kvenna á að vera og þar sem hún er svo brengluð verðum við að beita öllum úrræðum til að reyna að leiðrétta kúrsinn. Þó ekki væri nema til að koma í veg fyrir þetta hryllilega ofbeldi gagnvart konum ... NB - UM ALLAN HEIM ... hvort sem það flokkast nú sem heimilisofbeldi, nauðganir, misnotkun eða mansal.
Allar tilraunir til að gera lítið úr þeim horror eða reyna að fegra málstað þeirra sem vilja hafa konur á þessum stað í veröldinni flokka ég sem glæp gegn mannkyni.
Jú jú, er þetta ekki síðan þeirra ?
www.tagstillingmand.dk(Allvega hef ég verið að lesa á þessari síðu í kvöld og finnst margt merkilegt.
Jú, þetta er síðan þeirra. Og ég gleymdi að setja hér inn link á Kastljóssþáttinn sem toto vitnaði í og ég mæli eindregið með. Hann er hér:
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4365631