Jump to content


Peningar fastir a Islandi


10 replies to this topic

#1 bizz

    Nýliði

  • Notendur
  • 14 posts

Posted 13 March 2008 - 13:06

Godann daginn.

Eg er frekar vitlaus thegar kemur ad peningamalum thannig ad...ekki taka thessu illa!!
Eg er med peninga a reikning a Islandi sem mig langar ad fa hingad til Danmerkur. Eru einhverjar leidir til thess ad koma theim hingad an thess ad borga svona mikid fyrir donsku kronuna? Kaupa annan gjaldmidil og selja svo aftur herna?

Oll rad vel thegin!

kv

Bizz

#2 Hrafnkell Daníels

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2639 posts
  • Gender:Male

Posted 13 March 2008 - 13:24

Nei því miður þarf alltaf að borga umsýslugjaldið.
Ég er að halda að mér höndum meðan íslenska krónan er svona verðlaus og læt frekar peningana liggja á reikningum á íslandi.
Hitt er síðan spurning hvort hægt er að fá laun greidd inn á danskan banka í dönskum krónum?

#3 Ljósberi

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 1364 posts

Posted 13 March 2008 - 14:43

Er ég að miskilja eitthvað. Ef þið eruð með íslenskar krónur sem þið viljið skipta í danskar þá borgar sig að gera það sem fyrst þar sem flestir spá að veiking krónunnar sé framundan.

#4 feu

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 27519 posts
  • Gender:Male
  • Location:Iceland

Posted 13 March 2008 - 14:48

QUOTE (Ljósberi @ Mar 13 2008, 14:43) <{POST_SNAPBACK}>
Er ég að miskilja eitthvað. Ef þið eruð með íslenskar krónur sem þið viljið skipta í danskar þá borgar sig að gera það sem fyrst þar sem flestir spá að veiking krónunnar sé framundan.

Nákvæmlega!

#5 Toffi

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4571 posts
  • Location:Reykjavík

Posted 13 March 2008 - 15:23

QUOTE (feu @ Mar 13 2008, 14:48) <{POST_SNAPBACK}>
Nákvæmlega!

Og því fleirri sem skipta í erlenda mint því hraðar og meira fellur krónan rolleyes.gif Það verður svo til að stoppa fylleríið (ef guð gefur).
Með kveðju Toffi
Því er ekki enn farið að selja færeyingum rafmagn í gegnum sæstreng. Ekki þarf nýja virkjun til þess að sinna þeirra orkuþörf. Við fáum gjaldeyri og færeyingar fá hreina raforku.
Mín lausn er í geingdarlausri fjárfestingu í nýjum útflutningsgreinum. Allt annað á að sitja á hakanum.
Ennig þarf að skipta út bílaflotanum í áföngum í bíla sem nota innlenda orku. T.d. þessa
Ariel Atom

#6 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10853 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here

Posted 13 March 2008 - 17:10

gengisvísitalan er í 141,5 núna og hækkandi.
"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#7 5bi

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 144 posts
  • Gender:Male

Posted 13 March 2008 - 17:51

QUOTE (fleebah @ Mar 13 2008, 17:10) <{POST_SNAPBACK}>
gengisvísitalan er í 141,5 núna og hækkandi.



Hvar ætli hún endi, Gengisvísitalan er búinn að vera að rokka eins og hlutabréf hér síðustu daga.


150 er það hæðsta sem ég man. erum við að sjá hana enda í 150+ .


Eru þetta aðalega útlenskir fjárfestar að selja þær krónur sem þeir eiga. eða erum við íslendingar að gera. það.


Eru ekki bara bankanir að leika sér eitthvað , og moka síðan inn pening þegar þeir eru tilbúinir.


Hvenær ætli seðlabankinn vakni og byrji að slá á allar efasemdir.

#8 sindrii

    Nýliði

  • Notendur
  • 10 posts

Posted 14 March 2008 - 14:59

Ég keypti gjaldeyri um áramótinn. c.a 5 millj, er að bíða bíða með að kaupa krónur aftur og setja á peningamarkaðsreikning, erfitt að sjá botnin, gæti verið komin,
nú er bara fylgjast vel með, 150 gæti komið í næstu viku...

eru einhverjir fleirri í sömu hugleiðingum.??

#9 dabbi2000

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 290 posts
  • Gender:Male
  • Location:Kopavogur, Iceland

Posted 14 March 2008 - 16:18

Þetta er pirrandi ástand fyrir okkur sem búum erlendis og höfum tekjur heima. Mjög pirrandi!

Ég sjálfur er að vonast eftir leiðréttingu 2009 á þeim forsendum að þá verði landinn og ríkið búið að taka við sér með stærri framkvæmdir og orkuútrás. Orkan verður okkar auðlind. Hins vegar held ég að það verði langt í að ÍKR verði jafnsterk og hún var í fyrra enda bara "fáránlega gott ástand" !

Svo er það óvissan með Evruna, ég hef í raun ekki hugmynd um hvort ég eigi að flýja með íslensku krónurnar mínar út ef Evran yrði innleidd eða halda þeim heima. Veit einhver hvernig ÍKR verður verðmetin ef Evran verður tekin upp???

Og svo er það þetta með jöklabréfin sem ég hef áhyggjur af. Ef Feu og félagar hafa rétt fyrir sér gæti orðið allsvakalegt gengisfall ef menn vilja leysa þau inn. Og það er ekki svo ólíklegt m.t.t. núverandi ástands. Þá fyrst þarf maður að finna sér sand til að stinga hausnum í.

#10 hildur234

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 1364 posts
  • Gender:Female
  • Location:Reykjavík, miðsvæðis.

Posted 14 March 2008 - 18:49

QUOTE (Ljósberi @ Mar 13 2008, 14:43) <{POST_SNAPBACK}>
Er ég að miskilja eitthvað. Ef þið eruð með íslenskar krónur sem þið viljið skipta í danskar þá borgar sig að gera það sem fyrst þar sem flestir spá að veiking krónunnar sé framundan.


Krónan er þegar búin að veikjast á síðustu dögum.
En spurningin er hvort hún veikist meira eða fari eitthvað upp í næstu viku?

#11 BNW

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 502 posts

Posted 14 March 2008 - 19:00

QUOTE (dabbi2000 @ Mar 14 2008, 16:18) <{POST_SNAPBACK}>
Og svo er það þetta með jöklabréfin sem ég hef áhyggjur af. Ef Feu og félagar hafa rétt fyrir sér gæti orðið allsvakalegt gengisfall ef menn vilja leysa þau inn. Og það er ekki svo ólíklegt m.t.t. núverandi ástands. Þá fyrst þarf maður að finna sér sand til að stinga hausnum í.


Eðlilegar áhyggjur en kjör vaxtaskiptasamninga hafa versnað það mikið undanfarið þar sem vaxtafótur bankanna hefur hækkað mjög mikið. Það að menn geti ekki gengið lengur inn í slíka samninga lokar í reynd stöðunni hjá mörgum þannig að gengið fellur þar sem innstreymi gjaldeyris verður mun minna en áður var.

Í annan stað læðist að manni sá grunur að íslensku bankarnir séu í reynd þessa stundina að spila örlítið með ástandinu og taka inn hagnað með því að taka stöðu gegn krónunni.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users