QUOTE
(gmaria @ Aug 19 2008, 1:56)
Fjárlög eru ákveðin frá ári til árs, og þegar þannig er í pottinn búið að straumur innflytjenda frá svæðum sem við erum samningsbundinn er ekki ákveðin tala ár hvert , sem við getum reiknað með sem meðaltali, þá er snúið að gera áætlanir um útgjöld.

Þetta eru þunn rök og þú veist það vel! Ef þú skilur ekki hvað ég á við ráðlegg ég þér að finna einhvern skynsaman aðila sem þú treystir og veist að hefur reynslu af stjórnsýslunni og þekkingu á fjármálum og spurðu hann út í nákvæmlega þetta atriði. Ég bara nenni varla að skýra þetta út frekar hérna en læt duga að benda þér á að það er ekki nýlunda í áætlanagerð og hagfræði t.d. að gera ráð fyrir sveiflum í kerfum sem þessum. Gmaria, það er einfaldlega gert ráð fyrir sveiflum í fjárlögunum. Það er nær árlegur að viðburður að þessi t.t. áætlanagerð (fjárlög Ríkisins) stenst ekki nákvæmlega upp á krónu í öllum liðum, þá er einmitt gert ráð fyrir svigrúmi til þess að mæta einhverri tiltekinni sveiflu eða sveigju frá fyrirframgefnum forsendum.
Það væri best fyrir Frjálslynda flokkinn að vera ekki að eyða púðri sínu í þetta mál frekar. "Útlendingavandamálið" sem sumir hafa upplifað sem slíkt, er í raun sjálfleyst. Flestir farandverkamennirnir kjósa að snúa heim þegar spenna í atvinnulífinu minnkar og eftirspurn eftir verkafólki dvínar. Ég ráðlegg ykkur að finna eitthvað sterkara málefni að styðja en þetta, enda verð ég að segja að þetta er ekki jafn mikið vandamál og Varaformaðurinn hefur boðað og misst svefn yfir. Þjóðin deilir ekki þeim áhyggjum ykkar og það sem er verst fyrir ykkur í Frjálslynda flokknum er að þið munið ekki slá ykkur mikið upp á þessu stagli í næstu kosningum. Hef ég sagt nóg?

Ég tek eftir því að síðasta innleggi mínu hefur ekki verið svarað. Minni bara á orð mín þar. Hef ekki skoðun á þessari umræðu sem fylgt hefur þar á eftir en hún er engu að síður fróðleg. Það má svo alveg deila um sannfæringu Marisibil en ráðlegg að það verði á öðrum sértilgerðum þræði, takk fyrir.