Það ætlar ekki að linna olnbogaskotunum og nærri því árásum sem Samfylkingin beitir samstarfsflokk sinn, Sjálftæðisflokk. Formaður Samfylkingar kallar nýjan meirihluta í borgarstjórn "uppvakning (sem hún segir hálfu verri en draugana) og Össur iðnaðarráðherra spáir Sjálfstæðisflokknum einangrun úti í horni Ráðhússins eftir næstu borgarstjórnarkosninar! - En - ISG formaður Samf. segir jafnframt að þessar nafngiftir hennar og félaga hennar "hafi ekkert með samskipti Samfylkingarinanr í ríkisstjórn að gera! Svo!
Samfylkingin er auðvitað ekki að gera neitt annað en að niðurlægja Sjálfstæðisflokkinn með öllum tiltækum ráðum. Ef um heilindi Samfylkingarinnar væri að ræða í stjórnarsamstarfi, léti Samf. vera að kasta óhróðri að samstarfsflokki sínum í ríkisstjórn, jafnvel þótt hann hafi fallið í áliti hjá einhverjum sem taka mark á skoðanakönnum Fréttablaðsins. Gallup eða Félagsstofnunar H.Í. sem allar eru umbeðnar af Fréttablaðinu, málgagni Samfylkingarinnnar.
On nú ætlar ungliðahreyfing Samfylkingarinanr að bæta gráu ofan á svart með því að efna til andófs í Ráðhúsinu þegar nýr borgarstjórnarmeiihluti tekur við stjórn nk. fimmtudag! -
Forusta Sjálfstæðisflokksins getur ekki lengur flöt gagnvart niðurlægingu af hálfu Samfylkingarinnar. Hún verður að grípa til þeirra ráða sem tiltækust eru við þessar aðstæður; rjúfa stjórnarsamstarfið og mynda nýja stjórn án Samfylkingar. Ekki nú-na, heldur NÚ.
Guði sé lof að forystumenn Samfylkingarinnar leyfa sér að hafa sjálfstæðar skoðanir á háttsemi sjálfstæðismanna. Að mínu mati er aðalástæðan fyrir hnignun Framsóknarflokksins og fylgishruni hans að framsóknarmenn voguðu sér aldrei að styggja sjálfstæðismenn og áttu sér þess vegna ekki sjálfstæðan tilverurétt.
Mér fannst samstarf Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks byrja vel. Mál Samfylkingarinnar voru mjög fyrirferðarmikil í stefnuyfirlýsingunni og gott samstarf tókst með Geir og Ingibjörgu Sólrúnu. Nú finnst mér ríkisstjórni ekki vera að standa sig. Ég get þó ekki mælt með að samstarfinu verði slitið þar eð ég sé engan betri kost. Nema að það verði boðað til kosninga sem væri það eina rétta í stöðunni.