Ólafur F. Magnússon
#1
Posted 19 August 2008 - 10:30
Hrein ósannindi
Þorbjörg Helga segir ummæli Ólafs F. vera hrein ósannindi. „Þetta er algjörlega með ólíkindum að maðurinn skuli haga sér svona,“ segir hún. „Það er rosalega ósanngjarnt af honum að draga sviðsstjórann inn í þennan pólitíska leik.“
Svakalega er Ólafur sár.
Sameinaðir stöndum vér sundraðir föllum vér.Frúin hlær í betri bíl.Konur eru yndislegar:)
#2
Posted 19 August 2008 - 10:39
Hrein ósannindi
Þorbjörg Helga segir ummæli Ólafs F. vera hrein ósannindi. „Þetta er algjörlega með ólíkindum að maðurinn skuli haga sér svona,“ segir hún. „Það er rosalega ósanngjarnt af honum að draga sviðsstjórann inn í þennan pólitíska leik.“
Svakalega er Ólafur sár.
Ólafur er greinilega svakalega sár, en við vitum samt ekkert um hvað er satt og rétt.
Fer hann í sárindum sínum að ljúga upp sögum sem enginn fótur er fyrir eða hugsar hann sem svo að hann geti vel gert opinbert allt sem ríkja átti trúnaður um ef það kemur fyrrverandi samstarfsaðilum verr en honum sjálfum ?
Spyr sá sem ekki veit.
#3
Posted 19 August 2008 - 10:59
Falcon1
icelandphotoblog.com
Íslenska þjóð - RÍS UPP!
Fyrrum voru fálkar fluttir lifandi út í stórum stíl, því erlendir þjóðhöfðingjar sóttust eftir að eignast íslenska fálka. Íslenski fálkinn er stærsta fálkategund sem til er og er eftirlæti fuglaskoðara. Af Íslandsvef
#4
Posted 19 August 2008 - 11:50
Kominn heim aftur...
Sameinaðir stöndum vér sundraðir föllum vér.Frúin hlær í betri bíl.Konur eru yndislegar:)
#5
Posted 19 August 2008 - 11:53
Kominn heim aftur...
Aumingja Ólafur, fer úr úlfabælinu í hýenugrenið...
"I tell you this,
No eternal reward will forgive us now
For wasting the dawn."
Jim Morrison, 1971
http://www.bbc.co.uk...res/khufu.shtml
#6
Posted 19 August 2008 - 12:19
Falcon1
icelandphotoblog.com
Íslenska þjóð - RÍS UPP!
Fyrrum voru fálkar fluttir lifandi út í stórum stíl, því erlendir þjóðhöfðingjar sóttust eftir að eignast íslenska fálka. Íslenski fálkinn er stærsta fálkategund sem til er og er eftirlæti fuglaskoðara. Af Íslandsvef
#7
Posted 19 August 2008 - 12:34
#8
Posted 19 August 2008 - 12:42
#9
Posted 19 August 2008 - 13:29
Hann gæti orðið sérfræðingur þeirra um heilsufar útlendinga!
#10
Posted 19 August 2008 - 19:18
Beint í meginmál síðu.
Vísir, 19. ágú. 2008 18:33
Margrét: Ólaf vantar einhvern til að borga herkostnaðinn
mynd
Margrét Sverrisdóttir.
Magnús Már Guðmundsson skrifar:
Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri, sem hefur ákveðið að ganga til liðs við Frjálslynda flokksins á nýjan leik gerir það þar sem honum vantar fjárhagslegan stuðning fyrir næstu kosningar, að mati Margrétar Sverrisdóttur, fyrsta varaborgarfulltrúa F-lista og óháðra.
,,Ólaf bráðvantar einhvern til að borga herkostnaðinn fyrir næstu kosningabaráttu ef hún verður. Þetta lyktar svolítið af tækifærimennsku og eiginhagsmunum sem mér finnst hann hafa í fyrirrúmi, blessaður," segir Margrét.
Ólafur boðaði til blaðamannafundar Ráðhúsinu í morgun þar sem hann tilkynnti að hann hygðist ganga í Frjálslynda flokkinn og bjóða fram undir merkjum hans í næstu kosningum. Ólafur sagðist hafa rætt við Guðjón Arnar Kristjánsson, formann flokksins, sem styður ákvörðun Ólafs. Jóni Magnússyni, þingmanni flokksins, þykir ekki mikið koma til ákvörðunarinnar.
Það kemur Margréti ekki á óvart að móttökurnar séu ekkert alltof góðar enda Frjálslyndi flokkurinn sundurleitur flokkur, að hennar mati. ,,Annars þarf ekki að spyrja mig sérstaklega um hans gjörðir þar sem mér er nokk sama hvað hann er að sprikla," segir Margrét og hlær.
,,Ef hann væri að fylgja hugsjónum sínum þar sem umhverfismálin eru víst efst á baugi þá er nú Frjálslyndi flokkurinn ekki hlýjasti faðmurinn enda sveigist flokkurinn heldur sterkt til stóriðjustefnu," segir Margrét að lokum.
#11
Posted 19 August 2008 - 19:44
Rétt áðan var hann í viðtali í Íslandi í dag. Hann tautaði sífellt á því að samkvæmt skoðanakönnunum væri hann fulltrúi sjónarmiða 60% borgarbúa í flugvallarmálinu. Þegar hann var svo spurður hverju það sætti að hann væri að mælast með aðeins 2% í skoðanakönnunum, þá var bara ekkert mark takandi á skoðanakönnunum.
Sömuleiðis vitnar Ólafur mikið í að hann hafi alltaf fengið miklu betri útkomu í kosningum en könnunum. Það var þá. Nú er fólk búið að sjá meira af honum og fer varla að kasta afkvæði sínu á glæ með því að kjósa mann sem enginn getur unnið með í pólitík.
#12
Posted 19 August 2008 - 19:53

Tími Jóhönnu er kominn, tími Ólafs er liðinn.
#13
Posted 19 August 2008 - 20:16
Hann skapar kaos, þetta er ein útgáfa af smjörklípuaðferðinni.
Til hvers þarf hann að skapa kaos og beina athygli frá alvarlegum hlutum að einhverju léttvægara eins og það hvort átti að segja upp manni eða ekki. Yfir hvað er Olafur raunverulega að reyna að breiða?
#14
Posted 19 August 2008 - 20:48
Hann höndlar ekki starf borgarfulltrúa.
Þetta eru hinar augljósu staðreyndir.
Að hann telji sig hafa einhverju hlutverki að gegna í borgarstjórn úr þessu er einfaldlega [b]harmleikur[/b]
En svona er lífið. Sem betur fer er líf fyrir utan pólitíkina -og það meira að segja gott líf-
þangað ætti Ólafur FM, blessaður karlinn, að stefna.
#15
Posted 19 August 2008 - 22:01
Mér virðist sem megnið af fulltrúum sjalla séu það líka. Eða hvernig ber að túlka hegðun þeirra undanfarna mánuði.
Það er alveg klárt að Ólafur mun ekki ná inn næst, hann er gjörsamlega búinn að rústa sinni pólitísku framtíð.
Mér heyrðist nú að "vinur" hans Guðjón ekki vera alltof hrifinn að fá Ólaf aftur, allvega sagði hann að það væri ekki sjálfgefið að
Ólafur yrði í fyrsta sæti á meðan Ólafur talar eins og hann sé sá eini sem komi til greina.
Þetta verður fróðlegt....áfram
#16
Posted 19 August 2008 - 22:04
Hrein ósannindi
Þorbjörg Helga segir ummæli Ólafs F. vera hrein ósannindi. „Þetta er algjörlega með ólíkindum að maðurinn skuli haga sér svona," segir hún. „Það er rosalega ósanngjarnt af honum að draga sviðsstjórann inn í þennan pólitíska leik."
Svakalega er Ólafur sár.
Er þetta ekki bara plat? Dags-hyskið endanlega að flippa út?
Ingimundur Kjarval: "Þegar þú setur lyftu í hús, sleppir þú ekki eftstu hæðina vegna þess að svo fáir eiga heima þar."
Apple: "...hvað sem útveggjunum líður en þeir eru hannaðir til að taka á sig lárétt álag en ekki lóðrétt."
Plasma Rarity: "Ég myndi skilgreina kjána sem einhvern sem skortir þekkingu á eitthvað málefni, en getur jafnvel verið greindur. Það er munur á kjána og vitleysing og hann er sá að vitleysingur getur haft þekkingu en skortir greind."
#17
Posted 19 August 2008 - 23:02
Það er alveg klárt að Ólafur mun ekki ná inn næst, hann er gjörsamlega búinn að rústa sinni pólitísku framtíð.
Mér heyrðist nú að "vinur" hans Guðjón ekki vera alltof hrifinn að fá Ólaf aftur, allvega sagði hann að það væri ekki sjálfgefið að
Ólafur yrði í fyrsta sæti á meðan Ólafur talar eins og hann sé sá eini sem komi til greina.
Þetta verður fróðlegt....áfram
Ólafur talar nú eins og hann sé skapari himins og jarðar.
Annars átta ég mig ekki á því hvers vegna hann telur sig eiga samleið með Frjálslynda flokknum. Veit ekki betur en sá flokkur sé eins langt frá skoðunum Ólafs varðandi virkjunarframkvæmdir til dæmis.
#18
Posted 19 August 2008 - 23:07
#19
Posted 19 August 2008 - 23:26
Allir geta gengið í Frjálslynda flokkinn ef þeir eru ekki félagar í öðrum flokki. En því fylgir enginn réttur á ákveðnu sæti í kosningum. Það á alveg eftir að koma í ljós hvort Frjálslyndi flokkurinn velur Ólaf í fyrsta sæti listans í næstu borgarstjórnarkosningum.
Í ljósi þess að stefna Ólafs og FF fara alls ekki saman tel ég ekki óliklegt að honum verði hafnað.
#20
Posted 20 August 2008 - 03:46
1 user(s) are reading this topic
0 members, 1 guests, 0 anonymous users