Jump to content


Enn einn þráðurinn um Frjálslynda flokkinn


32 replies to this topic

#1 Orville

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7554 posts

Posted 19 August 2008 - 12:00

Jæja, það er nú nokkuð um liðið frá því að Orville stofnaði þráð um Frjálslynda flokkin svo það er sennilega kominn tími til. Að þessu sinni er hugmyndin að reyna að komast eitthvað áfram í þessum umræðum, hvernig svo sem það tekst til.

Hér á Málefnunum er töluvert um stuðningsfólk Frjálslynda flokksins en einnig nokkrir sem styðja flokkinn í málflutningi innflytjenda þó þeir fylgi öðrum flokkum. Í síðari flokknum dettur mér í hug menn eins og Járnkarlinn, Rimmi og Reily svo einhverjir séu nefndir. Í þeim hópi er Grandvar líka ef ég man rétt. Þetta fólk hefur haldið því fram að umræða Frjálslyndra sé bara nauðsynleg varnaðarorð meðan við hin þykjumst hafa séð í þeim sama málflutningi tilhæfulausan hræðsluáróður, eins og Orville gamli hefur stundum orðað það.


Ég birti hér á öðrum þræði nýlegan pistil sem Viðar Helgi skrifar á bloggsíðu ungra Frjálslyndra og bið nú um umræður og viðbrögð við þeim pistli. Viðar þessi er formaður ungra Frjálslyndra og hefur nýlega hlotið kosningu í hina fjölskipuðu stjórn borgarmálafélags Frjálslynda. Viðar hefur verið hvað duglegastur forsvarsmanna flokksins að fjalla um málefni innflytjenda en hefur gjarnan fengið ágætan stuðning meðal helstu forsvarsmanna. Ekki rekur mig minni til þess að nokkur í þeim hópi hafi gagnrýnt málflutning Viðars nema siður sé, ef frá er talinn Kristinn H. Gunnarsson sem taldi að Viðar væri að ala á fordómum.

Þennan pistil má finna hér: http://luf.blog.is/blog/luf/entry/582616/

Hér er svo pistillinn í heild:

Menningarlegur stöðugleiki

Menningarlegur stöðugleiki er grundvöllur sameiningar og stuðlar að auknum framförum þjóðarinnar. Til þess að viðhalda menningarlegum stöðugleika er mikilvægt að stefna ríkisins í málefnum útlendinga sé skýr.

Fyrir stuttu lagði ég það til við Landsráð Frjálslynda flokksins að Frjálslyndi flokkurinn leggi grundvallaráherslu á að íslenska þjóðin hafi ávallt stjórn á því hverjir og hversu margir útlendingar ákveða að flytjast hingað til skemmri eða lengri tíma.

Annars þurfa þeir sem fara með vald þjóðarinnar að gera sér grein fyrir vilja þjóðarinnar og hætta að fara hvað eftir annað gegn vilja hennar.

En hver er vilji þjóðarinnar?

Hvað vill þjóðin?

Hvað viljum við Íslendingar þegar kemur að málefnum flóttamanna? Hvað viljum við þegar kemur að málefnum farandverkamanna? Hvað viljum við þegar kemur að málefnum nýbúa? Hvað viljum við þegar kemur að málefnum ferðamanna?

Hvað viljum við Íslendingar þegar kemur að skólakerfinu? Viljum við fá sama upplausnarástand í íslenska skólakerfið eins og ríkir í Bretlandi þegar enskumælandi kennari þarf jafnvel að kenna bekk sem talar 20 mismunandi tungumál og ekkert af því er enska. Hér á Íslandi eru þess dæmi um að 3-4 tungumál séu töluð í sama bekknum. Er slíkt álag á kennara eitthvað sem við viljum? Er slíkt álag bjóðandi okkar börnum? Er slík námsskerðing bjóðandi íslenskum börnum?

Hvað viljum við Íslendingar þegar kemur að heilbrigðiskerfinu? Viljum við svipað ástand á íslenskum sjúkrahúsum og er í sjúkrahúsum Englands? Viljum við að eldri borgarar séu settir á enn lengri biðlista? Við höfum bara ákveðið mikið af fagmenntuðu fólki í heilbrigðisgeiranum og við getum ekki séð tugþúsundum manna aukalega fyrir heilbrigðisþjónustu.

Hvað viljum við Íslendingar þegar kemur að réttindum íslenskra verkamanna? Viljum við áframhaldandi ógnarjafnvægi þar sem íslenski launamaðurinn hefur engin vopn í hendi sér á meðan atvinnurekandinn getur alltaf fundið ódýrari hæfari starfsmann í gegnum hið frjálsa flæði erlendra verkamanna? Viljum við skert lífskjör íslenskra launamanna? Viljum við sama ástand hér eins og í Skotlandi þar sem enginn kemst yfir lágmarkstaxta?

Hvað viljum við Íslendingar þegar kemur að atvinnuleysisbótum? Viljum við leyfa farandverkamönnum að taka atvinnuleysisbætur? Hvað viljum við að einstaklingur þurfi að hafa verið búsettur hér lengi til þess að fá aðgang að atvinnuleysisbótum?

Hvað viljum við Íslendingar þegar kemur að glæpum útlendinga? Viljum við áframhaldandi aukningu á glæpum? Viljum við aukna skipulagningu í fíkniefnaheiminum? Viljum við aukna tíðni erlendra glæpahringa sem stunda mansal, fíkniefnasölu, líkamsmeiðingar og pyntingar? Viljum við að erlendir axa- eða sveðjumorðingjar geti leitað sér athvarfs á Íslandi?

Hvað viljum við Íslendingar þegar kemur að aðlögun og skildum innflytjenda? Viljum við enda með sama menningarlega óstöðugleika og nágrannaþjóðir okkar þar sem stór hluti innflytjenda og jafnvel innfæddra barna og barnabarna neitar að aðlagast samfélaginu? Hvaða skyldur viljum við setja þeim sem fá leyfi til þess að setjast hér að, hvort sem við köllum þá landnema eða innflytjendur.

Það er bara tímaspursmál hvenær strangari innflytjendastefna sem byggir á fjöldastýringu verður lögfest.

Af hverju ekki að koma með hana áður en allt fer á versta veg og menningarlegi óstöðugleikinn hefur étið upp sameiningu landans?


Viðar Helgi Guðjohnsen


Nú langar mig að fá upp umræður um þennan pistil og varpa í því sambandi fram hér spurningum sem Gmaria treysti sér ekki til að svara á öðrum þræði. Mig langar sérstaklega að biðja þá sem hafa sagt mig vera með ósanngjarna gagnrýni á Frjálslynda flokkinn að svara þessum spurningum. Í leiðinni ætla ég að forðast stóryrði á þessum þræði heldur reyna að fá botn í þessi mál og ræða þau á málefnalegum og afslöppuðum nótum og vona að aðrir geri það líka. Ég mun þó ef til vill koma með fleiri tilvitnanir í forsvarsmenn flokksins ef þurfa þykir og umræður verða markvissar og málefnalegar.

Stundum er talað um þöggun í tengslum við þessa umræðu. Nú skulum við reyna að ræða málin og forðast þessa meintu þöggun. Til að svo meigi vera verða þó stuðningsmenn Frjálslyndra að þora að svara þeim spurningum sem til þeirra er beint og svo hægt sé að kryfja til mergjar hvað flokkurinn er að fara í innflytjendamálum.

En hér eru þá spurningarnar sem ég vil byrja á að bera upp og vona að sem flestir svari samkvæmt sinni bestu sannfæringu.

  1. Ertu sammála því sem fram kemur í þessum pistili?
  2. Eru þær skoðanir sem þarna eru settar fram í samræmi við stefnu Frjálslynda flokksins?
  3. Telur þú að eitthvað sem sett er fram í eftirfarandi pislti sé til þess fallinn að ala á fordómum gagnvart innflytjendum?


Ps. Sérstaklega þætti mér gott að frá svör frá Cesil um þessi mál því hún hefur verið iðin við að ásaka mig fyrir það sem henni fynnst ósanngjörn gagnrýni og hefur í því sambandi oftlega vitnað í hina rituðu stefnu flokksins. Spurning tvö er því ekki síst beint til hennar þó auðvitað voni ég að sem flestir svari.

Niður með þöggunina og reynum að fá botn í þessi mál.

#2 Hiddaj

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4425 posts
  • Gender:Female

Posted 19 August 2008 - 13:06

Kannski Einar Maack svari. Hann virðist vera eini málverjinn í þessum flokki sem ræður við spurningar og hefur sjálfstæðar skoðanir.
Don't argue with an idiot, they'll just drag you down to their level and beat you with experience.

#3 Brecht

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 5058 posts
  • Gender:Male
  • Location:Í höfuðborginni

Posted 19 August 2008 - 13:19

1. Ertu sammála því sem fram kemur í þessum pistili?
2. Eru þær skoðanir sem þarna eru settar fram í samræmi við stefnu Frjálslynda flokksins?
3. Telur þú að eitthvað sem sett er fram í eftirfarandi pislti sé til þess fallinn að ala á fordómum gagnvart innflytjendum?

1. Það er ekkert til að vera sammála, greinin er nánast ein leiðandi spurning út í gegn, vilt þú að heimurinn farist, villt þú deyja, villtu deyja úr hungri.

2. Sama og atriði eitt. Í framhaldi leiðandi spurninga þá eru settar fram svokallaðar "staðreyndir". Villtu deyja úr hungri. Mannkyninu fjölgar of mikið. Einfalt lýðskrum.

3. Greinin er skrifuð til þess að ala á fordómum gagnvart innflytjendum. Það er síðan leikur einn að skipta um orð og taka svo einhvern annan hóp fyrir, samkynhneigða, geðfatlaða, atvinnuleysingja, politíska flokka, listamenn o.s.frv.

Einu teljandi viðbrögðin eru hér á malefnin.com. Skoðið þið bara bloggsíður meðlima Frjálslynda Flokksins, það eru nánast engin önnur viðbrögð en frá hinum flokksmönnunm. Í blöðunum er varla minnst á flokkinn.

Í raun liggur það hér fyrir á innleggjum svart á hvítu að nafngreindir talsmenn flokksins styðja Viðar í því sem hann er að reyna. Það þarf því engin viðtöl við þennan flokk í næstu kosningum, það þarf bara að birta innlegg þeirra til að afhjúpa lygavef þeirra.




PS. Set hér inn slóðina á blogg frá Jóni Magnússyni þar sem Ómar Ragnarson svarar. (er að læra að setja inn krækjur (link))
http://jonmagnusson.blog.is/blog/jonmagnus...14994/#comments
Ómar svarar Jóni

#4 Einar Maack

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 587 posts
  • Gender:Male
  • Location:Vesturbær Reykjavíkur
  • Interests:Heimspeki. Stjórnmál. Trúmál; trúfrelsi; trúleysi. Siðfræði.<br /> <br />Bókmenntir. Myndlist. Tónlist. Matarlyst. Fegurð og ljótleiki heimsins og allt þar á milli.

Posted 19 August 2008 - 13:55

QUOTE (Orville @ Aug 19 2008, 12:00) <{POST_SNAPBACK}>
  1. Ertu sammála því sem fram kemur í þessum pistili?
  2. Eru þær skoðanir sem þarna eru settar fram í samræmi við stefnu Frjálslynda flokksins?
  3. Telur þú að eitthvað sem sett er fram í eftirfarandi pislti sé til þess fallinn að ala á fordómum gagnvart innflytjendum?


Niður með þöggunina og reynum að fá botn í þessi mál.


1) Sumu en ekki öllu.

2) Já, ég hygg að svo sé, en þarna koma aðallega fram spurningar... sumar betri en aðrar, vissulega, en þetta eru mestmegnis spurningar. Mátt hinsvegar ekki gleyma því að fólk innan flokksins hefur ólíkar skoðanir sem eru mismikið í samræmi við yfirlýsta stefnu FF. Mér þykir mjög kjánalegt að þú skulir ætla okkur að svara fyrir Viðar, ég hef haldið hann fullfæran um að svara fyrir sig fram til þessa.

3) Þó rök megi bera fyrir því að ýmislegt í fyrrupplesnum pistli megi túlka til vakningar útlendingaandúðar veit ég að það er ekki tilgangurinn, en ef íslenskir útlendingahatarar sækja fyrirmyndir sínar í Viðar hygg ég að það þurfi ekki að hafa áhyggjur af útlendingahatri hérlendis. laugh.gif





Óvinur óvinar míns er ekki endilega vinur minn.
Ást, friður og réttlæti.
Frelsið ofar öllu

Skráið ykkur á gargið á Orninn.org - sendið inn greinar - Orninn.org - síðustu verjendur málfrelsis á Íslandi.

La vie est comme une fleur qui pousse au soleil. Si vous la privez de lumière, elle fâne et meurt.

J.E.V.B.Maack

#5 Orville

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7554 posts

Posted 19 August 2008 - 23:53

QUOTE (Einar Maack @ Aug 19 2008, 13:55) <{POST_SNAPBACK}>
1) Sumu en ekki öllu.

2) Já, ég hygg að svo sé, en þarna koma aðallega fram spurningar... sumar betri en aðrar, vissulega, en þetta eru mestmegnis spurningar. Mátt hinsvegar ekki gleyma því að fólk innan flokksins hefur ólíkar skoðanir sem eru mismikið í samræmi við yfirlýsta stefnu FF. Mér þykir mjög kjánalegt að þú skulir ætla okkur að svara fyrir Viðar, ég hef haldið hann fullfæran um að svara fyrir sig fram til þessa.

3) Þó rök megi bera fyrir því að ýmislegt í fyrrupplesnum pistli megi túlka til vakningar útlendingaandúðar veit ég að það er ekki tilgangurinn, en ef íslenskir útlendingahatarar sækja fyrirmyndir sínar í Viðar hygg ég að það þurfi ekki að hafa áhyggjur af útlendingahatri hérlendis. laugh.gif

Þó þetta sé sett fram í spurningaformi hjá Viðari þá sést vel á þessum texta hver afstaðan er. Og sú afstaða er þá að þínu viti í anda stefnu Frjálslynda flokksins, jafnvel þó þú teljir margt þarna vera til vakningar útlendingaandúðar. Enda klikkir Viðar út með að það þurfi að herða hér reglur svo ekki fari hér allt á versta veg og hið hræðilega gerist í formi menningarlegs óstöðugleika.

Í sjálfu sér skiptir kannski ekki öllu máli hvort Viðar sé sjálfur útlendingahatari eða ekki. Miklu meira atriði í mínum huga er að hann kemur hér fram sem talsmaður stjórnmálaflokks (pistill á himasíðu ungliðahreyfingar) og vekur upp útlendingaandúð. Það er alvarlegt, ekki síst ef það er rétt að slíkt sé í fullu samræmi við stefnu flokksins, eins og þú heldur fram.

#6 Einar Maack

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 587 posts
  • Gender:Male
  • Location:Vesturbær Reykjavíkur
  • Interests:Heimspeki. Stjórnmál. Trúmál; trúfrelsi; trúleysi. Siðfræði.<br /> <br />Bókmenntir. Myndlist. Tónlist. Matarlyst. Fegurð og ljótleiki heimsins og allt þar á milli.

Posted 20 August 2008 - 00:38

QUOTE (Orville @ Aug 19 2008, 23:53) <{POST_SNAPBACK}>
Þó þetta sé sett fram í spurningaformi hjá Viðari þá sést vel á þessum texta hver afstaðan er. Og sú afstaða er þá að þínu viti í anda stefnu Frjálslynda flokksins, jafnvel þó þú teljir margt þarna vera til vakningar útlendingaandúðar. Enda klikkir Viðar út með að það þurfi að herða hér reglur svo ekki fari hér allt á versta veg og hið hræðilega gerist í formi menningarlegs óstöðugleika.

Í sjálfu sér skiptir kannski ekki öllu máli hvort Viðar sé sjálfur útlendingahatari eða ekki. Miklu meira atriði í mínum huga er að hann kemur hér fram sem talsmaður stjórnmálaflokks (pistill á himasíðu ungliðahreyfingar) og vekur upp útlendingaandúð. Það er alvarlegt, ekki síst ef það er rétt að slíkt sé í fullu samræmi við stefnu flokksins, eins og þú heldur fram.


Ég sagði að það mætti bera rök fyrir því að ýmislegt í þessum pistli væri vakning útlendingaandúðar, ég sagði aldrei að ég teldi svo vera heldur að ég vissi að sá væri ekki tilgangurinn.

Þetta eru spurningar. Allar spurningar eru nauðsynlegar í umræðunni um þessi mál, því þessi mál hafa rosalega margar hliðar sem ekki aðeins vert, heldur nauðsynlegt er að skoða áður en farið er útí frekari aðgerðir og inngöngur í ríkjasambönd etc...


Óvinur óvinar míns er ekki endilega vinur minn.
Ást, friður og réttlæti.
Frelsið ofar öllu

Skráið ykkur á gargið á Orninn.org - sendið inn greinar - Orninn.org - síðustu verjendur málfrelsis á Íslandi.

La vie est comme une fleur qui pousse au soleil. Si vous la privez de lumière, elle fâne et meurt.

J.E.V.B.Maack

#7 gmaria

    Talblaðra

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPip
  • 22212 posts

Posted 20 August 2008 - 01:02

Gaman að sjá þig hér Einar.

kv.
gmaria.
Sannleikurinn mun gera yður frjálsan.[i]

#8 Orville

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7554 posts

Posted 20 August 2008 - 13:04

QUOTE (Einar Maack @ Aug 20 2008, 0:38) <{POST_SNAPBACK}>
Ég sagði að það mætti bera rök fyrir því að ýmislegt í þessum pistli væri vakning útlendingaandúðar, ég sagði aldrei að ég teldi svo vera heldur að ég vissi að sá væri ekki tilgangurinn.

Þetta eru spurningar. Allar spurningar eru nauðsynlegar í umræðunni um þessi mál, því þessi mál hafa rosalega margar hliðar sem ekki aðeins vert, heldur nauðsynlegt er að skoða áður en farið er útí frekari aðgerðir og inngöngur í ríkjasambönd etc...

Kannski er þetta málið. Það sem sumum finnst eðlilegar spurningar finnst öðrum tilhæfulaus hræðsluáróður. En hvað ef við breytum aðeins þessum pistli og í stað þess að tala um fjölda útlendinga að þá færum við að velta fyrir okkur aukna atvinnuþátttöku kvenna. Minnug þess að fyrir ekki svo mörgum árum þótti það skömm ef karlmaðurinn gat ekki séð fyrir sinni fjölskyldu. Margir töldu þá og telja jafnvel enn að grunngildi samfélagsins væru í hættu ef konur færu í auknu mæli út á vinnumarkaðinn. Hér yrði félagsleg upplausn.

Hvað myndu Frjálslyndir flokkurinn segja um svona pistil og myndi flokkurinn láta það afskiptalaust ef svona væri talað í nafni flokksins?

Félagslegur stöðugleiki

Félagslegur stöðugleiki er grundvöllur sameiningar og stuðlar að auknum framförum þjóðarinnar. Til þess að viðhalda félagslegum stöðugleika er mikilvægt að stefna ríkisins varðandi atvinnuþáttöku kvenna sé skýr.

Fyrir stuttu lagði ég það til við Landsráð Frjálslynda flokksins að Frjálslyndi flokkurinn leggi grundvallaráherslu á að íslenska þjóðin hafi ávallt stjórn á því hverjar og hversu margar ákveða að vinna utan heimilis til skemmri eða lengri tíma.

Annars þurfa þeir sem fara með vald þjóðarinnar að gera sér grein fyrir vilja þjóðarinnar og hætta að fara hvað eftir annað gegn vilja hennar.

En hver er vilji þjóðarinnar?

Hvað vill þjóðin?

Hvað viljum við Íslendingar þegar kemur að atvinnuþáttöku kvenna? Hvað viljum við þegar kemur að málefnum er varða mentun kvenna? Hvað viljum við þegar kemur að málefnum barna? Hvað viljum við þegar kemur að uppeldismálum?

Hvað viljum við Íslendingar þegar kemur að skólakerfinu? Viljum við fá sama upplausnarástand í íslenska skólakerfið eins og ríkirá Norðurlöndunum þegar kennarar þurfa að lengja viðveru barna vegna þess að mæðurnar eru ekki heima? Er slíkt álag bjóðandi okkar kennurum? Er slík námsskerðing bjóðandi íslenskum börnum?

Hvað viljum við Íslendingar þegar kemur að heilbrigðiskerfinu? Viljum við svipað ástand á íslenskum sjúkrahúsum og er í sjúkrahúsum Englands? Viljum við að eldri borgarar séu settir á enn lengri biðlista? Við höfum bara ákveðið mikið af fagmenntuðu fólki í heilbrigðisgeiranum og við getum ekki séð tugþúsundum manna aukalega fyrir heilbrigðisþjónustu.

Hvað viljum við Íslendingar þegar kemur að réttindum íslenskra verkamanna? Viljum við áframhaldandi ógnarjafnvægi þar sem íslenski launamaðurinn hefur engin vopn í hendi sér á meðan atvinnurekandinn getur alltaf fundið ódýrari hæfari konu í gegnum hið frjálsa flæði kvenna út á vinnumarkaðinn? Viljum við skert lífskjör íslenskra launamanna? Viljum við sama ástand hér eins og í Skotlandi þar sem enginn kemst yfir lágmarkstaxta?

Hvað viljum við Íslendingar þegar kemur að atvinnuleysisbótum? Viljum við leyfa konum að taka atvinnuleysisbætur? Hvað viljum við að konur þurfi að hafa verið á vinnumarkaðnum hér lengi til þess að fá aðgang að atvinnuleysisbótum?

Hvað viljum við Íslendingar þegar kemur að glæpum? Viljum við áframhaldandi aukningu á glæpum? Viljum við aukna skipulagningu í fíkniefnaheiminum? Viljum við aukna tíðni glæpahringa sem stunda mansal, fíkniefnasölu, líkamsmeiðingar og pyntingar? Viljum við að axa- eða sveðjumorðingjar geti leitað sér athvarfs á Íslandi, vegna upplausnar ástands í uppeldismálum?

Hvað viljum við Íslendingar þegar kemur að aðlögun og skildum kvenna á vinnumarkaði? Viljum við enda með sama félagslega óstöðugleika og nágrannaþjóðir okkar þar sem stór hlut ikvenna og jafnvel innfæddra barna og barnabarna neitar að aðlagast samfélaginu þar sem hefð er fyrir því að karlmaðurinn sjái fyrir sinni fjölskyldu? Hvaða skyldur viljum við setja þeim sem fá leyfi til þess að fara út á vinnumarkaðinn, hvort sem við köllum þær nemendur eða launþega?.

Það er bara tímaspursmál hvenær strangari reglur um atvinnuþáttöku kvenna sem byggir á fjöldastýringu verður lögfest.

Af hverju ekki að koma með hana áður en allt fer á versta veg og félagslegi óstöðugleikinn hefur étið upp sameiningu landans?


#9 Einar Maack

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 587 posts
  • Gender:Male
  • Location:Vesturbær Reykjavíkur
  • Interests:Heimspeki. Stjórnmál. Trúmál; trúfrelsi; trúleysi. Siðfræði.<br /> <br />Bókmenntir. Myndlist. Tónlist. Matarlyst. Fegurð og ljótleiki heimsins og allt þar á milli.

Posted 20 August 2008 - 15:32

QUOTE (Orville @ Aug 20 2008, 13:04) <{POST_SNAPBACK}>
Kannski er þetta málið. Það sem sumum finnst eðlilegar spurningar finnst öðrum tilhæfulaus hræðsluáróður. En hvað ef við breytum aðeins þessum pistli og í stað þess að tala um fjölda útlendinga að þá færum við að velta fyrir okkur aukna atvinnuþátttöku kvenna. Minnug þess að fyrir ekki svo mörgum árum þótti það skömm ef karlmaðurinn gat ekki séð fyrir sinni fjölskyldu. Margir töldu þá og telja jafnvel enn að grunngildi samfélagsins væru í hættu ef konur færu í auknu mæli út á vinnumarkaðinn. Hér yrði félagsleg upplausn.

Hvað myndu Frjálslyndir flokkurinn segja um svona pistil og myndi flokkurinn láta það afskiptalaust ef svona væri talað í nafni flokksins?

Félagslegur stöðugleiki


Ertu í alvöru að bera saman atvinnuþátttöku kvenna við innflytjendamálin? Þarna...

...ha?

Í alvöru?

blink.gif

Ég sem hélt ég hefði séð allt.


Þetta eru tvennir ólíkir málaflokkar.

Óvinur óvinar míns er ekki endilega vinur minn.
Ást, friður og réttlæti.
Frelsið ofar öllu

Skráið ykkur á gargið á Orninn.org - sendið inn greinar - Orninn.org - síðustu verjendur málfrelsis á Íslandi.

La vie est comme une fleur qui pousse au soleil. Si vous la privez de lumière, elle fâne et meurt.

J.E.V.B.Maack

#10 Orville

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7554 posts

Posted 20 August 2008 - 15:57

QUOTE (Einar Maack @ Aug 20 2008, 15:32) <{POST_SNAPBACK}>
Ertu í alvöru að bera saman atvinnuþátttöku kvenna við innflytjendamálin? Þarna...

...ha?

Í alvöru?

blink.gif

Ég sem hélt ég hefði séð allt.


Þetta eru tvennir ólíkir málaflokkar.

Ég er að skoða málflutninginn, benda á hversu fáránlegur hann er með því að stilla sama málflutningi upp í tengslum við fordómafulla umræðu og lýðskrum fyrri ára. Þú verður líka að athuga það að það sem Viðar setur fram fær engan vegin staðist en eru að mínu mati augljóslega til þess fallnar að ala á ótta og fordómum.

Tökum fáein dæmi. Viðar talar um heilbrigðiskerfið og hvort það þoli útlendinga. En í raun hefði heilbrigðiskerfið varla funkerað nema af því að við gátum ráðið til starfa erlent fólk þegar umframeftirspurn var hér eftir vinnuafli. Þá talar Viðar um Frjálsla flæðið í sínum pistli og hvernig það á að hafa slæm áhrif á mennningarlega stöðugleika. En ef kafað er dýpra ofan í það mál sést að fjöldi fólks sem hingað hefur komið á undanförnum árum er frá löndum sem ekki hefur aðgang að Frjálsa flæðinu. Þannig hefur þetta frjálsa flæði ekki dugað til í þenslunni og hefði engu breitt um fjölda innflytjenda eða menningarlegan stöðugleika.

Svo talar Viðar um glæpi og tengir þá við útlendinga sérstaklega. Er það ekki dæmigerður hræðsluáróður í ljósi þess að flest það fólk sem hingað hefur komið er stálheiðarlegt og svo virðist sem glæpatíðni sé síst hærri meðal innflytjenda en innfæddra?

Svo má spyrja hvernig væri það sem við köllum íslenska menningu í dag ef við hefðum ekki orðið fyrir mennigarlegum áhrifum frá útlöndum? Hún væri augljólega mun fátækari. Margt af því fólki sem hefur markað hvað dýpst spor í íslensku menningarlífi eru einmitt flóttafólk eða innflytjendur sem hafa með þekkingu sinni og færni auðgað okkar menningu.

Með því að setja þessan pistil Viðars í annað samhengi, til dæmis atvinnuþáttöku kvenna, þá sjá vonandi flestir hversu fordómafullur og þröngsýnn málflutningur Frjálslynda flokksins er í málefnum innflytjenda. Við gætum skipt innflytjendum út fyrir homma, hvítasunnufólk eða örfhenta og fengið út sömu niðurstöðu. Því miður er þessi pistill Viðars dæmi um það hvernig hræðsluáróður FF hefur verið á lágu plani og tilhæfulaus með öllu.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users