QUOTE (blackbird @ Aug 21 2008, 23:10) <{POST_SNAPBACK}>
Akkúrat... ERGO, þetta var eini raunhæfi möguleikinn á að mynda stjórn, EN VISSILEGA dregur þessi ákvörðun Marsibil úr möguleikum hans á að ná góðri stjórn.
En ég sé að þú ert sammála mér þó þú virðist ekki alveg átta þig á því. Ég gef mér að þetta stamstarf verði borgarbúum til góða... og þú segir sjálfur ekki sé hægt að mynda meirihluta með Ólafi... well hvað þá ????
VG og SAMFÓ höfðu meiri áhuga að halda xD frá völdum en að hjálpa til með að mynda starfhæfa stjórn, en það er auðvitað afleitt að þeir flokkar virðast hafa það sem sitt æðsta markmið að einhver annar tiltekinn flokkur sé ekki við völd...
Mér finnst það mjög einkennileg pólitík.... barnaleg
En ég sé að þú ert sammála mér þó þú virðist ekki alveg átta þig á því. Ég gef mér að þetta stamstarf verði borgarbúum til góða... og þú segir sjálfur ekki sé hægt að mynda meirihluta með Ólafi... well hvað þá ????
VG og SAMFÓ höfðu meiri áhuga að halda xD frá völdum en að hjálpa til með að mynda starfhæfa stjórn, en það er auðvitað afleitt að þeir flokkar virðast hafa það sem sitt æðsta markmið að einhver annar tiltekinn flokkur sé ekki við völd...
Ég er ekki sammála þér þó ég telji Ólaf ekki nothæfan kost. Það var farin af stað umræða sen Ólafur sjálfur var þáttakandi að um að hann viki sæti, slíkt hefð getað vakið tjarnarkvartettin. Þessi umræða náði ekki að þróast vegna þorsta Óskars, hann fór bara stystu leið að brunninum þó vatnið væri fúlt. En já með Ólaf innan tjarnarkvartetts hefði hann verið jafn óstarfhæfur og fráfarandi stjórn. Svo er það minn punktur að á meðan ósammlyndið er eins og það er hjá Sjöllum, þá séu þeir ekki samstarfs hæfir. Við sjáum sem dæmi að ástæða þessarar sundrunar seinasta meirihluta á mikð til rætur í því að Vilhjálmur og Kjartan ákveða afsláttarkjör á stefnuna fyrir völd, Hanna Birna er aftur ekki sammála hvernig staðið var að. Og eins og hún sagði sjálf, þá ræddi hún um það á fyrsta fundi sínum við Ólaf sem oddviti flokksins að gera þyrfti róttækar breytingar á samstarfinu. Á þessum tíma var Ólafur fjandann ekkert farinn að skandilesera, ef rá er talið húsamálið á Laugarveginum. Hanna var með þessu að segja að ekki gilti lengur það samkomulag sem meirihlutinn byggði á og semja þyrfti aftur. Það er ekki gæfulegt að eiga í samskiptum við þannig mannskap.
Bíð góða nótt núna, kíki aftur á morgun.








