Jump to content


McCain veit ekki húsa sinna tal


2 replies to this topic

#1 visir

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 29073 posts
  • Gender:Male
  • Location:Ísland & Asía
  • Interests:Innflytjendur,pólitík,íþróttir,tónlist,trúmál og mannskepnan í öllum sínum myndum. http://kasmir.hugi.is/irarfargirl heimasíða dóttur minnar:)og www.folk.is/rebbuz

Posted 21 August 2008 - 14:40

Einungis nokkrum dögum eftir að bandaríski forsetaframbjóðandinn, John McCain gantaðist með það að til að teljast ríkur í Bandaríkjunum þá þyrfti maður að þéna 5 milljónir dala á ári hið minnsta neyddist hann til að viðurkenna að hann væri ekki viss um hversu mörg hús hann og konan hans eiga í raun og veru.

„Ég held... Ég læt starfsfólk mitt hafa samband við þig," var svar McCains við spurningunni sem vefritið Politico varpaði fram í morgun.

Síðar kom svarið frá starfsmönnunum en McCain og kona hans Cindy eiga að minnsta kosti fjögur hús í þremur ríkjum, Arizona, Kaliforníu og Virgina en nýlega mat tímaritið Newsweek að í raun ættu þau samanlagt sjö fasteignir.

McCain nefnir ekki auðæfi eiginkonu sinnar í kosningabaráttunni en talið er að hún hafi erft um 100 milljónir Bandaríkjadala eftir föður sinn sem rak bjórdreifingafyrirtæki í Arizona.


Er hann farinn ad kalka kallinn?
user posted imageSameinaðir stöndum vér sundraðir föllum vér.Frúin hlær í betri bíl.Konur eru yndislegar:)user posted image

#2 rimryts

    Málóður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPip
  • 18579 posts

Posted 21 August 2008 - 16:28

McCain kann ekki að telja upp að sjö, ekki frekar en ríkislögreglustjóri sem sleppti sjöunda kaflanum í Baugsákærunum. laugh.gif

#3 Toffi

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4571 posts
  • Location:Reykjavík
  • Interests:Fjölskyldan, Mótorhjól, Bílar, Ljósmyndun, Græjur ofl

Posted 22 August 2008 - 15:10

Aðal málið í forsetakostningunum er varaforsetinn því allar líkur eru á því að þeir taki við hvort sem Mcain eða obama vera fyrir valinu. Miðað við hvað kallin er farinn að kalka núna endist hann varla 4 ár í hvíta húsinu og obama verður líklega skotinn fyrir að vera svartur.
Með kveðju Toffi
Því er ekki enn farið að selja færeyingum rafmagn í gegnum sæstreng. Ekki þarf nýja virkjun til þess að sinna þeirra orkuþörf. Við fáum gjaldeyri og færeyingar fá hreina raforku.
Mín lausn er í geingdarlausri fjárfestingu í nýjum útflutningsgreinum. Allt annað á að sitja á hakanum.
Ennig þarf að skipta út bílaflotanum í áföngum í bíla sem nota innlenda orku. T.d. þessa
Ariel Atom





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users