Ég sakna þess að sjá ekki greiningu í fjölmiðlum á því hver munurinn sé á málefnasamningum borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins við Framsókn nú og þeim málefnasamningi sem gerður var við Ólaf F áður.
Gerir Sjálfstæðisflokkurinn mjög ólíka málefnasamninga við mismunandi flokka á sama kjörtímabilinu? Og ef svo er, þá af hverju? Af hverju er Sjálfstæðisflokkurinn reiðubúinn að breyta hugsjónum sínum á einu og sama kjörtímabilinu?
Getur verið að þetta snúist bara um völd en ekki hugsjónir?
Greining á málefnasamningum þeim sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert við samstarfsflokka sína á þessu kjörtímabili ætti að leiða í ljós svör við þessum vangaveltum.
Málefnasamningur nýs meirihluta
Started by kisi, 21 Aug 2008 16:40
No replies to this topic
1 user(s) are reading this topic
0 members, 1 guests, 0 anonymous users








