Jump to content


Sjálfstæðismenn þrýstu á Ólaf F til samstarfs í veikindaleyfi


10 replies to this topic

#11 Járnkarlinn

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2648 posts

Posted 22 August 2008 - 00:36

Ekki það að mér detti til hugar að taka minnsta mark á Ólafi, eins og ástatt er fyrir honum núna. Er burtséð frá því, þá hefði sú atburðarás verið fyllilega réttlætanleg. Það er nefnilega ábyrgðarhluti að standa hjá og nýta ekki tækifæri til að koma þessum stefnulausa Ruglistameirihluta frá. Þeim tókst ekki einu sinni að koma saman málefnasamningi, og það á rúmum þrem mánuðum.

Annnars minnist ég þess að Ólafur hafi ekki borið Ruglistum vel söguna, og að frekjan í Svandísi og Degi hafi gert útslagið fyrir að hann hafi sprent meirihlutann.

Nú er það svo að þessar tvær söguskýringar Ólafs eru ekki samrýmanlegar, og því hlýtur önnur hvor að vera lygi. Með öðrum orðum, Ólafur er ber að lygum.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users