Jump to content


Eftirlaunafrumvarp á Alþingi


1 reply to this topic

#1 Barði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3490 posts

Posted 22 August 2008 - 17:33

Var ekki upphaflega talað um að eftirlaunin margræddu sem þingliðið þiggur nú ættu að hverfa og allt þingliðið þægi einfaldlega eftirlaun samkvæmt almennum reglum sem gilda um þau? Var ekki frumvarp Valgerðar Bjarnadóttur þess eðlis, að afnema skyldi núverandi eftirlaun þingmanna en ekki bara að breyta þeim? Nú virðist helst sem aðeins eigi að "gera breytingar" á þessum lögum!

#2 Hildigunnur

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7306 posts

Posted 22 August 2008 - 18:06

Það er kannski bara kerskni í mér að segja þetta en skyldu þingmenn skoða þetta í ljósi jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.

http://www.snerpa.is/net/log/stjornar.htm

"65. grein



Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna."


Það verður að gæta þess að hér er ekki um að ræða samninga um kaup og kjör heldur lög.



Við erum öll á þeirri skoðun að heimurinn mætti vera öðruvísi, meðan enginn leiðir hugann að því hvernig megi breyta sjálfum sér.

Almenn skynsemi er takmörkuð auðlind, þeir sem hafa hana hljóta því að spara hana.



Hildigunnur, heimsins bezta norn.
Hjarta þitt er fullt af ást og hlýju.
Í þér býr öll mannkyns fræði forn.
Þú finnur lausn á vanda og táli nýju
.


(þetta er eftir Grandvaran og ég er afskaplega hróðug :) )





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users