Jump to content

Fróðleikur um hass!

31 replies to this topic

#1 ofvirkur

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 931 posts
  • Gender:Male
  • Location:Spain
  • Interests:Flest tengt tilfinningum.

Posted 14 November 2008 - 20:15

Mig langar aðeins að segja ykkur sem hafa áhuga á smá fróðleik um hass, sem er komin af mörgum rannsóknum á efninu, og svo i áframhaldi af niðurstöðum af rannsókn þar sem sjúklingar notuðu sér THC til lækninga.

THC er 9 mismunandi efni, sem gera svo misjafna hluti. Þess efni ákvarðast svo eftir gerð plöntunnar, hvenar hún er uppskorin, hvernig veðurfar hefur verið meðan hún blómstraði, og margt annað sem á í hlut.

THC verður til í kristölum á blómum plöntunar, það eru svo þrjár mismunandi kristalar á plöntunni. Innihald kristalana hefur að geyma THC í sér, og ef það er talað um að einhver planta sé með 10% THC innihald, þá er verið að tala um hversu mikið magn af THC-ið er mikið hluti af innihaldi kristalsins.

Eins og áður sagði, þá er THC 9 tegundir af efnum,(t.d. THC delta 9, THC delta 8 og CBD) tveir af kristölunum hafa 4 tegundir að geyma, en bara tvær í einu. Þegar líður á blómstrunina þá breytist það THC efni sem er í þessum tveimur kristölum í annarskonar gerð af THC, þriðji kristallin hefur að geyma 3 tegundir af þessum efnum, og breytist eftir aldri plönturnar. Kristalarnir breyta á sama tíma um lit, frá því að vera glærir, í það að verða mjólkurkendir, og svo brúnlitir. (fyrir grasnotkunn er plöntunni oftast slátrað þegar kristala eru að verða mjólkurkendir, en ef það á að búa til hass úr plöntunni, þá er henni leyft að blómstra aðeins lengur, eða þar til kristalar eru orðnir brúnir) Með tímanum minnka þeir líka, og í endan á blómstruninni, eru þeir hvað minnstir um sig.

Síðan er mismunur á kristölum plöntunnar, því neðar sem á plöntunn sem kristalar eru, eru þeir óþroskaðari, og ekki eins tilbúnir.
Einnig er munur á Indica plöntum og Sativa, indica plöntur geta klárað blómsturstíman sinn á niðrí 44 daga. Sativa planta getur þurft allt uppí 180 daga að klára sína blómstrun. Indica og Saiva skila af sér svo sitthvori blöndunni af THC, Sativa er eftirsóttari og allt að helmingin dýrari í innkaupum en Indica, Sativa er meira "high" en Indica meira "stoned".

Þegar uppskerunni er safnað saman eftir sumarið, er það þurkað. Síðan eru flottustu plönturnar teknar og þeim er slegið einusinni á fínustu síurnar sem þeir eru með, allt sem kemur undan því, fer í fyrsta flokks hass, svo næsta skref er að lemja plöntunum tvisvar í sama siktið, það verður að hassi, sem er 1. flokkur og vinnur til verðlauna. Svo gengur þetta svona þangað til plönturnar eru teknar og það er trampað á þeim, brotnar með steinum og allavega kúnstir, og duftinu af því safnað saman og geymt til þeirra tíma sem ekkert er að gera. Þá búa þeir til hass, sem er úr víðari siktum og ekki með bara þeim kristölum sem eru tilbúnir. Úr þessu kemur gífurlegt magna af svo kölluðu "standart" hass.

Þetta hass EINGÖNGU kemur til Íslands, því það mundi ekki svara kostnaði að selja hitt, eftir að vera búin að kaupa það og flytja inn. Þegar við skoðum svo hvaða kristalasöfnun verður þarna, að þá er það að mestu leiti THC sem við viljum helst ekki hafa þegar verið er að nota cannabis. Hvort sem er til skemmtunar eða lækningar.

Thað er eitt af þessum 9 THC tegundum sem sem er allsráðandi í þessu ofangreinda hassi, sem vinnur gegn öðrum THC áhrifum, og veldur óþægilegu stressi og paranoiu. Þetta hefur svo aðrar misjafnt slæma líðan í för með sér í gegnum vímuna. En þegar líkamin hefur myndað þol gegn því litla virka magni THC, að þá keyrir neytandin engöngu á þessu eina neikvæða THC efni.

Lækna og lyfavísindin komust að þessu, með því að ætla sér að nota engöngu þetta THC efni sem læknislyf, því það gaf ekki af sér vímu eins og hinar 6 tegundirnar. En það mistókst illa, því sjúklingar réðu ekki við aukaáhrifin sem fylgdu þessari tegund af THC.

Í dag hefur öllum góðum ræktendum tekist að rækta plöntur þar sem er búið að koma í veg fyrir að þetta efni verði til, og síðan þá hefur það gras talist svo hennta sjúkum hvað best. En það er langt í það að þetta efni verði ræktað úr plöntum sem eru staddar undir sólu, eins og t.d. Marocco. Þær plöntur sem búið er til hassið úr, sem kemst til Íslands alla leið. Hafa þetta allar í sér, og því ódýrara sem hassið er, því meira magn af þessu er í því.

Því finnst mér ekki skrítið að hasshausum á Íslandi líði ekkert allt of vel, frekar en þeim sjúklingum sem fengu þetta lyf til prufu frá læknum sínum her í denn.

Það er ekki nóg að gera sér skoðanir á þessu, og vita ekki um t.d. hluti eins og þennan. Og haldiði t.d. að þingmenn hafi þetta á hreinu?

Efast um það?
Kær kveðja,
Ofvirkur.

#2 Bronstein

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2401 posts

Posted 14 November 2008 - 20:53

Hér er meiri fróðleikur um hass:
Kannabisefni valda ein og sér alvarlegum sjúkdómi þar sem neytandinn verður líkamlega háður efninu. Í afeitrun fá sjúklingar veruleg fráhvarfseinkenni sem lýsa sér í svefntruflunum, kvíða og óróleika. Fylgikvillar mikillar kannabisneyslu hafa verið þeim læknum sem vinna með þessa sjúklinga vel ljós um langan tíma. Framfarir í frumulífeðlisfræði hafa gert mönnum kleift að skilja betur verkun kannabisefna á heilann. Þekkingin hefur einkum aukist eftir árið 1992. Þessi nýja vísindaþekking rennir enn frekari stoðum undir skilning manna á því að kannabisfíkn sé alvarlegur heilasjúkdómur sem hefur í för með sér slæma fylgikvilla, einkum hjá ungu fólki. Ungt fólk sem notar kannabisefni í óhófi á erfitt eða ómögulegt með að mynda trausta sjálfsímynd og vinna skipulega að markmiðum til lengri og skemmri tíma. Hvort tveggja er grundvöllur góðrar geðheilsu. Stórneytendur kvarta sjálfir undan minnistruflunum og að vitsmunaleg úrvinnsla heilans truflist verulega. Jafnframt þessu koma fram breytingar á tilfinningum og geðslagi, oft með verulegu þunglyndi.

#3 snoram

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 898 posts
  • Gender:Not Telling
  • Location:Jörð

Posted 14 November 2008 - 20:55

QUOTE (Bronstein @ Nov 14 2008, 20:53) <{POST_SNAPBACK}>

Svo er hass líka vont á bragðið.

#4 ofvirkur

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 931 posts
  • Gender:Male
  • Location:Spain
  • Interests:Flest tengt tilfinningum.

Posted 15 November 2008 - 11:29

QUOTE (snoram @ Nov 14 2008, 21:55) <{POST_SNAPBACK}>
Svo er hass líka vont á bragðið.

Hass er reyndar misjafnt a bragðið, en það hefðu þið gert ykkur grein fyrir, hefðu þið lesið fróðleikinn.
Kær kveðja,
Ofvirkur.

#5 snoram

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 898 posts
  • Gender:Not Telling
  • Location:Jörð

Posted 15 November 2008 - 16:38

QUOTE (ofvirkur @ Nov 15 2008, 11:29) <{POST_SNAPBACK}>
Hass er reyndar misjafnt a bragðið, en það hefðu þið gert ykkur grein fyrir, hefðu þið lesið fróðleikinn.

Já, ég er kannski fordómafullur.
Ég hef ekki mikinn áhuga á þessu máli eins og er. Fyrirgefið mér fyrir að trufla umræðuna.

#6 Timoshenko

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12424 posts
  • Gender:Male

Posted 15 November 2008 - 16:44

Bragðið fer aðallega eftir því úr hvaða rassi vímuefnið kemur.

#7 Grasi

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9096 posts
  • Gender:Male

Posted 15 November 2008 - 17:22

QUOTE (Timoshenko @ Nov 15 2008, 17:44) <{POST_SNAPBACK}>
Bragðið fer aðallega eftir því úr hvaða rassi vímuefnið kemur.

Hefurðu smakkað rassahass? ohmy.gif
Tumors inhibited by cannabinoids (the active agent in Marijuana) include:
lung carcinoma, glioma, thyroid epithelioma, lymphoma/leukemia, skin carcinoma, uterus carcinoma, breast carcinoma, prostate carcinoma, and neuroblastoma (a malignant tumor originating in the autonomic nervous system or the adrenal medulla and occurring chiefly in infants and young children).

Lögleiðum grasið áður en fleiri fara í gasið

Gmarískt gullkorn,,
"Það að eitthvað sé bannað með lögum í dag, er næg ástæða til þess að lögleiða það ekki á morgun!"

Stjórnmálamenn eru eins og nærbuxur, það þarf að skipta þeim reglulega út, af sömu ástæðu

#8 Timoshenko

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12424 posts
  • Gender:Male

Posted 15 November 2008 - 17:25

QUOTE (Grasi @ Nov 15 2008, 18:22) <{POST_SNAPBACK}>
Hefurðu smakkað rassahass? ohmy.gif
Nei ekki ennþá.

Er það ekki þessvegna sem hass er stundum kallaður skítur?

#9 Grasi

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9096 posts
  • Gender:Male

Posted 15 November 2008 - 18:16

QUOTE (Timoshenko @ Nov 15 2008, 18:25) <{POST_SNAPBACK}>
Nei ekki ennþá.

wink.gif
QUOTE (Timoshenko @ Nov 15 2008, 18:25) <{POST_SNAPBACK}>
Er það ekki þessvegna sem hass er stundum kallaður skítur?

Nei, hélstu það laugh.gif
Tumors inhibited by cannabinoids (the active agent in Marijuana) include:
lung carcinoma, glioma, thyroid epithelioma, lymphoma/leukemia, skin carcinoma, uterus carcinoma, breast carcinoma, prostate carcinoma, and neuroblastoma (a malignant tumor originating in the autonomic nervous system or the adrenal medulla and occurring chiefly in infants and young children).

Lögleiðum grasið áður en fleiri fara í gasið

Gmarískt gullkorn,,
"Það að eitthvað sé bannað með lögum í dag, er næg ástæða til þess að lögleiða það ekki á morgun!"

Stjórnmálamenn eru eins og nærbuxur, það þarf að skipta þeim reglulega út, af sömu ástæðu

#10 Butcer

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9336 posts

Posted 15 November 2008 - 18:24

Prufaði hass 2003(16 ára) fílaði það ekki og nota ekki dóp nema örsjaldan áfengi , ég get ekki séð að hass sé hættulegra en áfengi
Fyrrverandi tröll

1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users