Jump to content


Lögleiðing/afglæpun eins og ég sé hana


7 replies to this topic

#1 Plaidie

    Nýliði

  • Notendur
  • 6 posts

Posted 14 January 2010 - 21:56

Nú hef ég oft velt því fyrir mér hvernig lögleiðing/afglæpun væri best framkvæmd hér á landi og þetta er eginlega bara grunnur þar sem maður hefur auðvitað ekki hugsað út í alla útanga sem gætu verið ókostir etc.

1. Hámarksmagn sem hægt er að hafa á sér.

Ég tel að passlegt magn sem hver einstaklingur má hafa á sér til einkaneyslu sé 5 gr af grasi og 3 gr af hassi (sterkara þýðir minna) og aðeins 20 ára og eldri meiga hafa á sér (í samræmi við áfengisaldur) en ef undir 20eru teknir þá á sá hinn sami að greiða 5.000-10.000 og sæta félagsfræðiviðtals hvort hann sé háður kannabis og ef svo er þá er hann sendur í viðeigandi sálfræðiviðtöl/meðferð

2. Ræktun til einkanota/ræktunarleyfi

Hér getur ríkið gefið út ræktunarleyfi sem mun kanske verða 50.000 kr á ári fyrir 5 plöntur eða 100.000 kr fyrir 10 plöntur og ef upp kemst um leyfislausa ræktun þá verður ræktunin gerð upptæk ásamt ljósum ef þau eru ekki löglega keypt eða boðið verður uppá á staðnum að kaupa leyfi+sekt fyrir að hafa óheimila ræktun í gangi.

[Í þessum lið gæti ríkið t.d. samið við ræktendur með góða vöru að láta sig hafa birgðir og ræktandinn fær vist fyrir grammið eða eithvað slíkt]

3. Sala ríkisinns á kannabis.

Ríkið(Vínbúðin) mun sjá um lausasölu og verður framboð af tegundum eins mikil á hverjum stað og salan er (t.d. eru seldar fleirri víntegundir í stærri verslunum Vínbúðarinnar en minni) og í minni búðunum eru seldar þektari tegundir eins og með áfengið og þá er salan 3 gr af hassi og 5 gr af grasi eins og bent er á í fyrsta lið.

Skatttekjurnar verða auðvitað notaðar í forvarnar og meðferðarstarf (gjöld og álögur verða á svipuðum nótum og með áfengið)

4. Kannabis og keyrsla

Hér verðum við að gera greinarmun á milli þeim sem keyrir um með óvirkt THC í líkamanum og þess sem er með virkt THC og er í vímu undir stýri og ekki þýðir að finna óvirk efni og taka af fólki prófið þess vegna þarf að finna aðferð til að taka snögg próf á fólki sem sýnir fljótlega hvort fólk sé undir áhrifum eða ekki og séu menn teknir rugglskakkir undir stýri þá er það umsvifalaust tekið prófið af honum og sektargreiðsla.



Og til grasa sem hefur muun betri þekkingu á Medical Marijuana en ég geri þá getur hann kanske fylt upp í eyðurnar með þekkingu sinni.

#2 Plaidie

    Nýliði

  • Notendur
  • 6 posts

Posted 17 January 2010 - 16:45

Ekki er mikill áhugi á þessu hjá fólki hérna sem kemur svosem ekki á óvart þar sem allir eru uppteknir að vera með skítkast hvort við annað

En mátti reyna:)

#3 Grallarinn

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 956 posts

Posted 17 January 2010 - 20:05

Varðandi leið til þess að athuga hvort fólk sé undir áhrifum eður ei þá væri svona Amerískt Sobriety test mjög góð lausn, fólki sagt að ganga beina línu fara með starfrófið og eitthvað svoleiðis, útkoma úr þeim prófum myndi segja til um hæfni viðkomandi til þess að keyra ökutæki.

Annars er það mögulega tímasóun að minnast á einhverjar útfærslur lögleiðingar eða að spá mikið í þeim yfir höfuð en löggjafarvaldið liggur hjá okkar Alþingismönnum og ég man ekki eftir því að hafa heyrt svo mikið sem einn einasta þeirra minnast aukateknu orði á þetta mál hvað þá annað að lögð hafi verið fram frumvörp eða aðhafst eitthvað álíka.
Íslendingar munu ALDREI!!! gefast upp fyrir hersetuöflum Evrópusambandsins. NIÐUR!!! með Evrópusambandið.

#4 Grallarinn

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 956 posts

Posted 17 January 2010 - 22:45

Fyrst við erum nú annars að ræða þetta þá var ég að muna svona eitt úr æsku minni. Það komu einhverjir tveir góðhjartaðir mennirnir úr lögregluni til okkar í grunnskólan hjá okkur og voru svona eitthvað að fræða okkur um skaðsemi þessara blessuðu eiturlyfja og svoleiðis og það var eitt alveg sérstaklega minnisstætt úr þessari heimsókn, þeir létu Hassmola ganga á milli okkar grunnskólaunglingana og sögðu meir að segja að þessir molar væru einhvers virði í peningum talið í almennum fíkniefnaviðskiptum. Ég hef aldrei áður hugsað aftur til baka til þessa atviks en lenti eitthvert ykkar í svipuðu þegar þið voruð í grunnskóla og Halló hvað voru þessir lögreglumenn að hugsa að leyfa okkur að handfjatla molana, við vorum margir hverjir þegar byrjaðir að fikta með þetta sjálfir og það hefði ekki átt að koma neinum á óvart þó svo að einn eða tveir molar hefðu týnst í þessari kynningu.
Íslendingar munu ALDREI!!! gefast upp fyrir hersetuöflum Evrópusambandsins. NIÐUR!!! með Evrópusambandið.

#5 Plaidie

    Nýliði

  • Notendur
  • 6 posts

Posted 17 January 2010 - 23:41

QUOTE(Grallarinn @ 17. January, 2010, 22:45) <{POST_SNAPBACK}>
Fyrst við erum nú annars að ræða þetta þá var ég að muna svona eitt úr æsku minni. Það komu einhverjir tveir góðhjartaðir mennirnir úr lögregluni til okkar í grunnskólan hjá okkur og voru svona eitthvað að fræða okkur um skaðsemi þessara blessuðu eiturlyfja og svoleiðis og það var eitt alveg sérstaklega minnisstætt úr þessari heimsókn, þeir létu Hassmola ganga á milli okkar grunnskólaunglingana og sögðu meir að segja að þessir molar væru einhvers virði í peningum talið í almennum fíkniefnaviðskiptum. Ég hef aldrei áður hugsað aftur til baka til þessa atviks en lenti eitthvert ykkar í svipuðu þegar þið voruð í grunnskóla og Halló hvað voru þessir lögreglumenn að hugsa að leyfa okkur að handfjatla molana, við vorum margir hverjir þegar byrjaðir að fikta með þetta sjálfir og það hefði ekki átt að koma neinum á óvart þó svo að einn eða tveir molar hefðu týnst í þessari kynningu.



Reyndar er það alvarlegast af þessu að þeir eru þarna að koma í skólan og rugglandi í krökkunum með enga vísindalega þekkingu á bak við sig nema eflaust rugglið sem er kent í lögregluskólanum..

#6 Toffi

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4571 posts
  • Location:Reykjavík
  • Interests:Fjölskyldan, Mótorhjól, Bílar, Ljósmyndun, Græjur ofl

Posted 15 February 2010 - 01:35

Gras eða ekki gras það er spurningin. Það á að leifa þetta allt sama hvaða efni það eru. Með ströngum viðurlögum um að selja/gefa efni til barna undir 20 ára aldri. Ef við getum fækkað neitendum á aldrinum 9-20 ára um í það minnsta 20% með þessu móti þá er stórsigur unninn.
Með kveðju Toffi
Því er ekki enn farið að selja færeyingum rafmagn í gegnum sæstreng. Ekki þarf nýja virkjun til þess að sinna þeirra orkuþörf. Við fáum gjaldeyri og færeyingar fá hreina raforku.
Mín lausn er í geingdarlausri fjárfestingu í nýjum útflutningsgreinum. Allt annað á að sitja á hakanum.
Ennig þarf að skipta út bílaflotanum í áföngum í bíla sem nota innlenda orku. T.d. þessa
Ariel Atom

#7 jenar

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 13047 posts
  • Gender:Male
  • Location:Reykjavik

Posted 01 March 2010 - 15:59

QUOTE(Toffi @ 15. February, 2010, 1:35) <{POST_SNAPBACK}>
Gras eða ekki gras það er spurningin. Það á að leifa þetta allt sama hvaða efni það eru. Með ströngum viðurlögum um að selja/gefa efni til barna undir 20 ára aldri. Ef við getum fækkað neitendum á aldrinum 9-20 ára um í það minnsta 20% með þessu móti þá er stórsigur unninn.


9 ára? Aldrei hef ég séð 9 ára bumbufreðið barn. Sá einu sinni einn tveggja ára, en það var bara slys...
INGEN BIL ÄR LIK MIN BIL FÖR MIN BIL ÄR EN LIKBIL.

Það er heilabúið sem er í það heila búið.

Alþingi er kauphöll og gjaldmiðillinn hugsjónirnar.

#8 Grallarinn

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 956 posts

Posted 01 March 2010 - 16:20

Lögleiðing/afglæpun eins og ég sé hana:

Kanabissið yrði lögleitt, ég myndi kaupa mér gramm á góðu verði, vefja eina feita, kveikja í henni og halla mér aftur.
Íslendingar munu ALDREI!!! gefast upp fyrir hersetuöflum Evrópusambandsins. NIÐUR!!! með Evrópusambandið.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users