Það sem er hjákátlegast í þessu viðtali á Kastljósi var þetta töngl hans Sölva á ritstýringu.
Hann var í viðtali á Útvarpi sögu og Guðmundur Franklín einn hrunveranna. Þar voru þau skötuhjúin að babla um IP tölurnar og Jónína að útlista að hún viti nöfnin og er við það að birta hótun um að birta þessi nöfn þegar Guðmundur gjammar inn í.
Jónína á Útvarpi Sögu 23. júlí 2010:
"Svo sitja 6-7 einstaklingar heima á blogginu að níða mig niður fyrir það að namedroppa. Ég er með nöfnin á öllum þessum gaurum af því ég náði í ip-númerin hjá malefnin.com. Það er nú til dæmis ein sagan. Er það ekki mál að vita......
Guðmundur Franklín: "Hver á malefnin.com?"
Hvert heldur Sölvi að tilgangur Jónínu hafi verið með þessu hátterni sínu gegn Málefni.com?
Að efla Íslenska umræðu um efnahagsmál og gagnrýni á vini hennar í Sjálfstæðisflokknum?
Nei Sölvi minn. Tilgangur Jónínu með IP-söfnun sinni var að þagga niður í Málefni.com. Björn Bjarna lét uppi á sínum tíma að hann væri sama sinnis. Reynt var að þagga niður í þeim á marga vegu.
Eitt eiga þessir vesalingar sameiginlegt en það er hvaðan þeir koma stjórnmálalega, úr Sjálfstæðisflokknum.
Uglan var og er eflaust enn góðærisgutti.
Uglan gagnrýndi þig töluvert.
Aðrir hafa gert það líka.
Ekkert eiga þeir sameiginlega nema að hafa fengið viðurnefnið: "Góðærisgutti".
Ég átta mig eiginlega ekki á því hvað tilraun til nýyrðis þetta eigi að vera. En það má svo sem alltaf "reyna".
Vil bara benda á að ef ip-tölur og nöfn eru birt í þessari bók að þá eiga viðkomandi einstaklingar að kæra kellinguna og Sölva fyrir róg og meiðyrði. Þótt að tölurnar hafi komið frá mér upprunalega (stærstu mistök ævi minnar!) að þá er ekki hægt að tengja ip-töluna við nafn einstaklings nema að undangengnum dómsúrskurði. Ef að slík tenging hefur komið frá internetþjónustufyrirtækis án dómsúrskurðar að þá er fyrirtækið að brjóta lög og refsing við því er svipting starfsleyfis! Ég á bágt með að trúa að internetþjónustufyrirtæki taki slíka áhættu.
Þessar tölur eru að auki algjörlega úreltar og hafa ekkert sönnunargildi!
Ég ítreka svo afsökunarbeiðni mína til handa málverjum að hafa brugðist trausti þeirra á sínum tíma, það er eitthvað sem ég sé mjög eftir og mun alla tíð gera.
Að sjálfsögðu fyrirgefa menn þér.
Skárra væri það nú.
Nafnleyndin á malefnin og fleiri spallvefjum sannar gildi sitt þegar einhver reynir að ná ip-tölum til að opinbera "leigupenna" og ná sér almennilega niður á þeim. Þegar menn tjá sig um menn og málefni vilja menn geta gert það án þess að eiga atvinnumissi og hótanir á hættu í þessu litla landi, þar sem "réttu tengslin" eru málið. Það væri skref afturábak ef menn hættu að geta tjáð sig nema undir fullu nafni, það nægir að skoða mbl.is í því samhengi, þar eru "réttar" skoðanir allsráðandi og enginn "leigupenni" eða þannig. Í þessu samhengi verður að muna að ákveðinn hópur á landinu vildi útiloka "auðhringa" frá fjölmiðlum. Sá sem hefði hagnast á því gerræði hefði verið Mbl. Tilviljun? Þeir sem hamast á JÁJ (Mbl. amx.is náhirðin) vilja nefnilega ná því sem JÁJ á og átti á Íslandi, því þeir telja sig hafa alltaf átt Ísland.
Já já, eitt stórt samsæri gegn hinum löghlýðna manni JÁJ.
aha ... hef heyrt þetta áður.