Ykkur hefur sjálfsagt fundist að ég hafi verið fjarlæg undanfarið. Málið er að ég fór í vikufrí á Hornstrandir, þar sem ekkert er rafmagn né internet, þetta var frá síðasta fimmtudegi til þessa fimmtudags, síðan þá hef ég dvalið við dánarbeð föður míns, setið við sjúkrabeðinn, haldið í hönd hans og reynt að vera honum sáluhjálp. Mér fannst það einhvernveginn meira virði en argaþras fólks hér. Stundum verða svoleiðis mál einhvernveginn svo léttvæg þegar kemur að alvöru lífsins, eins og þegar faðir manns er að kveðja þetta líf. Nú í kvöld um áttaleytið kvaddi hann og fór níutíu og tveggja ára gamall. Þó megi segja að þegar svo gamalt fólk fer sé ef til vill ekki tilefni til að syrgja, En elskaði ég þennan föður minn og umgekkst hann mjög mikið, sérstaklega undanfarna mánuði, meðan hann gekk sína göngu niður frá því að vera sérlega sjálfstæður maður til þess að sætta sig við að vera háður okkur börnunum sínum og starfsmönnum sjúkrahússins.
Það sem ég er að reyna að segja ykkur er að biðja um að þið gefið mér næði til að syrgja og gera það sem þarf að gera við svona aðstæður. Ég er frumburður föður míns og móður og finnst að ég þurfi að leiða þá vinnu.
Ég vil því höfða til ykkar betri manns um að gera mér þann greiða að vera vinir og reyna að hugsa til þess að oft má satt kyrrt liggja, og að það er ekkert fengið með því að særa aðra eða reyna að niðurlægja í umræðunni. Það upphefur sig enginn með því að niðurlægja annan.
Með bestu kveðjum Ásthildur Cesil.
Ágætu málverjar
Started by cesil1, 16 Aug 2010 00:33
17 replies to this topic
#1
Posted 16 August 2010 - 00:33
#2
Posted 16 August 2010 - 00:40
Ég votta þér og þínu fólki samúð.
Kv, Hawk12
Kv, Hawk12
Edited by Hawk12, 16 August 2010 - 02:41.
http://www.foxnews.com/
http://gretawire.blogs.foxnews.com/
http://www.foxnews.com/oreilly/
http://www.foxnews.com/glennbeck/
http://gretawire.blogs.foxnews.com/
http://www.foxnews.com/oreilly/
http://www.foxnews.com/glennbeck/
#3
Posted 16 August 2010 - 01:02
Elsku Cesil. Ég votta þér samúð á erfiðum tímum.
01.12.2012.
Er á síðustu metrunum á þessum vef en er þrjóskari en andskotinn og kannski bjartsýnni en flest fífl.
Rísið upp málverjar og sýnið sjálfsvirðingu.
Kær kveðja
Óradís.
Allir í leik
Allir í leik
Nú er hún Óradís komin á kreik
http://www.facebook....tir?ref=tn_tnmn
Er á síðustu metrunum á þessum vef en er þrjóskari en andskotinn og kannski bjartsýnni en flest fífl.
Rísið upp málverjar og sýnið sjálfsvirðingu.
Kær kveðja
Óradís.
Allir í leik
Allir í leik
Nú er hún Óradís komin á kreik
http://www.facebook....tir?ref=tn_tnmn
#4
Posted 16 August 2010 - 03:28
Mínar innilegustu samúðarkveðjur.
#5
Posted 16 August 2010 - 05:20
Samhryggist þér innilega
Jazz
To be, or not to be

Fæddur sem fiskur í fiskinum
To be, or not to be

Fæddur sem fiskur í fiskinum
#6
Posted 16 August 2010 - 07:01
Innilegar samúðaróskir Cesil
"Science flies you to the moon. Religion flies you into buildings" - Victor Stenger
"That's not opinion, that's science. And science is one cold hearted bitch with a fourteen-inch strap-on" - Vince Masuka
"Too often we... enjoy the comfort of opinion without the discomfort of thought" - John F. Kennedy
"That's not opinion, that's science. And science is one cold hearted bitch with a fourteen-inch strap-on" - Vince Masuka
"Too often we... enjoy the comfort of opinion without the discomfort of thought" - John F. Kennedy
#7
Posted 16 August 2010 - 07:48
Innilegar samúðarkveðjur.
#9
Posted 16 August 2010 - 12:31
Ég samhryggist þér Cesil.
Krókurinn hér
hvar og hvenær sem er
o.s.fr.
hvar og hvenær sem er
o.s.fr.
#10
Posted 16 August 2010 - 12:44
Innilegar samúðarkveðjur.
Kveðja,
Tembe
----------------
Áhugaverðar síður, ekki ætlaðar börnum eða viðkvæmum.
http://www.litlaisland.net/
http://tidarandinn.is/
http://www.hvitbok.vg/
1 user(s) are reading this topic
0 members, 1 guests, 0 anonymous users








