Jump to content


Nýji IceSave samningurinn 200 miljörðum ódýrari


63 replies to this topic

#21 Brodd-Helgi

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9657 posts

Posted 09 December 2010 - 21:07

þetta er rétt hjá honum í aðalatriðum.

Ennfremur var rétt hjá B&H að hafna sumum fyrirvörunum sem rugludalar hérna uppi voru að sjóða saman. það var alveg rétt.

Svokallaður ,,nýji samningur" er alveg það sama og talað hefur verið um frá byrjun. Borga skuldina.

En jú jú, það er bara gott ef allir eru orðnir sammála um það að borga þessa skuld og vonandi læra menn nú af þessu. Uppúr fíflagangi hefst ekkert nema skaði og fíflagangur á allra síst við í milliríkjasamskiptum. Allra síst. En það þýðir ekkert að tala um það svo sem héðan af. Skaðinn er skeður. Fólk sumt kaus að fíflast og almenningur situr uppi með skaðakostnaðinn. Fleiri fleiri hundruð milljarðar. Afleiðingin er Icesave I og Icesave II. Tvöföld skuld.

Edited by Brodd-Helgi, 09 December 2010 - 21:08.

I grew up in Europe, where the history comes from (Eddie Izzard)




#22 Stone age

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 704 posts

Posted 09 December 2010 - 21:10

QUOTE(Laplace @ 9. December, 2010, 21:05) <{POST_SNAPBACK}>
Æjæjæj, hvenær var þetta viðtal tekið?


Já þú æ æjar Hvað sagði Þórólfur sem ástæða er til að æ æja yfir? Jú hann sagði að ef lán berðust ekki þá myndi eitthvað mikið slæmt gerast. Til þess kom aldrei.

Come to the ground please.

Stone Age

Edited by Stone age, 09 December 2010 - 21:12.


#23 Laplace

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 6885 posts
  • Gender:Male

Posted 09 December 2010 - 21:14

QUOTE(Brodd-Helgi @ 9. December, 2010, 21:07) <{POST_SNAPBACK}>
þetta er rétt hjá honum í aðalatriðum.

Ennfremur var rétt hjá B&H að hafna sumum fyrirvörunum sem rugludalar hérna uppi voru að sjóða saman. það var alveg rétt.

Svokallaður ,,nýji samningur" er alveg það sama og talað hefur verið um frá byrjun. Borga skuldina.

En jú jú, það er bara gott ef allir eru orðnir sammála um það að borga þessa skuld og vonandi læra menn nú af þessu. Uppúr fíflagangi hefst ekkert nema skaði og fíflagangur á allra síst við í milliríkjasamskiptum. Allra síst. En það þýðir ekkert að tala um það svo sem héðan af. Skaðinn er skeður. Fólk sumt kaus að fíflast og almenningur situr uppi með skaðakostnaðinn. Fleiri fleiri hundruð milljarðar. Afleiðingin er Icesave I og Icesave II. Tvöföld skuld.



Fyrst þú ert farinn að draga tölur út um rassgatið á annað borð afhverju hefur þú þær þá ekki almennilegar? Í stað "fleiri hundruð milljarðar" gætir þú sagt 14 centillion krónur, eða jafnvel 213 Googleplex krónur

QUOTE(Stone age @ 9. December, 2010, 21:10) <{POST_SNAPBACK}>
Já þú æ æjar Hvað sagði Þórólfur sem ástæða er til að æ æja yfir? Jú hann sagði að ef lán berðust ekki þá myndi eitthvað mikið slæmt gerast. Til þess kom aldrei.

Come to the ground please.

Stone Age



Ég "æjæjæji" yfir svartagallsrausi Þórólfs sem gekk auðvitað ekki eftir. rolleyes.gif

Edited by Laplace, 09 December 2010 - 21:12.

QUOTE (Davíð Oddson @ Jan 2004)
Banks are now more capable of backing Icelandic business and have been expanding overseas on a growing scale. This is a very positive development which shows beyond all doubt the enormous force unleashed when the state entrusts individuals with freedom of action.



Meðlimur í Félagi Þöggunarsinna
Þaggar reglulega niður í rasistum

#24 feu

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 27429 posts
  • Gender:Male
  • Location:Iceland

Posted 09 December 2010 - 21:15

Þetta segir þessi maður orðrétt í dag:
"Þeir völdu óhagstæðustu sviðsmyndirnar og kynntu þær, hvernig allt gæti farið á versta veg. Kannski eru menn núna að kynna þetta undir öfugum formerkjum."

Nú hann sjálfur notaði síðan einhvern þann æsilegasta málflutning sem hugsast gat þegar hann málaði mynd af afleiðingum þess að við mundum ekki samþykkja samning þann sem Svavar kom með til landsins.

Ég hlýt að gera þá lágmarks kröfu að málverjar sem leggja orð í belg um þessi orð hans, hlusti í það minnsta á þetta viðtal.

Hann er að biðja um erlend lán í þessu viðtali. Vill fá 2007 aftur. Og hans eigin orð, orðrétt úr þessu viðtali:

"..lánveitendur okkar vilja ekki láta meira fé af hendi rakna og þá gerist það.. að þá hrynur krónan, hún fer niður fyrir allt sem að við höfum nokkurn tímann þekkt. Lífskjör hér hrynja, gjörsamlega. Atvinnuleysi eykst.. þannig að við erum að horfa upp á hreint hriiiiiiikalega sviðsmynd og ég ætla bara að vona að til þess þurfi ekki að koma"



#25 Ísland-Kanada

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 676 posts

Posted 09 December 2010 - 21:17

QUOTE (feu @ 9. December, 2010, 19:17) <{POST_SNAPBACK}>
Þá er það orðið skjalfast hversu heimskulegur Svavars-samningurinn var. Og umleið hefur sagan skjalfest hversu heimskulegur hræðsluáróður Jóhönnu og Steingríms ásamt klappliði þeirra hér á Málefni.com var. Ekkert hefur hrunið nema síður sé og umleið, 200 miljarðar þegar sparast við það að standa gegn þessari botnlausu heimsku og græðgi aumingjanna í styrki og ímyndaðri aðstoð ESB í endurreisn þessa lands.

Nú má sjá hvernig er í pottinum búið. ESB lönd hvert á eftir öðru er að hrynja innanfrá vegna gríðarlegrar skuldasöfnunar. Skuldasöfnunar sem er afurð þessa nýja hagkerfis sem ESB og frjálshyggjan hefur verið að boða síðustu 20 árin allavega.

Fjármálafyriræki fá að blása út og heimskir stjórnmálamenn fá að berja sér á brjóst fyrir að búa til góðæri og hagvöxt.

En innantómið skiptir þá engu. Eyðileggingin og afsal auðlinda skiptir þá heldur engu máli, þetta er hvort sem er slor og skítur.

Í raun er þetta lið hreinir landráðamenn. Það er ekki hægt að valda landi sínu meira tjóni en þetta lið gerir og hefur gert með málflutningi sínum. Gróðærisguttarnir eru í raun sem smábörn í samanburði við þessa heimsku. Því þetta lið sem hér hefur hæðst, vill ganga enn lengra en þeir. Það sýnir sig og sannast þegar þetta lið vill ganga í ESB sem gengur lengst í þessu nýja hagkerfi fjármálapýramída og gervi-hagvaxtar.

Þannig hafa þessir guttar ljáð málstækinu, að fara úr öskunni í eldinn, enn dýpri meiningu og nýrri vídd í næstum botnlausri heimsku.


Ertu sem sagt ekki vinstri grænn lengur? rolleyes.gif

#26 Hiddaj

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4425 posts
  • Gender:Female

Posted 09 December 2010 - 21:18

QUOTE(Laplace @ 9. December, 2010, 21:14) <{POST_SNAPBACK}>
Fyrst þú ert farinn að draga tölur út um rassgatið á annað borð afhverju hefur þú þær þá ekki almennilegar? Í stað "fleiri hundruð milljarðar" gætir þú sagt 14 centillion krónur, eða jafnvel 213 Googleplex krónur


biggrin.gif

Ætli sé ekki hægt að senda Lee Buchheit til Landsvirkjunar núna fyrst þetta er búið. Allavega virðist svona við fyrstu sýn þessi samningur nokkuð sanngjarn.
Don't argue with an idiot, they'll just drag you down to their level and beat you with experience.

#27 afleiða

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2692 posts
  • Gender:Male
  • Location:Reykjavik

Posted 09 December 2010 - 21:20

QUOTE(feu @ 9. December, 2010, 17:17) <{POST_SNAPBACK}>
Þá er það orðið skjalfast hversu heimskulegur Svavars-samningurinn var. Og umleið hefur sagan skjalfest hversu heimskulegur hræðsluáróður Jóhönnu og Steingríms ásamt klappliði þeirra hér á Málefni.com var. Ekkert hefur hrunið nema síður sé og umleið, 200 miljarðar þegar sparast við það að standa gegn þessari botnlausu heimsku og græðgi aumingjanna í styrki og ímyndaðri aðstoð ESB í endurreisn þessa lands.

Nú má sjá hvernig er í pottinum búið. ESB lönd hvert á eftir öðru er að hrynja innanfrá vegna gríðarlegrar skuldasöfnunar. Skuldasöfnunar sem er afurð þessa nýja hagkerfis sem ESB og frjálshyggjan hefur verið að boða síðustu 20 árin allavega.

Fjármálafyriræki fá að blása út og heimskir stjórnmálamenn fá að berja sér á brjóst fyrir að búa til góðæri og hagvöxt.

En innantómið skiptir þá engu. Eyðileggingin og afsal auðlinda skiptir þá heldur engu máli, þetta er hvort sem er slor og skítur.

Í raun er þetta lið hreinir landráðamenn. Það er ekki hægt að valda landi sínu meira tjóni en þetta lið gerir og hefur gert með málflutningi sínum. Gróðærisguttarnir eru í raun sem smábörn í samanburði við þessa heimsku. Því þetta lið sem hér hefur hæðst, vill ganga enn lengra en þeir. Það sýnir sig og sannast þegar þetta lið vill ganga í ESB sem gengur lengst í þessu nýja hagkerfi fjármálapýramída og gervi-hagvaxtar.

Þannig hafa þessir guttar ljáð málstækinu, að fara úr öskunni í eldinn, enn dýpri meiningu og nýrri vídd í næstum botnlausri heimsku.



Við erum að horfa upp á tvennt í dag.

1. Kerfishrun fjármálakerfis heimsins.

2. Hægfara hnignun norðursins samfara hraðfara sigurgöngu suðursins.


Where everyone in the house is crazy only the sane seem like fools.

#28 feu

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 27429 posts
  • Gender:Male
  • Location:Iceland

Posted 09 December 2010 - 21:21

QUOTE(Ísland-Kanada @ 9. December, 2010, 21:17) <{POST_SNAPBACK}>
Ertu sem sagt ekki vinstri grænn lengur? rolleyes.gif

Í sjálfu sér hef ég aldrei verið eitt né neitt sérstaklega. Kýs oftast menn sem ég treysti hvað mest. Þannig þegar ég var ungur, þá kaus ég Sjálfstæðismenn, síðan kaus ég Borgaraflokkinn með Júlíusi Sólnesi, Frjálslynda vegna (þykistu) kvótaandstöðunnar og einhvern tímann Krata vegna Jóns Baldvins.

Í öll þessi skipti hef ég séð eftir því sem ég hef kosið. Og lærdómurinn sem ég hef lært af þessu er einfaldur en óumflýjanlega sannur.

Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf.

#29 Stone age

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 704 posts

Posted 09 December 2010 - 21:22

QUOTE(feu @ 9. December, 2010, 21:15) <{POST_SNAPBACK}>
Þetta segir þessi maður orðrétt í dag:
"Þeir völdu óhagstæðustu sviðsmyndirnar og kynntu þær, hvernig allt gæti farið á versta veg. Kannski eru menn núna að kynna þetta undir öfugum formerkjum."

Nú hann sjálfur notaði síðan einhvern þann æsilegasta málflutning sem hugsast gat þegar hann málaði mynd af afleiðingum þess að við mundum ekki samþykkja samning þann sem Svavar kom með til landsins.

Ég hlýt að gera þá lágmarks kröfu að málverjar sem leggja orð í belg um þessi orð hans, hlusti í það minnsta á þetta viðtal.

Hann er að biðja um erlend lán í þessu viðtali. Vill fá 2007 aftur. Og hans eigin orð, orðrétt úr þessu viðtali:

"..lánveitendur okkar vilja ekki láta meira fé af hendi rakna og þá gerist það.. að þá hrynur krónan, hún fer niður fyrir allt sem að við höfum nokkurn tímann þekkt. Lífskjör hér hrynja, gjörsamlega. Atvinnuleysi eykst.. þannig að við erum að horfa upp á hreint hriiiiiiikalega sviðsmynd og ég ætla bara að vona að til þess þurfi ekki að koma"


Nei með lánveitendum okkar á hann við AGS og þar eru Bretar og Hollendingar hluti af.

Stone Age

#30 feu

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 27429 posts
  • Gender:Male
  • Location:Iceland

Posted 09 December 2010 - 21:25

QUOTE(Stone age @ 9. December, 2010, 21:22) <{POST_SNAPBACK}>
Nei með lánveitendum okkar á hann við AGS og þar eru Bretar og Hollendingar hluti af.

Stone Age

Nei. Hann er ekki að tala um AGS, heldur Breta sjálfa og Hollendinga og traustið á okkur sem þjóð til að geta tekið lán.

Málið er hins vegar á kristaltæru. Við sem land þurfum ekkert á þessum lánum að halda. Það er lygi að halda slíku fram. Í dag á SÍ hundruðir miljarða af gjaldeyri. Þessi sjóður bíður þess að verða að engu þegar gjaldeyrishöftin verða afnumin, vegna krónueignar fyrrum Jöklabréfseigenda.

Stjórn þessara mála er í takt við bullið hjá þessum manni og orð og hugtök eins og landráð lýsa best hvað við á þegar nöfn þessara manna eru höfð á lofti.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users