Jump to content

Gleðilegt ár.

8 replies to this topic

#1 cesil1

    Vefstjóri

  • Vefstjóri
  • 1495 posts

Posted 31 December 2010 - 17:01

Kæru Málverjar senn líður þetta ár á enda. Við höfum þraukað lengi og stöndum enn keik. Margir nýjir félagar, en miklu fleiri gamlir vinir sem hafa verið ég jafnvel frá upphafi.
Við höfum gengið saman gegnum súrt og sætt, stundum rifist og jafnvel hatast, en samt ríkir þessi vænt um þykja með okkur, því ef á okkur er ráðist af einhverjum utanaðkomandi þá stöndum við saman sem einn maður. Við erum nánast sem ein stór fjölskylda, sem leyfu okkur að rífast í sandkassanum, en viljum samt ekki hvors án annars vera.

Mig langar til að senda ykkur mínar innilegustu kveðjur um gleðilegt nýtt ár og óska ykkur öllum gæfu og gengis á því nýja.

Ég hef sjálf tekið þá ákvörðun að segja starfi mínu lausu sem ég hef gegnt í 30 ár. Ég geri það með ákveðnum söknuði, en framundan eru ævintýri sem ég ætla að njóta. Ég get loksins verið sjálfs mín herra (Frú) og gert það sem mér sjálfri finnst skemmtilegast og best. Það hefur tekið talsverðan tíma að taka þessa ákvörðun og þegar maður er orðin svona gamall eins og ég, þá vill maður festast í ákveðnu munstri.
Ég hef því ákveðið að stökkva og brjóta það munstur upp og sjá hvað framtíðin ber í sínu skauti. Ég vil að þið vitið þetta því þið eru flest miklu yngri en ég, og mig langar til að deila þessu með ykkur til að sýna að lífið er aldrei búið, nema maður ákveði það sjálfur.

Það er mín gjöf til ykkar upp á framtíðina. Lifið heil og hafið það sem allra best.

Attached File  IMG_0914.JPG   52.92K   0 downloads

#2 Tembe

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7881 posts
  • Gender:Male

Posted 31 December 2010 - 17:22

QUOTE(cesil1 @ 31. December, 2010, 17:01) <{POST_SNAPBACK}>

Óska þér og þínum Gleðilegs árs og þakka fyrir það liðna.
Hér er klukkan 01:22 á nýju ári.
redwine.gif beer.gif

band.gif

Edited by Tembe, 31 December 2010 - 17:23.

Kveðja,
Tembe

----------------
Áhugaverðar síður, ekki ætlaðar börnum eða viðkvæmum.
http://www.litlaisland.net/
http://tidarandinn.is/

#3 Timoshenko

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12424 posts
  • Gender:Male

Posted 31 December 2010 - 17:24

Gleðilegt ár Cesil, mega allir góðir vættir vaka yfir þér og þínum.

#4 Spitfire

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4465 posts
  • Gender:Male
  • Location:Reykjavík

Posted 31 December 2010 - 18:49

Elsku Cecil, knús frá mér til þín og þinna heart_001.gif

#5 Óradís

    Talblaðra

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPip
  • 24254 posts
  • Gender:Female
  • Interests:Næstum allt

Posted 01 January 2011 - 02:18

Gleðilegt nýtt ár kæra Cesil. Megi ævintýrin í framtíðinni þinni verða frábær. Njóttu tilverunnar heart_001.gif
01.12.2012.
Er á síðustu metrunum á þessum vef en er þrjóskari en andskotinn og kannski bjartsýnni en flest fífl.
Rísið upp málverjar og sýnið sjálfsvirðingu.

Kær kveðja
Óradís.

Allir í leik
Allir í leik
Nú er hún Óradís komin á kreik

http://www.facebook....tir?ref=tn_tnmn

#6 Landinn

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2334 posts

Posted 01 January 2011 - 19:19

Gleðilegt nýtt ár Cesil og aðrir málverjar. Sérstakar kveðjur fá 7kr og fleiri sem eru duglegastir að þræta við mig um hin ýmsu málefni. smile.gif

#7 loftslag.is

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 1464 posts
  • Location:Ísland

Posted 01 January 2011 - 19:28

Gleðilegt nýtt ár Cesil, megi þér vegna vel í framtíðinni við nýjar áskoranir.

Einnig langar mig að óska öðrum Málverjum velgengni á nýju ári, með þökk fyrir málefnalega umræðu, sem fram fór á árinu sem nú er liðið. Vonandi verður umræðan enn málefnalegri á nýju ári smile.gif
Mbk.
Sveinn
Ritstjóri á loftslag.is

#8 Moran

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 5984 posts

Posted 07 January 2011 - 19:20

Gleðilegt ár.

#9 Spinni

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4323 posts

Posted 21 March 2011 - 14:56

Sælir.

Nú er helv stjórnin að fara frá vonandi svo þetta gæti orðið gleðilegt ár.

kv

Spinni.

1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users