Jump to content


IceSlave3 samþykkt


115 replies to this topic

#71 jukn

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4810 posts
  • Gender:Male

Posted 17 February 2011 - 14:09

QUOTE (Timoshenko @ 17. February, 2011, 14:07) <{POST_SNAPBACK}>
Hvar heyrðir þú þetta? Kannski hjá Pétri áróðursmeistara á Útvarpi Sögu?


Var það Pétur sem þú varst að svara um daginn? smile.gif

Edited by jukn, 17 February 2011 - 14:09.


#72 Timoshenko

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12424 posts
  • Gender:Male

Posted 17 February 2011 - 14:09

QUOTE(jukn @ 17. February, 2011, 14:09) <{POST_SNAPBACK}>
Var það Pétur sem þú varst að svara um daginn? smile.gif
rolleyes.gif


#73 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10767 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góður matur.

Posted 17 February 2011 - 14:16

QUOTE(Timoshenko @ 17. February, 2011, 14:07) <{POST_SNAPBACK}>
Þessi samanburður gildir aðeins ef Eyjan mön er í EES eða ESB.

Er hún það? Nei. Er þá hægt að nota eyjuna Mön sem dæmi? Nei.

Hvar heyrðir þú þetta? Kannski hjá Pétri áróðursmeistara á Útvarpi Sögu?

Í fyrsta lagi, ég hlusta ekki á Útvarp Sögu.
Í öðru lagi þá á þessi samanburður alveg við í því tilfelli að sýna að Bretar eru að mismuna alveg eins og við gerðum, milli útibúa, alveg eftir því hvar útibúið er. ESB/ekki ESB er bara lögfræðihártogun. Host landið er í ESB og það er það sem skiptir máli, ekki hvort Mön sé það eða ekki.

Annars er þetta þráðarrán fyi.
"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#74 jukn

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4810 posts
  • Gender:Male

Posted 17 February 2011 - 14:22

QUOTE (fleebah @ 17. February, 2011, 14:16) <{POST_SNAPBACK}>
Í fyrsta lagi, ég hlusta ekki á Útvarp Sögu.
Í öðru lagi þá á þessi samanburður alveg við í því tilfelli að sýna að Bretar eru að mismuna alveg eins og við gerðum, milli útibúa, alveg eftir því hvar útibúið er. ESB/ekki ESB er bara lögfræðihártogun. Host landið er í ESB og það er það sem skiptir máli, ekki hvort Mön sé það eða ekki.


Það er staðsetning útibúsins sem skiptir máli. Útibú utan EES/ESB þurfa að tilheyra einhverjum öðrum tryggingarkerfum. Þau falla ekki inní þetta system

#75 skeggi

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2872 posts

Posted 17 February 2011 - 14:28

QUOTE(fleebah @ 17. February, 2011, 13:24) <{POST_SNAPBACK}>
Að segja "Nei við borgum ekki skuldir óreiðumanna" er svo mikil afneitun og svo ábyrgðarlaust að það hálfa væri nóg. Ekta frasafillerí þar sem "einhver annar" á ábyrgðina. En í enda dags eigum við hana öll, alveg sama þó okkur þyki það súrt í broti.


Algjörlega sammála. Það eru vissulega ýmis rök fyrir því að etv ætti ESB/EES að koma til aðstoðar fyrir regluverkið hafi "boðið uppá þetta", að við ráðum ekki við þetta sökum smæðar þjóðar, eða e-ð í þeim dúr (ekki að segja að þau rök seu endilega skotheld en þau eru engu að síður rök)

en

andstæðingar Icesave hafa AÐALLEGA keyrt á þessum einföldu "prinsipp" slagorðum um "óreiðumenn" og "skuldir einkafyrirtækja".

Icesave andstæðingar geta sjálfum sér kennt líti þeir á niðurstöðu málsins sem "tap", þeirra málflutningur hefur 99% verið hörmulega lélelgur og þeir hafa sólundað og drekkt þeim haldbæru rökum sem Þeirra "málstaður" þrátt fyrir allt hefur.

Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með Yemenskum grátkór.

#76 feu

    Fljótmæltur

  • Notendur
  • PipPipPipPipPipPipPipPip
  • 27436 posts
  • Gender:Male
  • Location:Iceland

Posted 17 February 2011 - 14:29

QUOTE(jukn @ 17. February, 2011, 14:06) <{POST_SNAPBACK}>
Að þessu leiti já eða til jafngildis

Það er að sjálfsögðu ekki jafngilt að vera í EES og ESB, því ef svo væri, þá þyrftum við ekki að ganga í ESB.

Þetta er í raun sá punktur sem mér finnst allir skauta fram hjá. EES er ekki ESB. Og þótt ESB hafi einhverjar reglur og tilskipanir til sinna ríkja í sínu ríkjasambandi, þá gilda þær reglur og þau lög ekki sjálfkrafa um öll önnur hér í heimi, og alveg sama þótt ESB sé með sér samninga við einhver lönd eins og EES.

Ef við hinsvegar tökum upp lög sem ESB setur og samþykkjum á okkar Alþingi sem lög og reglur sem ber að fara eftir, þá horfir málið öðruvísi við. Það var hins vegar ekki gert í þessu dæmi að mér best vitandi.

Þess vegna vill ég fara með þetta fyrir dómstóla.

#77 Brodd-Helgi

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9657 posts

Posted 17 February 2011 - 14:35

það vóru í raun íslendingar sem báru ábyrgð á innstæðum í Mön. þessvegna er umræðan um ,,vondu bretana" því viðvíkjandi bara átakanleg. það mál sem menn hafa tengt sem réttlætingu eða rök í icesavemálinu er ekki relevant á nokkurn hátt fyrir málstað íslands. Alls ekki.

Hérna er undirstöðugrein saman sett af Baldri Mcqueen, manni af íslensku og skosku bergi brotnu (Finn ekki greina á síðunni hans í augnablikinu en þetta gerir sama gagn) þetta skiptir mestu máli:

,,Helstu niðurstöður:

- Bretar báru aldrei ábyrgð á innistæðum KS&F á Mön.

- Með ábyrgðarbréfi (parental guarantee), útgefnu árið 2007, viðurkenndi Kaupþing á Íslandi alla ábyrgð á innistæðum KS&F IoM."
..
http://www.tidarandinn.is/node/113510

Edited by Brodd-Helgi, 17 February 2011 - 14:36.

I grew up in Europe, where the history comes from (Eddie Izzard)




#78 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10767 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góður matur.

Posted 17 February 2011 - 14:45

Takk fyrir þetta, Brodd-Helgi. ég vissi ekki af þessu með KS&F. Maður lærir sem lifir.

Þetta með Mön er þá irrelevant.
"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#79 appel

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9847 posts

Posted 17 February 2011 - 14:55

Heimtum við ekki réttlæti þegar evrópulöndin bailuðu út sín bankakerfi? Hvernig er það ekki afskipti af "frjálsum markaði"? Það skekkir auðvitað samkeppnisstöðu lands einsog Íslands sem hefur ekki efni á að baila út sitt bankakerfi. Hvar er okkar réttlæti? Hví er þetta ekki rannsakað?
Frelsi frá stjórnvöldum ER frelsi!
Frelsi, velmegun og friður!

#80 jukn

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4810 posts
  • Gender:Male

Posted 17 February 2011 - 15:27

Það getur verið gaman að lesa gamlar þingræður

Guðmundur Árni Stefánsson:
QUOTE
Herra forseti. Í ljósi þessarar gjörbreyttu stöðu og ljósra áforma ríkisstjórnarinnar um sölu Búnaðarbanka og Landsbanka og raunar þar með einkavæðingu alls fjármálakerfisins hér á landi, þá væri fróðlegt að heyra viðhorf hæstv. ráðherrans til þess hvað hann telur að mundi gerast ef svo færi að stórar innlánsstofnanir á borð við Búnaðarbankann eða Landsbankann lentu í greiðsluerfiðleikum, nálguðust gjaldþrot, og að þeir sjóðir sem eru lagðir til stæðu ekki nægilega sterkir til þess að rétta hlut þeirra sem eiga fjármagn í þessum bönkum.


Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):
QUOTE
Ég vil ekki vera að velta því nákvæmlega fyrir okkur hvað gerist ef tiltekin bankastofnun fer á hausinn. Hins vegar er það svo að ef sjóðurinn getur ekki staðið fullkomlega undir öllum skuldbindingum, þá er gert ráð fyrir því að allir þeir sem eiga 1,7 millj. kr. inni í viðkomandi fyrirtæki, viðkomandi bankastofnun, fái það að fullu greitt. En síðan greiddist það sem umfram það er og eftir stæði hjá sjóðnum hlutfallslega ofan á þá upphæð. Þetta er reglan sem sett er. Síðan er gert er ráð fyrir því hvað sjóðurinn þurfi að vera með af peningum hverju sinni og hvað hann eigi að vera með hverju sinni til ráðstöfunar miðað við stærð kerfisins. Og vonandi lendum við ekki í allsherjar stóru gjaldþroti.


Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):
QUOTE
Ég rifja það upp, og það er hyggilegt fyrir okkur að gera það, að í hinu stóra landi, Bandaríkjunum, riðaði heil keðja til falls ekki fyrir mörgum árum og ríkissjóður Bandaríkjanna, í þessu kapítalíska landi, hljóp undir bagga. Ég held að líka sé rétt að velta þeirri pólitísku spurningu upp þegar þessu máli vindur fram, þó ekki sé ástæða til þess að gera það mjög nákvæmlega núna, hvernig við ætlum að horfa pólitískt á þessa hugsanlegu sýn þegar allt bankakerfið er meira og minna orðið einkavætt og ríkið hefur sleppt höndum af því og þar með ábyrgð, a.m.k. að nafninu til. Því verður það mjög vakandi spurning sem ég mun halda á lofti í umræðunni, a.m.k. fyrir mína parta: Hvert verður hlutverk ríkissjóðs í hinum stóru viðskiptabönkum þegar ríkissjóður hefur selt alla sína hluti þar? Verður það eingöngu fólgið í þeirri ábyrgð sem við erum að tala um hér eða verður siðferðileg og pólitísk ábyrgð enn til staðar eins og menn hafa gengið að sem vísu um langt árabil og raunar alla tíð? En það er seinni tíma mál.

Edited by jukn, 17 February 2011 - 15:31.






1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users