Helmingur í BNA vill lögleiða Marijuana
Started by McFitt, 18 Oct 2011 09:33
11 replies to this topic
#11
Posted 25 October 2011 - 21:42
"Science flies you to the moon. Religion flies you into buildings" - Victor Stenger
"That's not opinion, that's science. And science is one cold hearted bitch with a fourteen-inch strap-on" - Vince Masuka
"Too often we... enjoy the comfort of opinion without the discomfort of thought" - John F. Kennedy
"That's not opinion, that's science. And science is one cold hearted bitch with a fourteen-inch strap-on" - Vince Masuka
"Too often we... enjoy the comfort of opinion without the discomfort of thought" - John F. Kennedy
#12
Posted 02 November 2011 - 15:31
QUOTE (Roxanne @ 25. October, 2011, 21:42) <{POST_SNAPBACK}>
Svo satt!
Ég held að áður en við spyrjum "lögleiða gras/ekki lögleiða gras?"
...ættum við þá ekki að spyrja "er það hlutverk ríkisstjórnar að ráðskast með [siðferði og] persónufrelsi einstaklinga?"
Hollendingar horfa á löggjöf og hlutverk ríkisstjórnar dálítið öðrum augum en við erum vön hér (og víða annarstaðar í heiminum);
-tilgangur laganna er að smíða einhverskonar umgjörð utan um samfélagið, þumalputtareglur til að fara eftir. En það þýðir ekki að lagabókstafurinn sé mikilvægari en TILGANGUR ákveðinnar löggjafar.
Dæmi: ef að tilgangur þess að banna ákveðna vímugjafa er að draga úr skaðsemi þessara vímugjafa í samfélaginu, eða draga úr aðgengi ungs fólks að vímugjafanum... er þá ekki vert að skoða hvort þessum tilgangi sé náð með banninu?
...Það gerðu Hollendingar og sáu fljótt að ef efnið væri bannað og kolólöglegt, en þó í eftirspurn, þá einfaldlega færðist markaðurinn í hendur glæpasamtaka; á svarta markaðinn. Þessvegna ákváðu þeir að draga úr takmörkununum og leyfa notkun efnisins á þartilgerðum kaffihúsum, eða í heimahúsum. Svipuð nálgun var tekin á vændi.
Og hvað hefur komið í ljós? Ungmenni þar í landi hafa MINNA aðgengi að grasi og í raun öllum ólöglegum efnum; amk er neysla hollenskra ungmenna mælanlega minni en víðast hvar í hinum vestræna heimi. Einnig er mun minni um glæpi tengda fíkniefnum og vændi, einfaldlega vegna þess að mögulegt er að hafa einhverskonar umsjón yfir þessu, þegar þetta er ekki allt flokkað sem kolólöglegt... og vegna þess að lítill eða enginn markaður er eftir fyrir glæpastarfsemina.
þannig að... hvað er skynsamlegast í stöðunni? Kannski ekki 150% lögleiðing en minnkaðar takmarkanir virðast vera amk ein gáfuleg leið...
1 user(s) are reading this topic
0 members, 1 guests, 0 anonymous users









