QUOTE(Chrolli @ 2. November, 2011, 0:09) <{POST_SNAPBACK}>
Ég held að algengasta ástæðan fyrir því að fólk geti ekki drukkið vatn sé sykurfíkn á háu stigi. Heilinn venur sig á það að fá vökva og sætindi á sama tíma eftir mikla gosdrykkju í langan tíma, maður nær ekki lengur að svala þorstanum með vatnsglasi. Þetta er svona eins og að láta reykingamanneskju allt í einu fá nikótínslausa sígarettu.
Veistu, Chrolli, þetta er alveg rétt hjá þér. Sykurát er svakaleg fíkn.
Málið er að fá sykurinn úr ávöxtum og sykurríkum hráafurðum, ekki íbættum í kex og súkkulaði. Það er alveg gefið mál að sykurfíknin er eins skemmandi fyrir heilsuna og áfengi og kókaín. Hegðanabreytingar koma fram strax hjá ungum börnum, unglingum og fullorðnum. Líkamlegar skemmdir birtast samstundis í skemmdum tönnum og offitu, sem og á efri árum, til dæmis mætti skoða heilarýrnun vel í þessu sambandi.
Þetta er eins og venjulega bara mín skoðun og ég tek fram að ég er hvorki næringarfræðingur né læknir.
QUOTE(Búkolla @ 2. November, 2011, 19:24) <{POST_SNAPBACK}>
Já eða sígarettu án reyks 
Ég tók eftir hjá einni fjölskyldunni að eftir heila viku af hollum mat þá fengu þau sér skyndibita. Mamman gaf litla stráknum extra mikið af frönskum af því að hann hafði ekki fengið franskar í heila viku (aumingja barnið
, engar franskar) og hún spurði barnið í sífellu hvort það væri ekki ánægt að fá loksins svona drasl í matinn. Þvílík hvatning fyrir barnið að borða hollt 
Margt í þessu sem sló mig, aldrei hefði mér dottið í hug að fólki lifði svona.
Ég tók eftir hjá einni fjölskyldunni að eftir heila viku af hollum mat þá fengu þau sér skyndibita. Mamman gaf litla stráknum extra mikið af frönskum af því að hann hafði ekki fengið franskar í heila viku (aumingja barnið
Margt í þessu sem sló mig, aldrei hefði mér dottið í hug að fólki lifði svona.
Það gera börnin sem fyrir þeim er haft. Og þeirra börn líka.








