Jump to content


Vigdís þingféttaritari


8 replies to this topic

#1 Herkúles

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12824 posts

Posted 24 January 2012 - 21:20

Á ruv í dag, líklega kl 16, kemur fyrsta frétt frá Alþingi:
Gunnar frammari spyr Össur hvað líði breytingum í stjórn samfó.
Össur svarar og telur frammara óhemju lélega að hafa ekki náð meira fylgi gegn annarri eins ríkisstjórn!

Nú er spurt: er þetta boðlegt?
Er virkilega ekki annað fréttaefni frá Alþingi?

Er þetta það merkilegasta sem gerðist á Alþingi í dag?

Edited by Herkúles, 24 January 2012 - 21:21.


#2 Kjosandi

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7520 posts

Posted 24 January 2012 - 21:25

QUOTE(Herkúles @ 24. January, 2012, 21:20) <{POST_SNAPBACK}>
Á ruv í dag, líklega kl 16, kemur fyrsta frétt frá Alþingi:
Gunnar frammari spyr Össur hvað líði breytingum í stjórn samfó.
Össur svarar og telur frammara óhemju lélega að hafa ekki náð meira fylgi gegn annarri eins ríkisstjórn!

Nú er spurt: er þetta boðlegt?
Er virkilega ekki annað fréttaefni frá Alþingi?

Er þetta það merkilegasta sem gerðist á Alþingi í dag?


Klárlega það gáfulegasta.
Kveðja frá hinum týpíska íslenska kjósenda!

#3 Herkúles

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12824 posts

Posted 24 January 2012 - 21:49

hvernig veistu það?

#4 Barði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3544 posts

Posted 24 January 2012 - 22:43

Nei, Herkú, það er EKKI boðlegt, að Alþingi sé vettvangur ruglumræðna um EKKI NEITT. - Alþingi mun ekki, að mínu mati, ná sér upp eftir síðustu atburði og aðgerðir og umræður um Landsdómsmálið og afleidd mál - svo sem kröfu um afsögn forseta Alþingis. Man nú ekki eftir slíkri kröfu á seinni áratugum - reyndar aldrei í mínu lífi. - Þetta er meira og minn búið hér, þetta þjóffélag (stafsetningin er raunhæf!). Þjóðfélag sem vill eiki einu sinni hafa í gildi þegnskylduvinnu allra ungra manna í svo sem 8 - 10 mánuði af ævi sinni, þegar allar aðrar þjóðir leggja þá kvöð á að hafa herskyldu. - Hvílík aumingjaþjóð við höfum verið frá upphafi! - Og enn versnar það! - Eða getur það kannski ekki versnað?

#5 Herkúles

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12824 posts

Posted 25 January 2012 - 09:57

Við höfum ákveðna mynd af því sem gerist á alþingi
Þingfréttaritari fylgist með og velur hvað er fréttnæmt, færir okkur þá mynd
Kl 16 á í gær var þetta það merkilegasta að hennar mati

Hvaða kröfur á að gera til þingfréttaritara?
Þeir eru vel að merkja á launum hjá þér og mér

Getur verið að þingfréttaritarar séu bara svona lélegir og æsi þingmenn upp í þessari vitleysu
með því að birta stöðugt fréttir af einhverju hanaati?

Hvað gerðist ef víðsýnn fréttaritari mætti á staðinn og hreinlega hunsaði bullið?

Edited by Herkúles, 25 January 2012 - 09:58.


#6 Herkúles

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12824 posts

Posted 14 February 2012 - 19:17

Jóhanna Vigdís heldur áfram og auglýsir nú rækileg ÞEGIÐU! orð Steingríms í gær.
Þykir einhverjum öðrum en Jóhönnu Vigdísi þetta merkilegt?

#7 Barði

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3544 posts

Posted 14 February 2012 - 22:31


Það er nátúrlega frétt, Herkú, að næstæðsti ráðherra landsins skuli strunsa úr ræðustóli Alþingis með þau orð á vörunum að einn samþingsþingmaður hans eigi að þegja! - Hefð alls staðar orðið forsíðufrétt, bæði austan hafs sem vestan.

Held a´Jóhanna Vigdís sé einn fremsti fréttamður ljósvakamiðlanna. Eftir að hún kom fram í Silfrinu sl.ssunndag tel ég að henni séu allir vegir færir beint í stjórnmálin. - Eða forsetastól. Hefur allt með sér, hæfni í ræðu sem ritmáli - og þá er ekki framganga eða útlitið sem spillir.

#8 Herkúles

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12824 posts

Posted 15 February 2012 - 10:13

þetta er nefnilega engin frétt!
Það er heila málið
,,þingfréttamenn" (hér sem dæmi Jóhanna Vigdís)
eru EKKI að flytja okkur fréttir af alþingi!!

#9 Árvakur Lýðsson

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2442 posts
  • Gender:Male
  • Location:Reykjavík

Posted 15 February 2012 - 23:35

Þetta er hálfdapurt.
HVAÐA LÆTI ERU ÞETTA ?





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users