Kvikmyndin flugdrekahlauparinn gefur í skyn að talibanar hafi viðhaldið þeim forna sið valdamikilla afgana að halda unga drengi sem kynlífsþræla og dansara. Ég er enginn aðdáandi talibana en þeir verða þó að fá heiðurinn af því að þeir nær útrýmdu þessum ljóta sið meðan þeir voru við völd. Eftir innrás Nató hefur þessi siður aftur aukist meðal háttsettra embættismanna og höfðingja.
Sjá
http://articles.cnn.com/2009-10-26/world/c...nce?_s=PM:WORLD
og
http://digitaljournal.com/article/246409/B..._Sexual_Slavery
Flugdrekahlauparinn er sögufölsun.
Started by kadlinn, 28 Jan 2012 10:50
4 replies to this topic
#1
Posted 28 January 2012 - 10:50
- Sapere aude -
#2
Posted 28 January 2012 - 17:58
Sjónvarp og netið eru uppfull af heimildarmyndum sem innihald amikið bull. Ef þú vilt staðreyndir verðuru að lesa mikið af sögubókum þar sem sagnfræðingar ritskoða hvern annan.
Skilekkineitt: "Sjónhverfingar byggjast á því að dreifa athyglinni frá aðalatriðinu."
Ingimundur Kjarval: "Þegar þú setur lyftu í hús, sleppir þú ekki eftstu hæðina vegna þess að svo fáir eiga heima þar."
Apple: "...hvað sem útveggjunum líður en þeir eru hannaðir til að taka á sig lárétt álag en ekki lóðrétt."
Plasma Rarity: "Ég myndi skilgreina kjána sem einhvern sem skortir þekkingu á eitthvað málefni, en getur jafnvel verið greindur. Það er munur á kjána og vitleysing og hann er sá að vitleysingur getur haft þekkingu en skortir greind."

#3
Posted 05 February 2012 - 09:39
Þessi kvikmynd er byggð á frægri SKÁLDsögu. Sagan gerist ekki í nútímanum.
#4
Posted 05 February 2012 - 09:46
QUOTE(Ari góði @ 5. February, 2012, 9:39) <{POST_SNAPBACK}>
Þessi kvikmynd er byggð á frægri SKÁLDsögu. Sagan gerist ekki í nútímanum.
Fyrir utan að nauðgunin er framkvæmd af ungum drengjum sem lögðu lágstéttardrenginn í einelti en ekki af Talibönum.. nema ég hafi verið að horfa á allt aðra mynd!
#5
Posted 06 February 2012 - 19:40
QUOTE(Ari góði @ 5. February, 2012, 9:39) <{POST_SNAPBACK}>
Þessi kvikmynd er byggð á frægri SKÁLDsögu. Sagan gerist ekki í nútímanum.
Mikið rétt, en þó ekki fyrir svo löngu, kannski 10 til 12 árum, þ.e.a.s. síðari hlutinn.
QUOTE(feu @ 5. February, 2012, 9:46) <{POST_SNAPBACK}>
Fyrir utan að nauðgunin er framkvæmd af ungum drengjum sem lögðu lágstéttardrenginn í einelti en ekki af Talibönum.. nema ég hafi verið að horfa á allt aðra mynd!
Jú, í seinni hlutanum fer hann til baka og bjargar syni vinar síns frá örlögum svokallaðra dansandi drengja, Bacha bazi sem þýðir í rauna að leika sér með börn eða drengi og er ekkert annað en gróft barnaníð. Gerandinn í myndinni er háttsettur embættismaður innan Talibanastjórnarinnar sem hafði áður níðst á föður drengsins. Áhorfandinn fær það á tilfinninguna að þessi siður hafi tíðkast meðal talibana, en svo var ekki. Þvert á móti höfðu þeir, í samræmi við sinn píetisma á kynferðissviðinu, nær útrýmt þessum sið á valdatíma sínum en hann hefur aftur breyðst út meðal valdamanna eftir að talibanar voru hraktir frá völdum. Þessi siður er ævaforn á þessum slóðum.
Annar afganskur siður nefnist bacha poshi en þá eru litlar stúlkur klæddar upp sem drengir.
Edited by kadlinn, 06 February 2012 - 19:42.
- Sapere aude -
1 user(s) are reading this topic
0 members, 1 guests, 0 anonymous users