Jump to content


6. vonbiðillinn kemur fram:


7 replies to this topic

#1 Herkúles

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12763 posts

Posted 31 January 2012 - 21:07



Vill lyfta grasrót kirkjunnar


Fyrst birt: 31.01.2012 17:55 GMT, Síðast uppfært: 31.01.2012 18:47 GMTUm allt land er unnið af krafti í söfnuðum kirkjunnar. Þó að stofnunin Þjóðkirkjan sé kannski í kreppu, þá er fólkið sem vinnur í grasrótinni það ekki segir Þórhallur Heimisson, sem býður sig fram til biskups. Hann vill lyfta því sem hann kallar grasrótarkirkju.


Þórhallur hefur verið prestur í Hafnarfirði frá því 1996. Hann vígðist til prestsþjónustu í Langholtskirkju 1989, starfaði í sænsku kirkjunni um skeið og hefur haldið fjölda námskeiða af ýmsu tagi, sérstaklega hjóna- og sambúðarnámskeið. Í því námskeiðahaldi segist Þórhallur hafa kynnst fjölda fólks og orðið vitni að því öfluga starfi sem unnið sé í söfnuðum út um allt. Hann lítur ekki svo á að kirkjan sé í kreppu, þó svo að stofnunin sjálf sé það kannski að einverju leyti. Það öflugafólk sem vinni kirkju sinni og söfnuði vel sé ekki í kreppu. Því starfi vill hann lyfta og að biskup Íslands geti hljómað með þeirri sterku heild.

Til þess verði biskup að vera andlegur leiðtogi í stað þess að vera hlaðinn verkefnum framkvæmdastjóra. Til þeirra verka telur Þórhallur að mæti nýta betur vígslubiskupa og prófasta út um landið. Þórhallur er sá sjötti sem býður sig fram í biskupskjöri í mars. Þegar hafa þau Agnes M. Sigurðardóttir, Kristján Valur Ingólfsson, Sigríður Guðmarsdóttir, Þórir Jökull Þorsteinsson og Sigurður Árni Þórðarson gefið kost á sér.


Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka


#2 human

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 11699 posts
  • Gender:Female
  • Location:Hafnarfjörður
  • Interests:Still just Human.....

Posted 01 February 2012 - 02:24

Mér finnst ömurlegt að hann bjóði sig fram.
Vinarkveðjur Human...

#3 Hönd_Jahveh

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 193 posts
  • Gender:Male

Posted 05 February 2012 - 22:21

Þjóðkirkjan er satanísk í mínum huga.
En vonandi nær nýr biskup að breita því. rolleyes.gif


#4 spectromacht

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 416 posts
  • Gender:Male

Posted 05 February 2012 - 22:25

Er kominn síða á Facebook fyrir Þórhalls biskupsefnið sem maður getur líkað við?

#5 human

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 11699 posts
  • Gender:Female
  • Location:Hafnarfjörður
  • Interests:Still just Human.....

Posted 07 February 2012 - 03:22

QUOTE(spectromacht @ 5. February, 2012, 22:25) <{POST_SNAPBACK}>
Er kominn síða á Facebook fyrir Þórhalls biskupsefnið sem maður getur líkað við?

Líklega ... en ég fer með allar mínar bestu bænir til þess sem öllu ræður að hann fái lítið læk ... wink.gif
Vinarkveðjur Human...

#6 spectromacht

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 416 posts
  • Gender:Male

Posted 07 February 2012 - 09:09

QUOTE (human @ 7. February, 2012, 3:22) <{POST_SNAPBACK}>
Líklega ... en ég fer með allar mínar bestu bænir til þess sem öllu ræður að hann fái lítið læk ... wink.gif


Fyrir mér er það afar slæmt að fá mikið læk, en afar gott að fá ekki neitt. Þetta er ekki bara fílósófísk afstaða, helldur líka heilagur sannleikur.

#7 Þorrinn

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 961 posts
  • Gender:Not Telling
  • Interests:geyma þetta e-s staðar http://i.imgur.com/hN1IYLs.jpg

Posted 08 February 2012 - 02:03

Ég vona að mesti öfgatrúarnöttarinn fái embættið....

#8 jukn

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4813 posts
  • Gender:Male

Posted 08 February 2012 - 08:15

QUOTE (human @ 1. February, 2012, 2:24) <{POST_SNAPBACK}>
Mér finnst ömurlegt að hann bjóði sig fram.


Það er frábært. Hann er sennileagst sá sem einna helst gæti tekið við af Karli í að fæla burtu kúnnana.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users