Jump to content


Facebook


41 replies to this topic

#1 jóhannes björn

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2217 posts

Posted 02 February 2012 - 16:15

Facebook kemur brátt á hlutabréfamarkaðinn og margir ætla sér að græða stórt á þessu fyrirtæki.

Ég held hins vegar að margir eigi eftir að tapa stórt þegar hlutabréfin seljast á uppsprengdu verði.

Þótt einn milljarður einstaklinga verði á Facebook 2012 þá er straumurinn til þeirra að hægjast og ekki ólíklegt að sumir séu orðnir leiðir á þessu endalausa babli um ekki neitt. Við sjáum hvað gerist.

Tekjur af auglýsingum eru ekki að aukast að neinu marki og líka hætt við að fyrirtæki sem hugsanlega selur upplýsingar um viðskiptavini sína fari á einhverjum punkti yfir strikið og meiri háttar “bad PR” fái marga til þess að yfirgefa svæðið.

Kannski hef ég rangt fyrir mér og við eigu efir að sjá nýtt Google-æði. En ég held ekki.


#2 Spinni

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4323 posts

Posted 02 February 2012 - 16:26


Sæll.

Já ég hef verið þarna og er hættur. Þetta er endalaust kellingavæl og ekkert af viti.


kv


Spinni.

#3 Kjosandi

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7457 posts

Posted 02 February 2012 - 17:51

Ég er ekki alveg að átta mig á hvaða tekjur Facebook er að hafa. Einhverjar auglýsingatekjur, en engar áskriftatekjur. Ég held að ef þeir færi í áskrift þá myndu allir hætta hvort eð er.

Þetta snýst um skyndigróða. Eru einhverjar líkur á að í upphafi séu allir voða jákvæðir? Þ.e. að kaupa strax og selja svo viku eða mánuði seinna? Ég hef enga trú á þessu til lengdar. Ég segi eins og Buffett, ef þú skilur ekki reksturinn þá áttu að láta hann vera.

Myndi Buffett kaupa hlut? Nei.
Kveðja frá hinum týpíska íslenska kjósenda!

#4 jóhannes björn

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2217 posts

Posted 02 February 2012 - 18:38




Væri gaman að sjá íslenska könnun á þessari spurningu.

http://blogs.wsj.com/deals/2012/02/01/mark...acebook-filing/

Edited by jóhannes björn, 02 February 2012 - 18:43.


#5 Agent Smith

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2210 posts
  • Location:Norðan miðbaugs

Posted 02 February 2012 - 18:46

QUOTE (jóhannes björn @ 2. February, 2012, 18:38) <{POST_SNAPBACK}>



Væri gaman að sjá íslenska könnun á þessari spurningu.

http://blogs.wsj.com/deals/2012/02/01/mark...acebook-filing/

Það væri gaman að sá hvort facebook mæli sálf tímann sem notendur eiða við að skoða ummæli vina sinna.
I'd like to share a revelation during my time here. It came to me when I tried to classify your species. I realized that you're not actually mammals. Every mammal on this planet instinctively develops a natural equilibrium with the surrounding environment but you humans do not. You move to an area and you multiply and multiply until every natural resource is consumed. The only way you can survive is to spread to another area. There is another organism on this planet that follows the same pattern. Do you know what it is? A virus


“Progress is impossible without change, and those who cannot change their minds cannot change anything.”

- George Bernard Shaw

#6 Gore Vidal

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 1248 posts

Posted 02 February 2012 - 18:55

Ég er eiginlega alveg hættur að pósta, en hangi þarna samt. Hugsa að það eigi við um flesta, að póstar séu að minnka.

Þetta TimeLine dót var alveg úti í hött, allt í lagi tól svosem en alveg gjörsamlega irrelevant við styrkleika facebook.

þetta TimeLine sorp átti að vera eitthvað revolution en það hefur ekki nokkur maður áhuga á þessu.

En ég held að facebook geti valtað yfir hvern sem er, gætu til dæmis valtað yfir ebay með því að opna auction eiginleika, valtað yfir paypal með því að opna facepay möguleika, valtað yfir google með því að setja upp leitarvél osfv osfv..

þeir halda á The One Ring to Rule Them All


#7 jóhannes björn

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2217 posts

Posted 02 February 2012 - 19:01

QUOTE(Gore Vidal @ 2. February, 2012, 18:55) <{POST_SNAPBACK}>
Ég er eiginlega alveg hættur að pósta, en hangi þarna samt. Hugsa að það eigi við um flesta, að póstar séu að minnka.

Þetta TimeLine dót var alveg úti í hött, allt í lagi tól svosem en alveg gjörsamlega irrelevant við styrkleika facebook.

þetta TimeLine sorp átti að vera eitthvað revolution en það hefur ekki nokkur maður áhuga á þessu.

En ég held að facebook geti valtað yfir hvern sem er, gætu til dæmis valtað yfir ebay með því að opna auction eiginleika, valtað yfir paypal með því að opna facepay möguleika, valtað yfir google með því að setja upp leitarvél osfv osfv..
þeir halda á The One Ring to Rule Them All



Facebook hefur ekkert nema áskrifendur til þess að takast á við þessi fyrirtæki. Enga reynslu eða þekkingu á þeirra sviðum. Þau haggast aldrei vegna Facebook.

#8 Timoshenko

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 12424 posts
  • Gender:Male

Posted 02 February 2012 - 19:03

Þetta á eftir að vera meiriháttar bóla held ég.

#9 siff

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2991 posts

Posted 02 February 2012 - 22:15

QUOTE(jóhannes björn @ 2. February, 2012, 16:15) <{POST_SNAPBACK}>
Facebook kemur brátt á hlutabréfamarkaðinn og margir ætla sér að græða stórt á þessu fyrirtæki.

Ég held hins vegar að margir eigi eftir að tapa stórt þegar hlutabréfin seljast á uppsprengdu verði.

Þótt einn milljarður einstaklinga verði á Facebook 2012 þá er straumurinn til þeirra að hægjast og ekki ólíklegt að sumir séu orðnir leiðir á þessu endalausa babli um ekki neitt. Við sjáum hvað gerist.

Tekjur af auglýsingum eru ekki að aukast að neinu marki og líka hætt við að fyrirtæki sem hugsanlega selur upplýsingar um viðskiptavini sína fari á einhverjum punkti yfir strikið og meiri háttar “bad PR” fái marga til þess að yfirgefa svæðið.

Kannski hef ég rangt fyrir mér og við eigu efir að sjá nýtt Google-æði. En ég held ekki.


Í okkar nýja heimi eru hlutirnir ekki mjög langlífir. Tæknibyltingin hreifir hlutina ansi hratt til og frá. MySpace var einusinni vinsælasti social vefurinn, hvar er hann í dag, hvergi. Ástæðan er að það kom 17 ára gutti með betri lausn, næst verður guttinn 15 ára og svo 12. Annars má vera að hægt sé að græða á þessu til skamms tíma en ég mundi aldrei treysta á þetta til lengri tíma litið.
-------------------
Spilwerk Guitar Lessons

#10 Kjosandi

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7457 posts

Posted 02 February 2012 - 22:37

Svo má ekki gleyma fréttum sem þessum eða þessum.

Við fyrri fréttinni eru viðbrögðin, neeeeeii hvað hann var óheppinn /vitlaus. Við seinni fréttinni eru viðbrögðin, vá hvað hann var heppinn/snjall að taka dílnum.

Það eru einmitt svona fréttir sem afvegaleiðir fólk og það fer að trúa að facebook sé komið til að vera. Þetta er svipað og þegar bílstjóri Donalds Trumps segir honum hvað hann eigi að kaupa.

Sumt er bóla, ég held að facebook sé lífseig bóla. Það má vel vera að facebook lifi eitthvað áfram. En sókn fyrirtækisins verður ekki eins hröð. Amazon er annað dæmi um bólu sem breyttist í alvöru fyrirtæki. Rekstur Amazon er einfaldur, hann gengur út á að selja augljósa vörur. Varan hjá facebook er ekki eins augljós.


Kveðja frá hinum týpíska íslenska kjósenda!





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users