Jump to content


Lífeyrissjóðir.



37 replies to this topic

#1 Spinni

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4323 posts

Posted 03 February 2012 - 15:05


Sælir.

Nú er verið að birta hroðalegt tap líeyrissjóðanna en hroðalegt er bara fallegt orð miðað við hvernig fíflin fóru með þá. Enginn hefur verið látinn taka pokann sinn so far en ekki er stætt á öðru. Það er orðið nokkuð ljóst að smákrimmar eins og mótorhjólagengin er bara englar miðað við þetta klan. Svo er nú það.


kv


Spinni.

#2 jóhannes björn

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2217 posts

Posted 03 February 2012 - 15:28

Lífeyrissjóðirnir eru hneyksli. Smákóngar komast upp með að braska með sparifé almennings án teljandi eftirlits eða regluverks. Fólkið sem á peningana ræður svo til engu. Enda er "ávöxtun" peninganna eftir því.

#3 CrazyMoonLover

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 585 posts

Posted 03 February 2012 - 15:47

Engar áhyggjur, það verður enginn látinn taka pokann sinn og það mun ekkert breytast. Það verður fjargviðrast yfir þessu í 3-4 daga (ef svo lengi—það er jú að koma helgi, ekki að ástæðulausu sem sagt er frá þessu föstudegi) og svo verður aldrei minnst á þetta aftur.

#4 Kjosandi

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7460 posts

Posted 03 February 2012 - 16:12

Þetta er nú heldur betur ,,góð'' ávöxtun.

,,Afi hefur unnið sömu vinnuna alla sína starfsævi og á alla launaseðla frá því hann var 11 ára þegar hann byrjaði að vinna. Hann hefur samtals borgað í lífeyrissjóð rétt tæpa 31 milljón króna. Ég er hagfræðingur og búinn að núvirða til að mynda það sem borgað var fyrir gjaldfellingar og þess háttar. Þetta er peningur sem var tekinn af hans launum og „geymdur“ fyrir hann því íslenska ríkið treystir honum ekki til þess að gera það sjálfur. 31 milljón plús allir vextirnir sem lífeyrissjóðurinn hefur skaffað honum hlýtur að koma sér vel. En sjáum til!

Núna skoðum við þetta skattfrjálst: Hann fær útborgað 80.000 kr. á mánuði!!! Til þess að fá allt sem hann hefur greitt til baka þarf hann að lifa þangað til hann verður 103 ára. Þannig að hann spurði lífeyrissjóðin hve lengi er reiknað með að hann lifi , eða hvernig þetta sé reiknað. Fimmtán ár er svarið! Þannig að hann er að fá kr. 14.400.000.- miðað við þeirra útreikning. Hann spurði þá hvar restin væri og svarið er að þetta sé það sem hann á. Það koma upp- og niðursveiflur.''


Ég er á því að við eigum að fá að velja hvernig við viljum spara. Það er í lagi að hafa skyldusparnað með einhverju móti, en valið á að vera okkar.
Kveðja frá hinum týpíska íslenska kjósenda!

#5 falcon1

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 11410 posts

Posted 03 February 2012 - 16:23

Lífeyrissjóðskerfið er hreint og klárt rán!

Þetta kerfi hlýtur einnig að stangast á við eignarréttarákvæði stjórnarskrá Íslands þar sem það verður ekki séð að almenningur sem borgar í þessa lífeyrissjóði fá eign sína til baka nema að litlum hluta.
Kveðja,
Falcon1

icelandphotoblog.com

Íslenska þjóð - RÍS UPP!

Fyrrum voru fálkar fluttir lifandi út í stórum stíl, því erlendir þjóðhöfðingjar sóttust eftir að eignast íslenska fálka. Íslenski fálkinn er stærsta fálkategund sem til er og er eftirlæti fuglaskoðara. Af Íslandsvef

#6 appel

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9852 posts

Posted 03 February 2012 - 16:56

Ég hvet alla að sjá um sinn eigin lífeyrissparnað sjálfir. Ég er fyrir löngu búinn að átta mig á þessu lífeyrissjóðasvindli og legg sjálfur fyrir pening. Ég treysti ekki þessum glæpamönnum.

Sigurjón Þ. Árnason landsbankamaður var t.d. að fimmfalda lífeyrissparnað sinn með góðum erlendum fjárfestingum, á sama tíma og íslensku lífeyrissjóðirnir glutra niður lífeyrissparnaði landsmanna.

Frelsi frá stjórnvöldum ER frelsi!
Frelsi, velmegun og friður!

#7 Chrolli

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4783 posts
  • Gender:Male

Posted 03 February 2012 - 17:13

Mín skoðun er sú að það eigi að vera einn stór ríkislífeyrissjóður sem tryggir lágmarkslífeyri. Einkasjóðir fái svo að sjá um viðbótalífeyri.

#8 Kjosandi

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 7460 posts

Posted 03 February 2012 - 17:22

QUOTE(appel @ 3. February, 2012, 16:56) <{POST_SNAPBACK}>
Ég hvet alla að sjá um sinn eigin lífeyrissparnað sjálfir. Ég er fyrir löngu búinn að átta mig á þessu lífeyrissjóðasvindli og legg sjálfur fyrir pening. Ég treysti ekki þessum glæpamönnum.

Sigurjón Þ. Árnason landsbankamaður var t.d. að fimmfalda lífeyrissparnað sinn með góðum erlendum fjárfestingum, á sama tíma og íslensku lífeyrissjóðirnir glutra niður lífeyrissparnaði landsmanna.


Má maður stofna sinn grunnlífeyrissjóð? Er maður ekki neyddur til að borga í einhvern af þessum þrjátíu sjóðum?
Kveðja frá hinum týpíska íslenska kjósenda!

#9 appel

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9852 posts

Posted 03 February 2012 - 18:38

QUOTE(Kjosandi @ 3. February, 2012, 17:22) <{POST_SNAPBACK}>
Má maður stofna sinn grunnlífeyrissjóð? Er maður ekki neyddur til að borga í einhvern af þessum þrjátíu sjóðum?

Ég veit ekki hvernig hann Sigurjón fór að þessu, en hann fjárfesti aðallega erlendis, sem er eitthvað sem er "no no" skv. íslenskum lögum um lífeyrissjóði, enda eru lífeyrrisjóðir hér á Íslandi notaðir sem skattpeningar, þ.e. stjórnvöld skipa þér að setja þessa peninga í þessa sjóði, og skipa svo þessum sjóðum að kaupa skuldabréf ríkissjóðs og annað sem skattkerfið ætti að standa undir.
Frelsi frá stjórnvöldum ER frelsi!
Frelsi, velmegun og friður!

#10 Spinni

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4323 posts

Posted 03 February 2012 - 23:04


Sælir.

Það er sama hvar borið er niður í Kjánalandi það er allt á sömu bókina, tómt klúður og heimska allstaðar. Það er búið að stela öllu af okkur, lífeyrissjóðum sem öðrum eignum, svo koma þeir fram í fjölmiðlum og segjast ætla að læra af þessu. Þetta eru vitskertir fábjánar og við engu betri að leifa þeim að féfletta okkur. Er Noregur ekki bara í nánd, hvað annað er í stöðunni???

kv


Spinni.





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users