Jump to content


Lög 151 í Hæstarétti



49 replies to this topic

#1 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10769 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góður matur.

Posted 06 February 2012 - 14:01

Jæja.
Nú er í aðalmeðferð fyrir Hæstarétti ansi athyglisvert mál. Mál hjóna um kröfu og skuldajöfnun en vegna eðli málsins þarf Hæstiréttur að taka afstöðu til þess hvort að lög 151 hans Árna Páls standist.
QUOTE(mbl.is)
Sjö dómarar í skuldajöfnunarmáli
Aðalmeðferð í máli hjóna gegn Frjálsa fjárfestingabankanum fór fram í Hæstarétti í morgun. Athygli vekur að sjö hæstaréttardómarar skipa réttinn en sá háttur er aðeins hafður á í sérlega mikilvægum málum. Málið snýr að skuldajöfnun kröfu upp á eina milljón króna.

Málið er í raun angi annars sem hjónin höfðuðu á hendur bankanum en þá gerðu þau þá kröfu að lán þeirra ættu að bera svonefnda LIBOR vexti. Kröfunni var hafnað en Frjálsi fjárfestingabankanum engu að síður gert að greiða hjónunum eina milljón króna í málskostnað. Ágreiningurinn nú snýst um hvort bankinn eigi gjaldfallna kröfu á hendur hjónunum vegna láns þeirra og geti greitt málskostnaðinn með skuldajöfnun.

Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að bankinn, eða slitastjórn hans öllu heldur, ætti kröfu á hendur hjónunum og staðfesti skuldajöfnunina. Lögmaður hjónanna hélt því hins vegar fram, að ekki væri hægt að krefjast greiðslu af þeim þar sem fyrirvaralaus móttaka greiðslu fyrir hverri afborgun hefði verið fullnaðargreiðsla.

Í dómi héraðsdóms segir: „Reistu aðilarnir útreikning afborgana á forsendu sem reyndist röng frá upphafi. Verður því talið að [Frjálsi fjárfestingabankinn] sé ekki bundinn við umkrafðar afborganir og geti krafið [hjónin] um frekari greiðslur. Þar sem kröfur beggja aðila eru fallnar í gjalddaga, eru samkynja og virðast að öðru leyti hæfar til að mætast þykja skilyrði skuldajafnaðar vera fyrir hendi í málinu.“

Þetta verður athyglisvert.

Edited by fleebah, 06 February 2012 - 14:01.

"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#2 Afturbatinn

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2294 posts
  • Gender:Male

Posted 07 February 2012 - 20:24

QUOTE(fleebah @ 6. February, 2012, 14:01) <{POST_SNAPBACK}>
Jæja.
Nú er í aðalmeðferð fyrir Hæstarétti ansi athyglisvert mál. Mál hjóna um kröfu og skuldajöfnun en vegna eðli málsins þarf Hæstiréttur að taka afstöðu til þess hvort að lög 151 hans Árna Páls standist.

Þetta verður athyglisvert.



Þess vegna er nauðsynlegt að fara í bankann sinn og fá áritun á skuldabréf fyrir hverri afborgun.
Fróðleg grein hjá Marinó G. Njáls um mann sem fór fram á þetta.....
Dr. Frank-N-Furter: It's something you'll get used to. A mental mind fuck can be nice!

Oh yes, treat me like a mushroom; keep me in the dark and feed me on shit..

"If they don't know what we are doing, how can they tell what we do wrong!"

"The lord tells me he can get me out of this mess, but he's preatty sure, yer fucked. "

QUOTE
Málið er að það er hvorki skeggöld né skálmöld - nema þar sem BNA fer með hernaði. Ekkert stríð, hvort sem það heitir stríð gegn hryðjuverkum eða eitthvað annað, getur réttlæt að brotið sé á mannréttindum fólks. Mannréttindi eru ekki bara fyrir saklaust fólk á friðartímum. Meira að segja verstu skúrkar í ljótustu stríðum hafa mannréttindi. Það má ekki vera neitt "trade-off" á milli mannréttinda og stríðsrekstrar.
Spinoza, málverji 5. nóvember 2005

#3 zakedogg

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 274 posts

Posted 15 February 2012 - 15:57


http://mbl.is/frettir/innlent/2012/02/15/m...rlendu_vextina/

Edited by zakedogg, 15 February 2012 - 15:57.


#4 Gore Vidal

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 1248 posts

Posted 15 February 2012 - 15:58

QUOTE (zakedogg @ 15. February, 2012, 15:57) <{POST_SNAPBACK}>


Glæsilegt, hvaða pöddur skiluðu séráliti?

#5 Skrolli

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4659 posts
  • Gender:Male
  • Interests:Innivist og lestur vondra bóka.

Posted 15 February 2012 - 16:02

QUOTE(zakedogg @ 15. February, 2012, 15:57) <{POST_SNAPBACK}>


Kominn tími til að þessar fjármögnunarfyrirtæki (les glæpabúllur) fái að borga!
I never forget a face, but in your case I'll be glad to make an exception.
Groucho Marx

#6 appel

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9853 posts

Posted 15 February 2012 - 17:09

Árni Páll, stjórnvöld og fjármálafyrirtækin samtaka í því að brjóta stjórnarskrárvarinn réttindi fólks.

Það er ekki mikil virðing borin fyrir mannréttindum á þessu fjandans landi.

Ég vil Árna Pál í fangelsi og forsvarsmenn allra fjármálafyrirtækja.
Frelsi frá stjórnvöldum ER frelsi!
Frelsi, velmegun og friður!

#7 Bronstein

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2401 posts

Posted 15 February 2012 - 17:13

Þetta eru mikil tíðindin - EN flestir sem voru með þessi lán eru búnir að semja uppá nýtt og búið að breyta þessum lánum í íslensk, ýmist verðtryggð eða óverðtryggð lán. Hvað gera bændur í því ?

#8 xcode

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 3108 posts

Posted 15 February 2012 - 17:49

QUOTE(Bronstein @ 15. February, 2012, 17:13) <{POST_SNAPBACK}>
Þetta eru mikil tíðindin - EN flestir sem voru með þessi lán eru búnir að semja uppá nýtt og búið að breyta þessum lánum í íslensk, ýmist verðtryggð eða óverðtryggð lán. Hvað gera bændur í því ?


Kaupa hlutabréf í Skýrr.


#9 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10769 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góður matur.

Posted 15 February 2012 - 21:00

QUOTE(fleebah @ 6. February, 2012, 14:01) <{POST_SNAPBACK}>
Þetta verður athyglisvert.

Jæja, þetta var athyglisvert smile.gif
"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#10 zakedogg

    Talandi

  • Notendur
  • Pip
  • 274 posts

Posted 15 February 2012 - 21:25

QUOTE(xcode @ 15. February, 2012, 17:49) <{POST_SNAPBACK}>
Kaupa hlutabréf í Skýrr.


ertu að meina framtakssjóðnum?





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users