Jump to content


Lög 151 í Hæstarétti



49 replies to this topic

#31 Brodd-Helgi

    Orðugur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 9657 posts

Posted 28 February 2012 - 17:41

QUOTE(Skaz @ 28. February, 2012, 6:55) <{POST_SNAPBACK}>
Þannig að þeir sem að voru hvað virkastir í greiðsluverkfalli eiga a.m.k. einn Hæstaréttadóm til viðbótar þangað til að niðurstaða fæst um það dæmi. Hvort að þetta eigi að teljast sem vanskil eða mótmæli eða álíka, man ekki orðalagið.

Já, en voru svo margir sem fóru í greiðsluverkfall? Er til statestík um það?

Eg veit um engann sem fór í greiðsluverkfall.

I grew up in Europe, where the history comes from (Eddie Izzard)




#32 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10767 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góður matur.

Posted 28 February 2012 - 21:02

QUOTE(Skaz @ 28. February, 2012, 6:55) <{POST_SNAPBACK}>
Hvort að þetta eigi að teljast sem vanskil eða mótmæli eða álíka, man ekki orðalagið.

Held að greiðslulverkfall sé ekki til sem konsept í lögum. Annað hvort eru greiðslur í skilum eða ekki. Skil / Vanskil.

Þannig að þeir aðilar sem fóru í greiðsluverkfall til að mótmæla eða eitthvað, eru ekki í neinni sér aðstöðu núna. Bara plain vanilla vanskil.
"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#33 Golffíkill

    Málfær

  • Notendur
  • PipPip
  • 559 posts

Posted 28 February 2012 - 23:55

QUOTE(zakedogg @ 28. February, 2012, 7:31) <{POST_SNAPBACK}>
Þetta er ekki bull. Farðu betur yfir þetta. Fáðu að sjá excel skjalið á bakvið þína útreikninga. Þetta er hluti af þeirri upphæð sem fer inná biðreikning sem síðan leggst við nýjan endurreiknaðan-seðlabankavaxtahöftuðstól.


Eins og ég sagði, ég reiknaði þetta út sjálfur 4 mánuðum áður en endurreikningur Avant lá fyrir og mínar niðurstöður stemmdu við niðurstöður Avant þegar þær loks komu. Ég beitti annarri nálgun í mínum útreikningi en þeir, en niðurstaðan var sú sama. Það er rétt að taka fram í þessu samhengi að ég greiddi að fullu hvern einasta greiðsluseðil þegar hann datt inn um lúguna og frysti hvorki lánið né neytti neinna annarra "úrræða" sem til boða stóðu. Það kæmi mér ekki á óvart að heyra að þeir hafi áskilið sér dráttarvexti og/eða vanskilagjöld frá þeim sem frystu lánin eða lengdu í þeim enda vantaði þá upp á að afborganir væru greiddar að fullu, ég get aðeins fullyrt að ekkert slíkt lagðist á endurútreikning míns láns.

QUOTE(fleebah @ 28. February, 2012, 9:16) <{POST_SNAPBACK}>
Ég þekki eina konu sem kann upp á 10 endurreikninga á erlendu lánunum, þekkir þetta eins og lófann á sér. Hún sagði mér um daginn að Lýsing hefði einmitt sett dráttarvexti á þá upphæð per gjalddaga sem út af stóð eftir endurreikninginn, þó svo að greiðsluseðillinn, krafan, hafi verið greidd. Dráttarvexti frá hverjum eindaga greiðslu.

S.s. Lýsing setti dráttarvexti á kröfu sem staðið var í skilum með á þeim tíma.

Hressandi, ekki satt?

Held þú ættir að kíkja betur á þetta.

Í mínu tilfelli stóð aldrei nein fjárhæð út af til að setja dráttarvexti á þar sem ég frysti hvorki lánið né lengdi í því heldur greiddi alla seðla jafnóðum og þeir duttu inn um lúguna.

#34 falcon1

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 11409 posts

Posted 29 February 2012 - 10:08

QUOTE(fleebah @ 28. February, 2012, 21:02) <{POST_SNAPBACK}>
Þannig að þeir aðilar sem fóru í greiðsluverkfall til að mótmæla eða eitthvað, eru ekki í neinni sér aðstöðu núna. Bara plain vanilla vanskil.
Varla hægt að tala um vanskil þegar lánin eru kolólögleg.
Kveðja,
Falcon1

icelandphotoblog.com

Íslenska þjóð - RÍS UPP!

Fyrrum voru fálkar fluttir lifandi út í stórum stíl, því erlendir þjóðhöfðingjar sóttust eftir að eignast íslenska fálka. Íslenski fálkinn er stærsta fálkategund sem til er og er eftirlæti fuglaskoðara. Af Íslandsvef

#35 Spinni

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4323 posts

Posted 29 February 2012 - 10:27


Sælir.

Vitanlega átti fólk að skella í lás og fara í lögsókn við þessa þjófa. Eins eru verðtryggðu lánin ólögleg enda hvergi til á plánetunni. Allt í vitleysu í Kjánalandi.

kv


Spinni.

#36 Skaz

    Rithæfur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 4283 posts
  • Gender:Male

Posted 29 February 2012 - 19:35

QUOTE(fleebah @ 28. February, 2012, 21:02) <{POST_SNAPBACK}>
Held að greiðslulverkfall sé ekki til sem konsept í lögum. Annað hvort eru greiðslur í skilum eða ekki. Skil / Vanskil.

Þannig að þeir aðilar sem fóru í greiðsluverkfall til að mótmæla eða eitthvað, eru ekki í neinni sér aðstöðu núna. Bara plain vanilla vanskil.


Þetta er umdeilt atriði, sama gildir um frystingu lána. Það er engin fullnaðarkvittun til í þeim málum en samt sem áður þá var frystingin samþykkt af lánveitenda.

Þannig að það er augljóst hver taktík banka og fjármálastofnanna verður núna þegar að þeim sýnist sem að ríkisstjórnin sé rög við að koma með einhverja löggjöf um þessa endurútreikninga.

Það á að draga lappirnar og segja hitt og þetta óljóst í öllum málum. Það er bókað að margt fólk á ekki eftir að gera sér grein fyrir rétti sínum eða líta á það sem þess virði að eyða tíma og jafnvel peningum í að sækjast eftir einhverju sem að er ekki endilega mjög há upphæð.

Þetta er brandari að horfa upp á þessi fyrirtæki komast upp með þetta. FME og aðrar eftirlitsstofnanir ættu að vera til taks og á fullu að fylgja eftir endurútreikningum en það er ekkert að gerast. Allavega ekkert sem að er að virka.

Know thyself; presume God not to
scan:
The proper study of mankind is man.
-Alexander Pope

#37 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10767 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góður matur.

Posted 29 February 2012 - 20:56

QUOTE(Skaz @ 29. February, 2012, 19:35) <{POST_SNAPBACK}>
Þetta er umdeilt atriði, sama gildir um frystingu lána. Það er engin fullnaðarkvittun til í þeim málum en samt sem áður þá var frystingin samþykkt af lánveitenda.

Frysting lána, í tilfelli Frjálsa allavega, var hluti af þeim viðskiptakjörum sem Frjálsi bauð uppá fyrir hrun. Þannig að í rauninni voru lánin í skilum í frystingu miðað við að þetta var í því sem Frjálsi bauð uppá sem og að Frjálsi hafði frumkvæði af því að bjóða fasta greiðslur þegar allt var komið í rugl.

Frá mínum bæjardyrum séð voru þau lán sem voru í frystingu, og hver einasti gjalddagi var greiddur í tíma, jafnrétthá og þau lán sem var búið að greiða upp eða fóru aldrei í frystingu.

Þar að auki er frysting í rauninni bara skilmálabreyting á láninu, faktískt séð, með samþykki beggja aðila.

Enda tók lögfræðiálit LEX þetta skýrt fram: Ef þú varst í skilum með lánið, frysting eður ei, gildir dómur Hæstaréttar fyrir það lán.
"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#38 fleebah

    Talsmaður

  • Notendur
  • PipPipPipPipPip
  • 10767 posts
  • Gender:Male
  • Location:Here
  • Interests:Fjölskyldan, fjallgöngur, bókmenntir, tónlist, og góður matur.

Posted 16 March 2012 - 18:35

Jæja, þá eru mál að skýrast.
Fjármálafyrirtækin hafa ákveðið að hafa samráð með úrvinnslu fordæmis þessa dóms og niðurstaðan úr því samráði er alltaf að skýrast.

Fyrirtækin ætla að fara með 14 mál fyrir dóm. 12 fyrirtækjalán og svo tvö lán einstaklinga gegn Lýsingu (bílalán).
Þessar upplýsingar, ásamt upplýsingum um afskriftir tveggja banka af þessum dómi, sýna að það er greinilegt að langflestir einstaklingar með erlend húsnæðislán munu njóta fordæmisins. Þau sem greiddu upp setta upphæð, þau sem voru í frystingu líka. S.s. það fólk sem var í skilum.

Spurning er hvort að vanskil hafi mikil áhrif.

Tapa 51 milljarði á dómnum

Það er kannski ágætt að eigið fé bankana var feitt fyrir þennan dóm...
"Stjórnmálamenn á Íslandi eru vitgrannir sjálfselskupúkar sem í besta falli er hægt að treysta til að sópa gólf."
- feu -
"Maður vinnur hvorki dómsmál né rökræðu með yemenskum grátkór"
- Skeggi -
Rökræður í hnotskurn: Confirmation bias
Femínisti er kona eða karl sem veit að jafnrétti kynjanna er ekki náð og vill gera eitthvað í því að bæta hag kvenna.

#39 Moran

    Taldrjúgur

  • Notendur
  • PipPipPipPip
  • 5984 posts

Posted 17 March 2012 - 19:04



#40 Agent Smith

    Mælskur

  • Notendur
  • PipPipPip
  • 2206 posts
  • Location:Norðan miðbaugs

Posted 18 March 2012 - 07:53

View PostMoran, on 17 March 2012 - 19:04, said:

Já skrítið því að það fólk sem getur þá notað peninganna sem ekki fara í lánin borga 25,5% vask af því öllu + Ýmis önnur gjöld. Líklega hagnast ríkisjóður á þessu...
I'd like to share a revelation during my time here. It came to me when I tried to classify your species. I realized that you're not actually mammals. Every mammal on this planet instinctively develops a natural equilibrium with the surrounding environment but you humans do not. You move to an area and you multiply and multiply until every natural resource is consumed. The only way you can survive is to spread to another area. There is another organism on this planet that follows the same pattern. Do you know what it is? A virus


“Progress is impossible without change, and those who cannot change their minds cannot change anything.”

- George Bernard Shaw





1 user(s) are reading this topic

0 members, 1 guests, 0 anonymous users